ÆVINTÝRAFERÐIR

Ævintýraferðir eru meira en bara venjulegt frí
Sérsniðnar ferðir, hópferðir og ævintýraferðir fyrir alla ferðastíla, allar fjárhagsáætlanir og allt þar á milli.
Vinsælar ævintýraferðir
Meira en bara venjulegt frí. Spennt/ur fyrir frumskógum, safarí, eyjahoppi eða gönguferðum?
Ferðir fyrir þau sem vilja sjá meira
Af hverju að stoppa á einum stað þegar þú getur upplifað svo miklu meira? Sameinaðu stórborgir, strendur, þjóðgarða og staði utan alfaraleiða í einu og sama ferðalaginu. Hoppaðu á milli eyja í Indónesíu, ferðastu með lest um Japan eða skoðaðu fleiri en eitt land í Mið- eða Suður-Ameríku. Við setjum saman ferðaleið sem passar bæði við tímann sem þú hefur og fjárhagsáætlunina þína.

Prófaðu rafting í Costa Rica!
Af hverju að velja KILROY fyrir næstu ferðina þína
30+ ára reynsla
Yfir 30 ára reynsla, sérþekking og traustir samstarfsaðilar okkar um allan heim gera þér kleift að ferðast með öryggi og sjálfstrausti.
Persónuleg ferðaráðgjöf
Ferðaráðgjafi sem kynnist þínum óskum, draumum og markmiðum. Frá fyrstu hugmynd að heimkomu erum við með þér í hverju skrefi á leiðinni.
24/7 neyðarsími
Ef eitthvað óvænt kemur upp á er neyðarsíminn okkar opinn allan sólarhringinn. Ferðasérfræðingar KILROY eru til staðar fyrir þig, hvar og hvenær sem er.
KILROY leiðin
Bestu ferðirnar enda ekki þegar þú kemur heim. Þær lifa áfram í upplifunum, sögum og minningum sem fylgja þér lengi eftir að ferðinni lýkur.
Vinsælir áfangastaðir þar sem fullt af ævintýrum bíða
Hvert langar þig að fara í ævintýraferð? Það er best að vera lengur á ferðinni svo þú náir að sjá meira!
Þarftu aðstoð við að skipuleggja ævintýraferð?
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.
Safarí, frumskógur, paradísareyjar eða smá af öllu?
Þú þarft ekki að velja bara eina tegund af ferðalagi. Sameinaðu eyjaparadísirnar í suðurhluta Tælands við ævintýri í Khao Sok þjóðgarðinum og endaðu ferðina með líflegum dögum í Bangkok. Eða af hverju ekki að halda áfram til Hanoi í Víetnam?
Það besta við lengri ævintýraferðir er fjölbreytnin. Við hjálpum þér að tengja saman flug, samgöngur, gistingu og upplifanir í ferð sem gengur upp frá upphafi til enda. Þannig færðu frelsi til að njóta áfangastaðanna án þess að þurfa að skipuleggja hvert einasta smáatriði fyrirfram.

Víetnam er stútfullt af ævintýrum!
Með hverjum ætlar þú að ferðast?
Veist þú ekki alveg hvert þú vilt fara?
Frábært! Þú þarft ekki að mæta með tilbúna ferðaleið, litakóðað Excel-skjal eða allt skipulagt niður í minnstu smáatriði.
Segðu okkur hvert þig langar, hvað þú vilt upplifa eða hvað þú hefur til ráðstöfunar í budget. Við hjálpum þér að breyta hugmyndinni í ferð sem passar þínum ferðastíl, tíma og fjárhagsáætlun.

Fylgstu með letidýrum í Costa Rica.




Ævintýraferðir eru fyrir þau sem...
...vilja meira en bara venjulegt frí
Upplifðu nýja menningarheima og ögraðu þér með ævintýrum sem þú myndir annars ekki upplifa.
...eru forvitin um nýja menningarheima
Það besta við bakpokaferðalag er að þú upplifir hverja staðsetningu dýpra með því að dvelja lengur en bara nokkra daga.
...vilja fá smá adrenalín
Sjá ljón í fyrsta skipti, prófa rafting, ganga á fjallstind eða eitthvað sem fær þig til að hugsa: VÁ!























































































