KÖFUN Í TÆLANDI

Lærðu að kafa í Tælandi
Tæland er einn besti staðurinn í heiminum til að læra köfun. Aðstæður eru frábærar fyrir byrjendur og bestu köfunarskólarnir eru á Koh Tao og Phi Phi.
Köfun í Tælandi fyrir öll getustig
Hvort sem þú vilt prófa köfun í fyrsta skipti eða bæta við þekkinguna, þá er Tæland einn besti staður í heiminum til að kafa. Við bjóðum upp á köfunarnámskeið fyrir byrjendur og einnig framhaldsréttindi fyrir lengra komna. Ertu þegar með réttindi? Taktu þátt í Fundive og uppgötvaðu nokkra af mögnuðustu köfunarstöðum Tælands.
Flest byrjendanámskeið eru aðeins 5 dagar, svo það er auðvelt að bæta köfunarréttindum við ævintýrið þitt í Tælandi.
Köfun með vinum í Tælandi
Að kanna neðansjávarheiminn
Sjáðu skjaldböku á köfunarferð í Tælandi
Köfunarævintýri
Valdar upplifanir og afþreyingar
Kynntu þér fjölbreytt úrval spennandi upplifana
Þarftu aðstoð við að skipuleggja köfunarferð?
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.
Fáðu köfunarréttindi í Tælandi
Tæland býður upp á frábæra köfun sem hentar sérstaklega byrjendum. Við vinnum með traustum köfunaraðilum í Tælandi svo þú getir verið örugg/ur með köfunarnámið þitt. Náðu þér í PADI Open Water og Advanced Water köfunarréttindi í Tælandi. Skoðaðu námskeiðin sem við bjóðum upp á og ef þú hefur spurningar eða ert óviss um hvaða námskeið hentar þinni þekkingu, hafðu samband við okkur.

Köfunarnámskeið
Algengar spurningar
Allt sem þú þarft að vita áður en þú kafar í Tælandi!
Tæland skiptist í tvennt þegar kemur að köfun: Tælandsflóa á austurströndinni og Andamanhafið á vesturströndinni. Báðir staðir eru með köfunarmiðstöðvar sem eru opnar allt árið, þar sem veðrið í Tælandi er nægilega hlýtt á öllum árstímum. Vatnshitinn er notalegur, 26-30 °C.
Í Tælandsflóa (þar eru meðal annars Pattaya, Koh Chang og Koh Tao) er hægt að kafa allt árið, en bestar aðstæður eru frá nóvember til mars. Frá apríl til ágúst eru aðstæður oft óútreiknanlegri.
Í Andamanhafinu (þar eru Phuket, Koh Phi Phi og Koh Lanta) er köfunin best frá janúar til apríl en þá er skyggnið mest. Frá apríl til október er meiri hreyfing í sjónum og skyggni versnar.
Nei. Tæland er einn besti staðurinn í heiminum fyrir byrjendur, með hlýju vatni, góðu skyggni og fullt af köfunarstöðum sem henta þeim sem eru að byrja. Flestir ferðalangar byrja á PADI Open Water námskeiði og fá réttindi á örfáum dögum.
Koh Tao og Phi Phi eru vinsælustu staðirnir fyrir byrjendur í köfun. Ef þú ert með meiri reynslu eru Similan-eyjar, Koh Lanta eða Richelieu Rock frábærir áfangastaðir með ótrúlegt sjávarlíf og krefjandi köfunarstaði.
Flest Open Water námskeið taka 3 til 4 daga. Eftir að þú ert komin/n með réttindin geturðu kafað sjálfstætt með köfunarfélaga hvar sem er í heiminum.
Tæland er eitt ódýrasta landið í heiminum til að læra köfun. Verðin eru mismunandi eftir köfunarskólum og stöðum, en réttindanám er almennt mun ódýrara en í Evrópu, Ástralíu eða Norður-Ameríku.
Algjörlega. Þú finnur litrík kóralrif, suðrænt sjávarlíf, heimsklassa köfunarstaði og hagstæð réttindanám í Tælandi!
Sýnir 4 / 6 niðurstöður
Köfun í Tælandi fyrir lengra komna
Ef þú ert með köfunarréttindi og ert vanur kafari geturðu farið í skipulagðar köfunarferðir, svokallaðar fundives, sem oft innihalda gistingu, mat og margar köfunarferðir!

Farðu í fundive ef þú ert með réttindi
Þú ættir að prófa köfun í Tælandi ef þú...
...ert algjör byrjandi
Hlýtt vatn, gott skyggni og afslöppuð eyjastemning gera Tæland að einum auðveldasta stað í heiminum til að læra að kafa.
...hefur áhuga á sjávarlífinu
Kafaðu meðal litríkra kóralrifa, suðrænna fiska, sæskjaldbaka og ef þú ert heppin/n - jafnvel hvalháfa.
...vilt ævintýri á góðu verði
Fáðu köfunarréttindin, taktu þátt í fundive og skoðaðu heimsklassa köfunarstaði án þess að tæma veskið.
Aðrir frábærir áfangastaðir fyrir köfun
Mikið úrval af köfunarstöðum sem við mælum með.
Nýjast á ferðablogginu hjá KILROY
Við elskum að ferðast og vonum að þú gerir það líka! Fáðu innblástur fyrir næsta ævintýri með ferðasögum, ráðum og spennandi áfangastöðum.






































