GÖNGUFERÐIR Í PERÚ

Af hverju að taka gönguskóna með til Perú?
Fjöllin í Perú eru heimsþekkt fyrir litadýrð, dramatískar gönguleiðir til Machu Picchu og tignarlega Andes-tinda.
Valdar gönguferðir
Gönguferðir sem við mælum með að skoða
Stórkostlega Machu Picchu
Þegar fólk talar um gönguferðir í Perú er yfirleitt eitt sem kemst strax upp í hugann: Machu Picchu. Þessi goðsagnakennda Inkaborg situr hátt uppi í Andesfjöllunum, 2.430 metra yfir sjávarmáli, og er án efa einn magnaðasti staður Suður-Ameríku.
Það er ekki að ástæðulausu að Machu Picchu sé á bucket listanum hjá ferðalöngum um allan heim. Borgin hefur verið á heimsminjaskrá UNESCO síðan 1983, var valin eitt af Nýju sjö undrum veraldar árið 2007 og laðar að sér þúsundir ævintýragjarnra ferðalanga á hverju ári.
En ferðin snýst ekki bara um áfangastaðinn. Hvort sem þú velur hina heimsfrægu Inka-slóð, krefjandi Salkantay-gönguna eða eina af öðrum leiðum að borginni, þá er upplifunin sjálf stór hluti af ævintýrinu.
Til að vernda svæðið er aðgangur takmarkaður og allar helstu gönguleiðir krefjast þess að farið sé með viðurkenndum leiðsögumönnum. Þú getur því ekki bara skellt bakpokanum á bakið og lagt einn af stað, en það er kannski bara hluti af töfrunum.

Alltaf bros þegar gönguferðinni er lokið
Valdar upplifanir og afþreyingar
Kynntu þér fjölbreytt úrval spennandi upplifana
Þarftu aðstoð við að skipuleggja gönguferð?
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.
Allar leiðir liggja til Machu Picchu
Ertu á bakpokaferðalagi í Perú og með Machu Picchu á bucket-listanum þínum? Það eru svo margar epískar leiðir til að komast þangað, hvort sem þú vilt svitna í nokkra daga yfir risastórum fjallatindum eða byrja ferðina með flúðasiglingu í gegnum frumskóginn. Það eru ótrúlega margar gönguleiðir í boði, svo veldu þá sem passar fyrir þig:
Inca-slóðin Þetta er klárlega frægasta og vinsælasta leiðin til Machu Picchu. Gangan tekur venjulega fjóra daga og býður upp á ótrúlegar landslagsmyndir og æðislegt útsýni. Vegna þess hve hún er vinsæl þarftu að vera snögg/ur að tryggja þér pláss!
Salkantay-gönguferð Þessi 5 daga ganga er alvöru próf í úthaldi - hún er nokkuð krefjandi, en umbunin er ótrúlegt útsýni allan tímann. Algjör hápunktur (bókstaflega) er snjóþakinn Nevado Salkantay, sem gnæfir í 6.271 metra hæð. Salkantay er ein af vinsælustu leiðunum, frábær fyrir þau sem vilja alvöru áskorun.
Lares-gönguferð Viltu upplifa menningu og einstaka reynslu? Lares-gönguferðin tekur 3-4 daga og fær þig nær litlum, staðbundnum samfélögum í Andesfjöllum. Þetta er leiðin fyrir þau sem vilja upplifa raunverulega Perú og hitta fólkið sem býr þar.
Choquequirao-gönguferð Þetta er hardcore útgáfan! Gangan tekur venjulega 11-12 daga og er mjög krefjandi, en þetta er líka ein flottasta ganga sem þú getur farið í. Á leiðinni heimsækir þú Choquequirao Inca-rústirnar - svæði sem er svo áhugavert að það gerir labbið þess virði út af fyrir sig. Að enda á Machu Picchu gerir þetta að spennandi leið fyrir þau sem elska sögu og fornleifafræði.
Inca Jungle-gönguferð Elskaru ævintýri? Þá er þetta leiðin fyrir þig. Skiptu út hefðbundinni göngu fyrir fjallahjólreiðar niður á við, flúðasiglingu og zipline í gegnum frumskóginn. Þessi leið er mjög vinsæl hjá ungu bakpokaferðafólki sem vill adrenalín og upplifun sem gleymist aldrei.
Vilcabamba-gönguferð Viltu fara alveg út af ótroðnum slóðum? Vilcabamba er minnst farna leiðin, sem tryggir þér þrennt: algjört næði, villta blöndu af fjalla- og frumskógalandslagi og örugglega þreyttar fætur. Þessi er fyrir þau sem eru lengra komin og óttast ekki langa, erfiða ferð.
Huchuy Qosco-gönguferð Þetta er styttri og mjög þægileg ganga til Huchuy Qosco („Litla Cusco“ á Quechua), rétt norðan við Cusco í Sacred Valley. Hún er frábær ef þú ert með takmarkaðan tíma eða vilt fá góða upphitun áður en þú tekst á við aðal gönguna til Machu Picchu.

Horft yfir Machu Picchu
Algengar spurningar
Allar helstu spurningar sem við fáum um gönguferðir í Perú og svörin við þeim!
Þú getur gengið upp að Machu Picchu nánast allt árið, nema í febrúar. Febrúar er sumar í Perú, sem þýðir miklar rigningar í fjöllunum - og flestir stígar eru lokaðir fyrir ferðamenn. Ef þú ert á bakpokaferðalagi í Perú í febrúar er betra að einbeita sér að Kyrrahafsströndinni eða kanna frumskóginn í kringum Iquitos.
Yfirleitt er besti tíminn til að heimsækja Machu Picchu á veturna, sem er frá maí til nóvember í Perú. Hitastigið er enn mjög þægilegt á veturna, og þú sleppur líklega við mestu rigninguna. Ef þú ert vön/vanur göngum á Íslandi, þá munt þú örugglega meta þægilegt gönguhitastigið í Machu Picchu í maí, júní, júlí, ágúst, september, október og nóvember.
Ganga til Machu Picchu er ekki alveg erfiðasta ganga sem þú finnur á heimskortinu, en við mælum samt með að vera í ágætis formi áður en þú leggur af stað. Gott viðmið er að þú getir hlaupið 5 km án mikillar fyrirhafnar eða stundar reglulega líkamsrækt.
Eftir nokkra daga göngu verður það að sjá Machu Picchu, frá Sun Gate við sólarupprás, algjör verðlaun eftir áreynsluna. Auk þess eru fullt af Inca-rústum á leiðinni sem gera gönguna spennandi, skemmtilega og mjög hvetjandi - jafnvel á bröttustu köflunum.
Ferðin þín til Machu Picchu, og hinna stórkostlegra rústanna, getur farið eftir nokkrum mismunandi leiðum. Hér fyrir neðan geturðu lesið aðeins meira um vinsælustu gönguleiðirnar til Machu Picchu. Ef þú vilt vita meira um ákveðna leið, þá geturðu haft samband við ferðasérfræðinga okkar - þeir eru spenntir að hjálpa þér með allar spurningar sem þú hefur um gönguferðir til Machu Picchu!
Þú ættir að fara í gönguferð í Perú ef þú...
...vilt upplifa ótrúlegt landslag
Frá snjóþöktum tindum Andesfjalla til skógarsvæða og forna dala - gönguleiðir Perú sýna ótrúlegt landslag á hverju horni.
...vilt kanna forna Inca-sögu
Fylgdu slóðum sem Incarnir notuðu og skoðaðu fallega fornleifastaði, þar á meðal heimsfræga Machu Picchu.
...leitar að göngu sem er líka menningarleg upplifun
Perú býður upp á nokkrar af frægustu gönguleiðum heims, þar sem þú færð bæði skemmtilegar göngur, ríka menningu og stórkostlegt fjallalandslag.
Aðrir frábærir gönguferðastaðir
Mikið úrval af vinsælum gönguferðastöðum
Nýjast á ferðablogginu hjá KILROY
Við elskum að ferðast og vonum að þú gerir það líka! Fáðu innblástur fyrir næsta ævintýri með ferðasögum, ráðum og spennandi áfangastöðum.
































