Kínverskuskólar

Shanghai í Kína
Um kínverskunám

Langar þig að læra kínversku?

Það er frábær hugmynd að læra kínversku og hvar er betra að gera það en í Kína? Við bjóðum upp á kínverskunámskeið í Kína.

Af hverju að læra kínversku?

Kínverska er eitt mest talaða tungumál í heimi og færni í tungumálinu getur opnað dyr að nýjum tækifærum í námi, starfi og ferðalögum. Með því að læra kínversku í Kína færðu einstakt tækifæri til að sökkva þér ofan í tungumálið og nota það í daglegu lífi, sem flýtir fyrir framförum og eykur sjálfstraustið.

Að búa og læra í Kína snýst ekki aðeins um tungumálanám. Þú kynnist ríkri sögu, fjölbreyttri menningu og einstökum hefðum á sama tíma og þú öðlast dýpri skilning á einu áhrifamesta landi heims. Hvort sem markmið þitt er að efla ferilinn, undirbúa framtíðarnám eða einfaldlega takast á við nýja áskorun, þá er kínverskunám í Kína upplifun sem nýtist bæði persónulega og faglega.

Sólsetur í Shanghai

Sólsetur í Shanghai

Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferð í málaskóla?

Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.

Hvar er hægt að fara í kínverskuskóla?

Lærðu kínversku í Shanghai, einni spennandi og nútímalegustu borg Asíu þar sem hefð og nýsköpun mætast á einstakan hátt. Frá líflegum götumatarmörkuðum og sögulegum hverfum til glæsilegra skýjakljúfa og iðandi stórborgarlífs er alltaf eitthvað nýtt að upplifa.

Farðu út fyrir þægindarammann, kynnstu nýrri menningu og láttu kínverskuna lifna við í daglegu lífi. Með því að læra tungumálið þar sem það er talað færðu einstakt tækifæri til að bæta kunnáttuna hraðar, öðlast aukið sjálfstraust og upplifa Kína af eigin raun.

Kynnstu kínverskri menningu

Kynnstu kínverskri menningu

FAQ

Algengar spurningar

Hér eru svör við spurningum sem við fáum oft um málaskóla! Ef þú finnur ekki þína spurningu, endilega hafðu samband og ferðaráðgjafi aðstoðar þig.

Já klárlega! Áður en námið hefst tekur þú stöðupróf sem tryggir að þú sért sett/ur í hóp sem hentar þínu tungumálastigi, hvort sem þú ert byrjandi eða með góða kunnáttu.

Já, margir nemendur fara einir. Málaskólar eru frábær leið til að eignast nýja vini frá öllum heimshornum og kynnast fólki með svipuð áhugamál.

Það fer eftir markmiðum þínum. Hægt er að velja námskeið frá einni viku upp í heilt ár og á sumum stöðum eru einnig í boði annir og lengri námsleiðir.

Á flestum áfangastöðum geturðu valið um fjölbreytta gistimöguleika, til dæmis heimagistingu hjá heimafólki, stúdentagistingu, skólasvæði, gistiheimili eða hótel. Við hjálpum þér að velja og bóka það sem hentar þér best!

Það fer eftir námskeiði. Yfirleitt er hægt að velja á milli 20 og 32 kennslustunda á viku, eftir því hversu mikla áherslu þú vilt leggja á námið.

Kennslan er fjölbreytt og gagnvirk, með áherslu á að efla tal, hlustun, lestur og ritun. Allir kennarar eru menntaðir og allt kennsluefni er innifalið í náminu.

Málaskólar eru í boði fyrir mismunandi aldurshópa og markmið. Það eru t.d. námskeið fyrir ungmenni, háskólanema, fullorðna og jafnvel sérstök 50+ námskeið á völdum áfangastöðum.

Við aðstoðum þig að finna tungumálanám sem hentar þér!

Já. Við getum aðstoðað þig við að skipuleggja alla ferðina, ekki bara námið. Við hjálpum þér að finna hentug flug, velja gistingu sem hentar þínum þörfum og veitum ráðgjöf um áfangastaðinn, skólann og dvölina. Þannig geturðu einbeitt þér að því að njóta upplifunarinnar og læra tungumálið.

Sýnir 4 / 8 niðurstöður

Þú ættir að fara í málaskóla erlendis ef þú...

...vilt læra eitthvað nýtt

Sameinaðu tungumálanám og ferðalög. Ferðaráðgjafar okkar hjálpa þér að setja saman upplifun þar sem þú lærir tungumálið og kynnist nýrri menningu.

...vilt byggja upp sjálfstraust

Öðlastu sjálfstraust til að tjá þig, taka frumkvæði og takast á við nýjar aðstæður á eigin spýtur.

...vilt eignast vini frá öllum heimshornum

Lærðu tungumál í alþjóðlegu umhverfi, kynnstu nýrri menningu, eignastu vini frá öllum heimshornum og settu kunnáttuna strax í notkun utan kennslustofunnar.

Tungumál

Viltu læra annað tungumál erlendis?

Skoðaðu tungumálin sem þú getur lært í málaskóla erlendis.

Fáðu ferðainnblástur og einstök tilboð beint í pósthólfið þitt

Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu upplýsingar um nýjar ferðir, ferðainnblástur, viðburði og tilboð. Vertu klár í næsta ævintýri!

Hringdu í okkur

+354 517 7010

Opnunartími síma: Mánudaga - föstudaga frá 10:00 til 17:00 og laugardaga frá 13:00 - 17:00

Sendu okkur tölvupóst

travels@kilroy.is

Fyrirspurnum vegna flugmiða sem keyptir eru á netinu er svarað í tölvupósti á help@kilroy.net

Um okkur

Í meira en 30 ár hefur KILROY hjálpað forvitnum ferðalöngum að uppgötva heiminn. Við sérhæfum okkur í að skipuleggja ævintýraleg ferðalög fyrir fólk á öllum aldri, allt frá bakpokaferðalögum og heimsreisum til fjölskylduferða, fyrirtækjaferða og annarra hópferða. Hvert sem ferðalagið liggur eru ferðasérfræðingar okkar hér til að hjálpa þér að láta ferðadraumana rætast.

KILROY Iceland

Norðurturn, 11. hæð 

Hagasmári 3, 201 Kópavogur

 Opnunartími skrifstofu: Mánudaga - föstudaga frá 10:00 til 17:00

Kt. 410911-0350

© 2026 Copyright KILROY Iceland ehf