Jóga í Tælandi

Yoga í Taílandi
Um jóga í Tælandi

Finndu jafnvægi með jóga í Tælandi

Tengdu hug og líkama með jóga í Tælandi, umvafin/n suðrænu landslagi, vinalegri menningu og rólegu andrúmslofti.

Af hverju að velja Tæland fyrir jóga dvöl?

Tæland er einn af eftirsóttustu áfangastöðum heims fyrir vellíðan, sjálfsuppgötvun og persónulegan vöxt. Hér blandast fornar lækningaraðferðir við stórbrotna náttúru og skapa fullkomið umhverfi til að losna undan daglegum truflunum og einbeita sér að vellíðan. Hvort sem þú stundar jóga á hvítum sandströndum með útsýni yfir blágrænt hafið eða finnur kyrrð í friðsælum frumskógum í Norður-Tælandi, þá býður landið upp á fjölbreyttar og gefandi aðstæður fyrir þína ferð.

Það skiptir ekki máli hvort þú sért algjör byrjandi í jóga eða vilt dýpka þína iðkun, en vellíðunarsamfélagið í Tælandi tekur vel á móti öllum. Auk daglegra jógatíma eru margar dvalir með hugleiðsluæfingar og heildrænni nálgun sem hjálpar þér að finna jafnvægi milli líkama og hugar. Nærðu þig með ferskum, hollum mat, hægðu á lífinu og tengdu þig við náttúruna á meðan þú uppgötvar hvers vegna Tæland er í uppáhaldi hjá ferðalöngum sem leita bæði ævintýra og innri ró.

Yoga í Taílandi
Yoga í Taílandi
Yoga í Taílandi

Yoga í Taílandi

Yoga í Taílandi

Yoga í Taílandi

Afþreyingar

Valdar upplifanir og afþreyingar

Kynntu þér fjölbreytt úrval spennandi upplifana

Þarftu aðstoð við að skipuleggja jógaferð?

Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.

Ávinningur sem nær langt út fyrir dýnuna

Jóga snýst ekki um fullkomnar stellingar eða að ná valdi á flókri tækni. Þetta er tækifæri til að gefa sér tíma, rými og stuðning til að einbeita sér að vellíðan. Með blöndu af jóga, hugleiðslu og meðvitaðri lífsstefnu geturðu styrkt bæði líkama og huga, á sama tíma og þú losnar undan streitu og venjum hversdagsleikans.

Ávinningurinn heldur oft áfram langt eftir dvölina í Tælandi. Margir ferðalangar fara heim með aukið sjálfstraust, meiri orku og sterkari tengingu við sjálfa/n sig, auk betri skýrleika og praktískum tólum til að takast á við streitu. Þú deilir líka upplifuninni með fólki sem hugsar eins, og eignast nýja vini og minningar sem endast lengur en ferðin. Hvort sem markmiðið þitt er slökun, persónulegur vöxtur eða einfaldlega að taka tíma fyrir sjálfa/n þig, þá getur jóga dvöl gefið þér nýja sýn og endurnýjað jafnvægi sem fylgir þér heim.

Vinir í Taílandi

Vinir í Taílandi

FAQ

Algengar spurningar

Við höfum svarað algengustu spurningunum sem við fáum um jóga í Tælandi hér að neðan. Ef þú ert með fleiri spurningar, ekki hika við að hafa samband við einn af ferðaráðgjöfum okkar!

Nei. Jóga dvalir eru bæði fyrir byrjendur og þau sem eru með meiri reynslu. Tímarnir eru oft aðlagaðir að mismunandi getu þátttakenda svo þú getir þróað iðkunina á þínum hraða.

Taktu með þér þægileg föt, sundfatnað, sólarvörn og það sem þú þarft persónulega. Oft er jóga búnaður á staðnum, en nánari upplýsingar um það kemur fram í ferðalýsingunni þinni.

Flestir dagar innihalda einn eða fleiri jóga tíma, frítíma til að slaka á eða kanna staðinn, og tækifæri til að njóta lókal menningar og náttúru. Hver dvöl er einstök, en áherslan er alltaf á jafnvægi og vellíðan.

Algjörlega. Auk jógatímanna færð þú nóg af tækifærum til að njóta stranda, menningar, matar og náttúrufegurðar Tælands, þetta er ferðaupplifun sem gefur þér svo margt.

Þú ættir að stunda jóga ef þú...

...vilt draga úr streitu

Gefðu þér tíma fyrir sjálfa/n þig og finndu jafnvægi í daglegu lífi.

...vilt tengjast þér

Taktu þér tíma til að tengjast sjálfri/sjálfum þér í frábæru umhverfi.

...vilt styrkja þig

Jóga bætir liðleika þinn og gefur þér orku og styrk.

Áfangastaðir

Aðrir frábærir jógaáfangastaðir

Finndu þinn fullkomna jógastað.

Fáðu ferðainnblástur og einstök tilboð beint í pósthólfið þitt

Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu upplýsingar um nýjar ferðir, ferðainnblástur, viðburði og tilboð. Vertu klár í næsta ævintýri!

Hringdu í okkur

+354 517 7010

Opnunartími síma: Mánudaga - föstudaga frá 10:00 til 17:00 og laugardaga frá 13:00 - 17:00

Sendu okkur tölvupóst

travels@kilroy.is

Fyrirspurnum vegna flugmiða sem keyptir eru á netinu er svarað í tölvupósti á help@kilroy.net

Um okkur

Í meira en 30 ár hefur KILROY hjálpað forvitnum ferðalöngum að uppgötva heiminn. Við sérhæfum okkur í að skipuleggja ævintýraleg ferðalög fyrir fólk á öllum aldri, allt frá bakpokaferðalögum og heimsreisum til fjölskylduferða, fyrirtækjaferða og annarra hópferða. Hvert sem ferðalagið liggur eru ferðasérfræðingar okkar hér til að hjálpa þér að láta ferðadraumana rætast.

KILROY Iceland

Norðurturn, 11. hæð 

Hagasmári 3, 201 Kópavogur

 Opnunartími skrifstofu: Mánudaga - föstudaga frá 10:00 til 17:00

Kt. 410911-0350

© 2026 Copyright KILROY Iceland ehf