Kynnstu teyminu

...kynnstu okkur á netinu eða í eigin persónu

Kynnstu KILROY teyminu

Það hefur aldrei verið auðveldara að hafa samband við okkur

Endilega hafðu samband við okkur ef þú ert með fyrirspurn með því að senda okkur póst á travels@kilroy.is

Ef þig langar að bóka ferð, notaðu hnappana hér fyrir neðan til að skrifa okkur eða bóka fund!

Anna Karen Stefánsdóttir

Ferðaráðgjafi

Það er ekkert skemmtilegra en að ferðast og upplifa heiminn!

Ég hef alltaf haft brennandi áhuga fyrir nýjum stöðum, ólíkum menningarheimum og þeim sögum sem fólk hefur að segja. Ég hef ferðast um Evrópu, Asíu og Afríku! En ég bjó um tíma í Danmörku þar sem ég stundaði nám í alþjóðlegum félagsvísindum. Sú reynsla opnaði augun mín enn meira fyrir fjölbreytileikanum í heiminum - og kveikti enn sterkari löngun til að halda áfram að uppgötva hann.

Eftir að hafa flutt heim og lokið B.A. námi í félagsráðgjöf lét ég loksins drauminn rætast árið 2023 og lagði af stað í ævintýralegt bakpokaferðalag um Asíu með KILROY.

Ferðin tók mig til Dubai, Sri Lanka, Tælands, Víetnam, Japan, Kuala Lumpur og Bali - og hvert stopp var einstakt á sinn hátt. Ég meðal annars keyrði um sandöldur í eyðimörkum Dubai, fylgdist með fílafjölskyldum í Sri Lanka, nældi mér í köfunarréttindi í Tælandi, fór í drullubað í Víetnam, át nóg af sushi í Tokyo, sá Batu hellana í Kuala Lumpur og lærði að surfa á Bali. Á leiðinni kynnist ég frábæru fólki allstaðar að úr heiminum.

Ævintýraþráin hefur þó ekki stoppað þar. Ég hef farið í ógleymanlegt ferðalag frá Kenía til Tansaníu þar sem ég sá ''The big 5'' í safari, synti með höfrungum á Zanzibar og fór í 17 daga ferðalag frá Beijing í Kína sem endaði í Hong Kong.

Næst á dagskrá er Kambódía og svo Suður Ameríka!

Fyrir mér er ferðalag ekki bara ferð - það er upplifun, tenging og minningar sem endast ævilangt.
Ef þú vilt láta draumaferðina þína verða að veruleika, þá er ég meira en til í að hjálpa þér að plana hana!

Anna Karen Stefánsdóttir - Ferðaráðgjafi KILROY

Anna Karen Stefánsdóttir - Ferðaráðgjafi KILROY

Bergrún Sóla Áskelsdóttir

Ferðaráðgjafi

Ég er stoltur landsbyggðarlúði uppalin á Sauðárkróki og eins mikið og ég elska Ísland veit ég fátt betra en að læra um heiminn og allt sem hann hefur upp á að bjóða. Ein besta leiðin til þess er að fara út og skoða eins mikið af honum og hægt er! Maturinn, fólkið, náttúran og allt þar á milli sem maður upplifir á ferðalagi er eitthvað sem maður gleymir aldrei.

Ég ferðaðist um Asíu í fjóra mánuði árið 2019 þar sem ég fór meðal annars til Japan, Suður-Kóreu, Kína og Suðaustur-Asíu. Árið 2022 ferðaðist ég svo um Suður-Ameríku í þrjá mánuði þar sem ég fór til dæmis á strendurnar í Mexíkó, fjallgöngu í Kólumbíu, Amazon skóginn í Ekvador og labbaði Inca Trail til Machu Picchu í Perú. En ég hef líka farið í Interrail ferð um Evrópu, tungumálaskóla og salsa námskeið á Kúbu, surf námskeið á Kosta Ríka, tekið köfunarréttindi á Taílandi og ferðast ein um Balkanskagann.

Þegar ég fór í mína fyrstu ferð með Kilroy var það klárlega ævintýrið sem ég vissi ekki að ég þyrfti! Mér finnst ótrúlega mikilvægt að skora á sjálfa mig og fara út fyrir þægindarammann með því að ferðast því það er ekki bara ótrúlega skemmtilegt heldur lærir maður líka heilan helling. Fyrir mér eru ferðalög ómetanleg fjárfesting sem ég mun aldrei sjá eftir því þetta er eitthvað sem maður tekur með sér út í lífið.

Mér hefur alltaf fundist erfitt að ákveða hvert ég á að fara næst og vera með bucket lista því mig langar bara helst að fara út um allt! En það sem kallar mest á mig þessa dagana er maturinn í Miðausturlöndum, að kafa með risaskötum á Balí og sjá dýrin í Afríku í sínu náttúrulega umhverfi.

Ég hlakka til að hjálpa þér að láta draumaferðina þína verða að veruleika!

Bergrún Sóla - Ferðaráðgjafi hjá KILROY

Bergrún Sóla - Ferðaráðgjafi hjá KILROY

Jónheiður Anna Thorlacius

Ferðaráðgjafi

Ég hef alltaf vitað að ég vilji skoða heiminn. Ferðaástríðan kviknaði svo fyrir alvöru í útskriftarferð til Tælands. Þá vissi ég að þetta var það sem mér var ætlað að gera, en í dag er ég útskrifaður ferðamálafræðingur frá HÍ. Ég er alltaf með hugann við að skipuleggja næstu ferð og bíð eftir því að geta skellt mér í nýtt ævintýri. Hvort sem það er kynnast nýjum menningarheimum og siðum, smakka nýjan mat, kynnast nýju fólki, lenda í óvæntum ævintýrum eða skoða alla þá fallegu náttúru sem jörðin okkar hefur upp á að bjóða þá er ég til! Ég vil hvetja aðra til þess að ferðast og skapa geggjaðar minningar í sínum draumaferðum! 

Eftir útskriftarferðina gat ég ekki hugsað um annað en að komast aftur út. 2018 fór ég í mína fyrstu heimsreisu með vinkonu minni á vegum KILROY. Við heimsóttum meðal annars Sri Lanka, Víetnam, Kambódíu, Laos, Bali, Fiji og Bandaríkin. Stuttu seinna skellti ég mér í mína fyrstu ferð einsömul. Hún tók 6 mánuði og sé ekki eftir einni mínútu. Ég bókaði aðra leið til Tælands að vinna, ekki vitandi hvenær ég ætlaði heim. Á heimleiðinni heimsótti ég Japan og Suður-Kóreu. 2022 hélt ég jólin í Mexikó með vinkonu og fagnaði nýju ári í Gvatemala. Þá ferð endaði ég ein í Kosta Ríka að læra betur að surfa.

Fátt hefur mótað mig meira sem einstakling en ferðalögin sem ég hef farið í. Að takast á við áskoranir í sóló ferðalögum, að opna mig fyrir nýjum vinum og fara út fyrir þægindaramman hefur kennt mér svo margt.

Ég á eftir að sjá svo margt og bucketlistinn er langur. Efst á honum núna er Perú, Indland og Kína!

Ef þig langar í magnaðar ferðaupplifanir sem munu fylgja þér út ævina þá endilega hafðu samband og við hönnum þína draumaferð saman

Jónheiður Anna Thorlacius - Ferðaráðgjafi KILROY

Jónheiður Anna Thorlacius - Ferðaráðgjafi KILROY

Fljótleg og einföld bókun hjá KILROY

1

Hafðu samband

Segðu okkur frá ferðaplönunum þínum, hugmyndum og markmiðum.

2

Deildu plönunum þínum

Við kynnumst þér og því sem þú ert að leita að.

3

Fínstillum smáatriðin

Við mótum þína fullkomnu ferð saman.

4

Bókaðu áhyggjulaus

Við sjáum um smáatriðin svo þú getir einbeitt þér að ævintýrinu.

5

Vertu klár!

Pakkaðu töskunum og byrjaðu að telja niður.

Rakel Heiðarsdóttir

Ferðaráðgjafi

Mitt helsta áhuga mál er og hefur lengi verið að ferðast! Ég veit ekkert betra en að kynnast ólíkum menningarheimum, fólki og að prófa nýja og skemmtilega hluti.

Það að ferðast er æðislegt þó það sé ekki alltaf dans á rósum, en það sem það gefur þér er algjörlega ómetanlegt. Ég hef lært ansi mikið um lífið og sjálfa mig með því að ferðast, sem er eitthvað sem ég gæti ekki hafa lært öðruvísi. Ég varð ástfangin af ferðaheiminum þegar ég fór í mína fyrstu reisu árið 2019 á vegum Kilroy. Ég fór til Tokyo, Víetnam, Tælands og Balí, og ég get með sanni sagt að þetta voru nokkrar af bestu vikum lífs míns. Eftir það hugsaði ég ekki um annað en næstu ferð, sem getur líka valdið smá valkvíða þegar manni langar að fara allt!

Ég skellti mér svo í mína fyrstu sóló ferð í apríl 2022 og fór að surfa í Portúgal, vinna á hosteli í Brasilíu og hitti vinkonu mína í Guatemala. Sú ferð var krefjandi en alveg ótrúlega gefandi.

Næsta ferðin mín verður annað hvort roadtrip í Ástralíu, safarí í Afríku eða aftur til Brasilíu og svo yfir til Argentínu, Kólumbíu og landanna þar i kring. Eins og ég segi, alveg mjög erfitt að velja en ég get leyft mér að dreyma.

Ef þú vilt skella þér í smá ævintýri, sem ég mæli hiklaust með að þú gerir, endilega hafðu samband og við setjum saman þína draumaferð í sameiningu!

Rakel Heiðarsdóttir - Ferðaráðgjafi KILROY

Rakel Heiðarsdóttir - Ferðaráðgjafi KILROY

Agnes Geirsdóttir

Ferðaráðgjafi fyrir hópa

Ég hef mikin áhuga á ferðalögum og að skapa ógleymanlegar upplifanir. Að skipuleggja ferðir,  hvort sem það er fyrir mig og fjölskylduna mína eða fyrir aðra, er eitthvað sem ég elska að gera. Það besta sem ég geri er að upplifa eitthvað nýtt, skoða nýjar slóðir, kynnast nýrri menningu, fara í fallegar gönguferðir, hitta nýtt fólk og smakka fjölbreyttan mat. 

Ég finn alltaf hvað ég læri mikið á að ferðast.. Þau láta mann sjá hlutina í nýju ljósi, bæta í reynslubankann og skapa fullt af minningum. Að eiga bókaða ferð framundan er líka ákveðin gleði svona gulrót sem heldur manni gangandi. 
 
Fyrsta stóra ferðin mín var til Filippseyjar og eftir hana vissi ég að ég vildi ferðast meira.  
Ég hef heimsótt þessa klassískar borgir eins og London, París, New York, Edinborg og fl. en hef líka verið dugleg að velja aðeins óhefðbundnari áfangastaði eins og Salou, Salta og Detroit. 
 
Seinasta langa ferðalagið mitt var til Argentínu árið 2025 þar sem ég heimsótti Buenos Aires og Salta. Sú ferð gaf mér enn meira sjálfstraust til að fara lengra og skoða heiminn. 
Næstu áfangastaðir á listanum hjá mér eru að skoða meira af Suður-Amerík og Ítalíu, Japan, Tæland. Listinn er auðvitað lengri, en maður byrjar alltaf einhvers staðar. 

Ef þig langar í vinaferð til Riga, námsferð til Berlín, árshátíðarferð til Prag, tónleikaferð til Írland, kennaraferð til Japan eða á einhvern annan stað sem þig hefur alltaf dreymt um að heimsækja þá er ég til staðar til að hjálpa. 

Ef þú hefur áhuga á að upplifa eitthvað nýtt og skoða heiminn, þá mæli ég 100% með því. Þú munt ekki sjá eftir því! Sendu mér línu og við finnum út úr þessu saman. 

Agnes Geirsdóttir - Ferðaráðgjafi hópa hjá KILROY

Agnes Geirsdóttir - Ferðaráðgjafi hópa hjá KILROY

Eva Dögg Davíðsdóttir

Ferðaráðgjafi fyrir hópa

Það besta sem ég geri er að ferðast! fara á nýjar slóðir, kynnast öðruvísi siðum og menningu, fara í gönguferðir og aðrar afþreyingar til þess að fá enn betri upplifun og smakka fjölbreyttann mat. Ef þú ert á sama máli þá ætti ég klárlega að geta aðstoðað þig við það sem þú ert að leitast eftir fyrir drauma ferðalagið þitt því ferðalög er mitt helsta áhugamál. Reynsla mín og þekking af ýmsum áfangastöðum og ævintýrum getur átt þátt í því að setja saman drauma ferðina þína og gera hana að þínu næsta ævintýri!

Alla mína tíð hef ég haft áhuga á því að ferðast og lenda í ævintýrum. Í fyrstu voru það klassískar ferðir til Evrópu með fjölskyldunni og íþróttaferðir en um leið og ég hafði tök á því að fara lengra þá gerði ég það. Mitt fyrsta langa ferðalag var Asíureisa. Þá fór ég til Tælands, Myanmar, Indlands, Malasíu, Singapore og Indonesíu. Að lokinni reisu flutti ég Peking í Kína og hóf Háskólanám í kínversku. Næst var það Kúba og Bandaríkinn (Hawaii og San Francisco).

Eftir þessi ferðalög og meira nám á Íslandi langaði mig til þess að setjast að í einu landi í langan tíma og gera eitthvað sem gæti nýst mér í framtíðinni. Ég valdi því að stunda nám erlendis. Nám erlendis getur veitt manni tækifæri til þess að að læra nýtt tungumál, kynnast nýrri menningu, stækka tengslanetið og í mínu tilfelli til þess að fá mann til þess að meta sitt eigið líf meira og fá betri hugmynd af því hvað maður vill gera í framtíðinni. Ég skellti mér í nám til Kína í eitt ár og valdi borgina Xiamen því þar skín sólin allt árið eins og í flestum löndum í Suð-Austur Asíu. Á meðan dvölinni stóð gat ég ekki verið mikið kyrr á einum stað því löndin í kring voru bara einfaldlega alltof spennandi! Þannig ég nýtti öll fríin sem ég fékk frá skólanum í að ferðast um Filippseyjar, Víetnam, Hong Kong og auðvitað Kína.

Lærdómurinn og upplifunin sem ég fékk út úr þessum ferðum er ómetanlegur og þess vegna mæli ég 100% með því að ef þig langar út, hvort sem það er í ferðalag eða nám að kýla á það!

Næsti áfangastaður hjá mér verður líklegast Afríka (Marokkó eða Suður Afríka og þar í kring). Ástæðan fyrir því er að ég hef aldrei farið til Afríku, það er „stutt“ að fara t.d. til Marokkó en samt er menningin svo allt önnur og einstök. Það skemmir heldur ekki fyrri að hægt sé að sörfa á báðum stöðum.

Ef þú hefur áhuga á að fara út að skoða heiminn þá mæli ég hiklaust með því að skella sér því þú munt aldrei sjá eftir því! Endilega hafðu samband við mig og við í sameiningu getum sett saman draumaferðina þína.

Eva Dögg - Ferðaráðgjafi hópa hjá KILROY

Eva Dögg - Ferðaráðgjafi hópa hjá KILROY

Hrafnhildur Jóna Hjartardóttir

Ferðaráðgjafi fyrir hópa

Ég hef mikla ást á að ferðast og nýt tækifæri til að skoða heiminn í gegnum starfið mitt. Í áratug hef ég starfað í ferðaþjónustu og öðlast mikla reynslu í að bjóða fyrirtaks þjónustu. Ég er með menntun í viðburðarstjórnun og stjórnun gestamóttöku og ferðaþjónustu sem hefur reynst mér vel.

Uppáhalds áfangastaðurinn minn er Barselóna á Spáni, þar sem ég eyddi hálfu ári í starfsnámi. Næst á mínu ferðaplani er jóga námskeið á Bali eyjunni í Indónesíu, heimsækja „stóra eplið“ New York í Bandaríkjunum og upplifa dýralífið í Kosta Ríka.

Komandi frá Siglufirði, litlum bæ á norðurhluta Íslands, hafa ferðalög svo sannarlega víkkað sjóndeildarhringinn minn og gefið mér tækifæri að kynnast öðrum menningarheimum.

Ertu að leita að einhverju spennandi að gera fyrir þinn hóp? Ég veit ekkert betra en að deila þekkingu minni og ást á ferðalögum – hlakka til að hjálpa þér að skipuleggja þitt næsta ævintýri!

Hrafnhildur Jóna - Ferðaráðgjafi hópa hjá KILROY

Hrafnhildur Jóna - Ferðaráðgjafi hópa hjá KILROY

Guðný Gígja Benediktsdóttir

Ferðaráðgjafi fyrir hópa

Mín helsta ástríða í lífinu er útivist og ferðalög hvort sem það er hér heima eða erlendis. Ég veit fátt betra en að ferðast og fara út fyrir þægindarammann, kynnast nýju fólki, ólíkum menningarheimum, smakka fjölbreyttan mat og prufa nýja hluti. Á ferðalögum lærir maður og upplifir hluti sem maður getur tekið með sér út í lífið og er hvergi hægt að læra annarstaðar.

Áhugi minn á ferðalögum kviknaði snemma, 18 ára fluttist ég til Bandaríkjanna þar sem ég starfaði sem Au-Pair og ári síðar fluttist ég tímabundið til Delhi og heimsótti vini í Ástralíu. Ég fór í mína fyrstu reisu eftir háskólanám þar sem ég heimsótti, Jórdaníu, Suðaustur-Asíu, Kína og Suður-Ameríku. Ég hef farið í road trip um Ameríku, gist í Sahara eyðimörkinni, gengið Inca trailið í Perú, skoðað cherry blossom í Japan og farið í jóga retreat á Kosta Ríka.

Ég er varla komin heim úr ferðalagi þegar ég er byrjuð að plana það næsta. Ég reyni að fara ekki oft á sama staðinn heldur vel yfirleitt eitthvað nýtt og spennandi og í dag dreymir mig um að fara til Tansaníu, ganga upp á Kilamanjaro, fara í Safari í Seringeti þjóðgarðinum og slökun á Zanzibar.

Ég hef mikla ástríðu fyrir að deila sögum og fróðleik af ferðalögum mínum og  ég elska að plana ferðalög hvort sem það sé fyrir mig sjálfa eða einhvern annan. Hafðu endilega samband við mig ef þú vilt fara á vit ævintýranna og við getum sett saman draumaferðina þína í sameiningu

Guðný Gígja - Ferðaráðgjafi hópa hjá KILROY

Guðný Gígja - Ferðaráðgjafi hópa hjá KILROY

Þórir Arnarsson

Sölu- og viðskiptafulltrúi

Ég hef starfað í ferðaþjónustu undanfarin ár og hef nú verið í þrjú ár hjá KILROY. Áður starfaði ég einnig á hóteli og hef því öðlast góða reynslu af ferðaþjónustu frá ólíkum sjónarhornum. Mér finnst sérstaklega skemmtilegt að sjá spennandi ferðahugmyndir taka á sig mynd og verða að eftirminnilegum upplifunum.

Ég fæddist í Kaupmannahöfn en er alinn upp í Reykjavík. Ferðalög hafa alltaf heillað mig og finnst mér fátt skemmtilegra en að heimsækja nýja staði og kynnast ólíkri menningu. Uppáhaldsáfangastaðurinn minn er Ástralía því þar er gott veður, mikil surf-menning og nóg að sjá.

Það eru enn margir staðir á óskalistanum mínum og heilla Asíulöndin mig sérstaklega. Balí, Tæland, Kína og Japan eru meðal þeirra áfangastaða sem mig langar að heimsækja næst.

Það er alltaf jafn gaman að fylgjast með fjölbreyttum ferðahugmyndum verða að veruleika og taka þátt í því að skapa tækifæri fyrir aðra til að upplifa heiminn.

Þórir

Þórir

Viltu aðstoð við að skipuleggja ferð?

Endilega hafðu samband og við aðstoðum þið með skipulagið frá A-Ö!

Birgitta Linda Björnsdóttir

Teymisstjóri

Frá því ég man eftir mér hefur það alltaf verið draumur minn að ferðast um heiminn. Ég veit ekkert skemmtilegra en að fara út í heim, upplifa mismunandi menningarheima, kynnast heimamönnum og öðrum ferðalöngum, smakka nýjan mat og prófa nýja hluti. Í dag hef ég ferðast um rúmlega 60 lönd í 6 heimsálfum og er hvergi nærri hætt.

Ég hef dansað salsa á Kúbu, séð villtar fjallagórillur í Úganda, synt með bleikum höfrungum í Amazon ánni og gist í tréhúsi í miðjum frumskógi Nicaragua. Þá hef ég einnig ferðast ein í 1 ár og fór þá landleiðis frá Mexíkó til Brasilíu, en það að ferðast einn þýðir ekki endilega að maður sé alltaf einn heldur kynnist maður svo ótrúlega mörgum á leiðinni og eignast vini út um allan heim.

Það er svo ótrúlega þroskandi og eflandi að ferðast. Að fara út fyrir þægindaramann og upplifa algjörlega nýja hluti. Ég mæli með því við hvern sem er að skella sér út, það er svo mikið auðveldara en maður heldur og alveg fáránlega skemmtilegt!

Það getur þó verið yfirþyrmandi að plana og ákveða hvert á að fara, hve lengi o.s.frv. því heimurinn er svo stór. Þar getum við aðstoðað þig!

Birgitta Linda - Team Leader hjá KILROY

Birgitta Linda - Team Leader hjá KILROY

Sæmundur Hrafn Linduson

Sölu- og rekstrarstjóri

Hafðu samband við Sæmund, sölu- og rekstrarstjórann okkar, með því að senda póst á sahr@kilroy.is. 

Sæmundur Hrafn Linduson - Rekstrarstjóri KILROY

Sæmundur Hrafn Linduson - Rekstrarstjóri KILROY

Alexandra Friðfinnsdóttir

Starfandi markaðsstjóri

Ertu með hugmynd að samstarfi eða aðra markaðstengda hluti fyrir KILROY? Hafðu þá samband við Alexöndru, markaðsstjórann okkar með því að senda henni póst á afri@kilroy.is.

Alexandra Friðfinnsdóttir - Markaðsstjóri KILROY

Alexandra Friðfinnsdóttir - Markaðsstjóri KILROY

Rannveig Hafsteinsdóttir

Markaðsstjóri

Ertu með hugmynd að samstarfi eða aðra markaðstengda hluti fyrir KILROY? Hafðu þá samband við Rannveigu, markaðsstjórann okkar með því að senda henni póst.

Rannveig Hafsteinsdóttir - Markaðsstjóri KILROY

Rannveig Hafsteinsdóttir - Markaðsstjóri KILROY

Fáðu ferðainnblástur og einstök tilboð beint í pósthólfið þitt

Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu upplýsingar um nýjar ferðir, ferðainnblástur, viðburði og tilboð. Vertu klár í næsta ævintýri!

Hringdu í okkur

+354 517 7010

Opnunartími síma: Mánudaga - föstudaga frá 10:00 til 17:00 og laugardaga frá 13:00 - 17:00

Sendu okkur tölvupóst

travels@kilroy.is

Fyrirspurnum vegna flugmiða sem keyptir eru á netinu er svarað í tölvupósti á help@kilroy.net

Um okkur

Í meira en 30 ár hefur KILROY hjálpað forvitnum ferðalöngum að uppgötva heiminn. Við sérhæfum okkur í að skipuleggja ævintýraleg ferðalög fyrir fólk á öllum aldri, allt frá bakpokaferðalögum og heimsreisum til fjölskylduferða, fyrirtækjaferða og annarra hópferða. Hvert sem ferðalagið liggur eru ferðasérfræðingar okkar hér til að hjálpa þér að láta ferðadraumana rætast.

KILROY Iceland

Norðurturn, 11. hæð 

Hagasmári 3, 201 Kópavogur

 Opnunartími skrifstofu: Mánudaga - föstudaga frá 10:00 til 17:00

Kt. 410911-0350

© 2026 Copyright KILROY Iceland ehf