Kóreskuskólar

Langar þig að læra kóresku?
Áttu þér draum um að læra kóresku? Við bjóðum upp á kóreskunámskeið í Suður-Kóreu.
Af hverju að læra kóresku?
Kóreska hefur notið sífellt meiri vinsælda á síðustu árum, ekki síst vegna alþjóðlegra áhrifa kóreskrar menningar, tónlistar, kvikmynda og sjónvarpsþátta. Að læra kóresku gefur þér tækifæri til að tengjast menningunni á dýpri hátt og skilja betur samfélagið og daglegt líf í Suður-Kóreu.
Auk þess getur kunnátta í kóresku opnað ný tækifæri í námi, starfi og ferðalögum. Hvort sem markmið þitt er að læra nýtt tungumál, kynnast nýrri menningu eða ögra sjálfum þér, þá er kóreska spennandi og verðmæt viðbót við færni þína.

Kynnstu menningu Seoul
Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferð í málaskóla?
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.
Hvar er hægt að fara í kóreskuskóla?
Við bjóðum upp á kóreskunám í Seoul, líflegri og spennandi höfuðborg Suður-Kóreu. Þar færðu tækifæri til að sökkva þér ofan í tungumálið á hverjum degi og æfa það bæði í skólanum og í daglegu lífi borgarinnar.
Í Seoul blandast nútímalegt stórborgarlíf og rík menning á einstakan hátt. Þú getur notað kóreskuna á kaffihúsum, mörkuðum, veitingastöðum og í samskiptum við heimamenn á meðan þú upplifir allt frá K-pop og götumat til sögulegra halla og hefðbundinna hverfa. Námið verður þannig hluti af ævintýrinu og gefur þér einstakt tækifæri til að byggja upp sjálfstraust í tungumálinu á náttúrulegan hátt.

Neon-ljós í Seoul, Suður-Kóreu
Algengar spurningar
Hér eru svör við spurningum sem við fáum oft um málaskóla! Ef þú finnur ekki þína spurningu, endilega hafðu samband og ferðaráðgjafi aðstoðar þig.
Já klárlega! Áður en námið hefst tekur þú stöðupróf sem tryggir að þú sért sett/ur í hóp sem hentar þínu tungumálastigi, hvort sem þú ert byrjandi eða með góða kunnáttu.
Já, margir nemendur fara einir. Málaskólar eru frábær leið til að eignast nýja vini frá öllum heimshornum og kynnast fólki með svipuð áhugamál.
Það fer eftir markmiðum þínum. Hægt er að velja námskeið frá einni viku upp í heilt ár og á sumum stöðum eru einnig í boði annir og lengri námsleiðir.
Á flestum áfangastöðum geturðu valið um fjölbreytta gistimöguleika, til dæmis heimagistingu hjá heimafólki, stúdentagistingu, skólasvæði, gistiheimili eða hótel. Við hjálpum þér að velja og bóka það sem hentar þér best!
Það fer eftir námskeiði. Yfirleitt er hægt að velja á milli 20 og 32 kennslustunda á viku, eftir því hversu mikla áherslu þú vilt leggja á námið.
Kennslan er fjölbreytt og gagnvirk, með áherslu á að efla tal, hlustun, lestur og ritun. Allir kennarar eru menntaðir og allt kennsluefni er innifalið í náminu.
Málaskólar eru í boði fyrir mismunandi aldurshópa og markmið. Það eru t.d. námskeið fyrir ungmenni, háskólanema, fullorðna og jafnvel sérstök 50+ námskeið á völdum áfangastöðum.
Við aðstoðum þig að finna tungumálanám sem hentar þér!
Já. Við getum aðstoðað þig við að skipuleggja alla ferðina, ekki bara námið. Við hjálpum þér að finna hentug flug, velja gistingu sem hentar þínum þörfum og veitum ráðgjöf um áfangastaðinn, skólann og dvölina. Þannig geturðu einbeitt þér að því að njóta upplifunarinnar og læra tungumálið.
Sýnir 4 / 8 niðurstöður
Þú ættir að fara í málaskóla erlendis ef þú...
...vilt læra eitthvað nýtt
Sameinaðu tungumálanám og ferðalög. Ferðaráðgjafar okkar hjálpa þér að setja saman upplifun þar sem þú lærir tungumálið og kynnist nýrri menningu.
...vilt byggja upp sjálfstraust
Öðlastu sjálfstraust til að tjá þig, taka frumkvæði og takast á við nýjar aðstæður á eigin spýtur.
...vilt eignast vini frá öllum heimshornum
Lærðu tungumál í alþjóðlegu umhverfi, kynnstu nýrri menningu, eignastu vini frá öllum heimshornum og settu kunnáttuna strax í notkun utan kennslustofunnar.
Viltu læra annað tungumál erlendis?
Skoðaðu tungumálin sem þú getur lært í málaskóla erlendis.




















