Enskuskólar

Langar þig að læra ensku?
Hvort sem þú ert byrjandi eða lengra komin/n þá er frábær ákvörðun að fara erlendis í enskuskóla. Við bjóðum upp á enskunám málaskólum víðsvegar um heiminn.
Af hverju að læra ensku?
Að læra ensku, eða efla sig enn frekar í henni, opnar ótal dyr að alþjóðlegum tækifærum bæði í námi og starfi. Góð enskukunnátta getur gert þér auðveldara fyrir að kynnast nýrri menningu, að ferðast og skapa og byggja upp alþjóðleg tengsl.
EF býður upp á ýmisleg enskunámskeið, bæði fyrir byrjendur sem og lengra komna. Hægt er að fara í enskunám frá 2 vikum og allt að heilu ári, úti um allan heim. EF málaskóli býður upp á sumarnámskeið, 50 ára+ námskeið, ungmennanámskeið fyrir 13-15 ára, námskeið fyrir kennara, háskólanema og námskeið fyrir grunnpróf í ensku fyrir inngöngu í Bandaríska háskóla eins og TOEFL, TOEIC, IELTS og GMAT svo fátt eitt sé nefnt.

Upplifðu að búa í nýrri borg og kynnast menningu
Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferð í málaskóla?
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.
Hvar er hægt að fara í enskuskóla?
Dreymir þig um að læra ensku í öðru landi? Við bjóðum upp á enskunám í fjölbreyttum og spennandi áfangastöðum um allan heim. Hvort sem þú vilt upplifa stórborgarlíf í London eða New York, njóta strandlífs á Möltu eða í Ástralíu, eða sökkva þér í breska háskólabæi á borð við Oxford og Cambridge, þá finnurðu áfangastað sem hentar þér.
Í enskuskóla erlendis lærir þú ekki aðeins tungumálið í kennslustofunni, heldur notar það á hverjum degi í raunverulegum aðstæðum. Þannig nærðu hraðari framförum á sama tíma og þú kynnist nýrri menningu, eignast vini frá öllum heimshornum og safnar ógleymanlegri reynslu.
Ástralía: Málaskóli hinumegin á hnettinum!
Staðsetningar
Við bjóðum upp á enskuskóla í:
Englandi: London, Oxford, Cambridge, Manchester, Brighton, Bournemouth, Eastbourne og Torquay
Írlandi: Dublin
Sameinuðu arabísku furstadæmunum: Dubaí
Bandaríkjunum: New York, Miami Beach, Santa Barbara, Los Angeles, San Diego og Honolulu
Kanada: Toronto og Vancouver
Ástralíu: Sydney og Perth
Nýja-Sjálandi: Auckland
Möltu: St. Julian's
Suður-Afríku: Cape Town
Sama hvort markmið þitt er að bæta enskuna fyrir nám, starf eða ferðalög, þá getum við hjálpað þér að finna rétta skólann og áfangastaðinn fyrir þig.
Uppgvötaðu New York borg í málaskóla
Algengar spurningar
Hér eru svör við spurningum sem við fáum oft um málaskóla! Ef þú finnur ekki þína spurningu, endilega hafðu samband og ferðaráðgjafi aðstoðar þig.
Já klárlega! Áður en námið hefst tekur þú stöðupróf sem tryggir að þú sért sett/ur í hóp sem hentar þínu tungumálastigi, hvort sem þú ert byrjandi eða með góða kunnáttu.
Já, margir nemendur fara einir. Málaskólar eru frábær leið til að eignast nýja vini frá öllum heimshornum og kynnast fólki með svipuð áhugamál.
Það fer eftir markmiðum þínum. Hægt er að velja námskeið frá einni viku upp í heilt ár og á sumum stöðum eru einnig í boði annir og lengri námsleiðir.
Á flestum áfangastöðum geturðu valið um fjölbreytta gistimöguleika, til dæmis heimagistingu hjá heimafólki, stúdentagistingu, skólasvæði, gistiheimili eða hótel. Við hjálpum þér að velja og bóka það sem hentar þér best!
Það fer eftir námskeiði. Yfirleitt er hægt að velja á milli 20 og 32 kennslustunda á viku, eftir því hversu mikla áherslu þú vilt leggja á námið.
Kennslan er fjölbreytt og gagnvirk, með áherslu á að efla tal, hlustun, lestur og ritun. Allir kennarar eru menntaðir og allt kennsluefni er innifalið í náminu.
Málaskólar eru í boði fyrir mismunandi aldurshópa og markmið. Það eru t.d. námskeið fyrir ungmenni, háskólanema, fullorðna og jafnvel sérstök 50+ námskeið á völdum áfangastöðum.
Við aðstoðum þig að finna tungumálanám sem hentar þér!
Já. Við getum aðstoðað þig við að skipuleggja alla ferðina, ekki bara námið. Við hjálpum þér að finna hentug flug, velja gistingu sem hentar þínum þörfum og veitum ráðgjöf um áfangastaðinn, skólann og dvölina. Þannig geturðu einbeitt þér að því að njóta upplifunarinnar og læra tungumálið.
Sýnir 4 / 8 niðurstöður
Þú ættir að fara í málaskóla erlendis ef þú...
...vilt læra eitthvað nýtt
Sameinaðu tungumálanám og ferðalög. Ferðaráðgjafar okkar hjálpa þér að setja saman upplifun þar sem þú lærir tungumálið og kynnist nýrri menningu.
...vilt byggja upp sjálfstraust
Öðlastu sjálfstraust til að tjá þig, taka frumkvæði og takast á við nýjar aðstæður á eigin spýtur.
...vilt eignast vini frá öllum heimshornum
Lærðu tungumál í alþjóðlegu umhverfi, kynnstu nýrri menningu, eignastu vini frá öllum heimshornum og settu kunnáttuna strax í notkun utan kennslustofunnar.
Viltu læra annað tungumál erlendis?
Skoðaðu tungumálin sem þú getur lært í málaskóla erlendis.



















