NÁMSPÁSA

Hannaðu þína fullkomnu námspásu
Farðu lengra, lærðu eitthvað nýtt og upplifðu ævintýri sem þú gleymir aldrei með námspásu sem er sniðin að markmiðum þínum, áhugamálum og fjárhagsáætlun.
Ferðir sem þú getur farið í í námspásunni þinni
Meira en ferðalag, þetta er tækifæri til að vaxa
Námspása eða Gap Year er tækifæri til að stíga út fyrir þægindarammann og uppgötva hvað þú getur. Hvort sem þú ert í sjálfboðastarfi erlendis, lærir nýtt tungumál eða ferðast milli landa, þá styrkir hver upplifun sjálfstraustið og sjálfstæðið þitt. Þú kemur heim með ógleymanlegar minningar, víðara sjónarhorn og hæfni sem nýtist bæði í einkalífi og framtíðarstarfi. Það besta? Það er engin ein rétt leið. Þú mótar námspásuna þína sjálf/ur, hvort sem þú vilt ævintýri, nýja reynslu eða sveigjanleika.
Eignastu vini í námspásunni þinni
Farðu í köfun í námspásunni þinni
Skoðaðu heiminn í námspásunni þinni
Kynnstu nýju fólki í námspásunni þinni
Skoðaðu heiminn í námspásunni þinni
Skoðaðu heiminn í námspásunni þinni
Vinna með dýrum í námspásunni þinni
Áfangastaðir fyrir námspásuna þína
Þarftu aðstoð við að skipuleggja námspásuferð?
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.
Hvað geturðu gert í námspásu erlendis?
Námspása er tækifæri til að safna reynslu, kynnast nýjum menningarheimum og gera eitthvað sem veitir þér innblástur. Hvort sem þú vilt ferðast, læra nýja færni eða stíga út fyrir þægindarammann eru ótal leiðir til að nýta tímann á þinn hátt.
Bakpokaferðalög
Bakpokaferðalög eru klassísk leið til að upplifa heiminn á eigin forsendum. Kannaðu framandi áfangastaði, kynnstu fólki alls staðar að úr heiminum og skapaðu minningar sem endast ævilangt. Þú getur ferðast ein/n, með vini eða slegist í hóp með öðrum ferðalöngum í Tripmates hópferð.
Sjálfboðastarf
Sameinaðu ferðalög og tilgangsríka upplifun. Taktu þátt í verkefnum tengdum náttúruvernd, samfélagsþróun eða kennslu og fáðu einstaka innsýn í daglegt líf á áfangastaðnum. Sjálfboðastarf er frábær leið til að kynnast bæði staðnum og fólkinu sem þar býr.
Lærðu nýtt tungumál
Að læra tungumál í því landi þar sem það er talað er ein áhrifaríkasta leiðin til að ná tökum á því. Spænskunám erlendis gefur þér tækifæri til að sökkva þér ofan í menninguna, kynnast alþjóðlegum hópi nemenda og bæta við þig kunnáttu sem nýtist um ókomin ár. Margir velja líka að sameina námið við sjálfboðastarf, brimbrettanám eða aðra upplifun.
Prófaðu eitthvað nýtt
Námspása þarf ekki að fylgja ákveðinni formúlu. Þú getur lært að kafa, tekið brimbrettanámskeið, farið í fjallgöngur, stundað jóga eða ferðast milli landa og menningarheima. Það er einmitt frelsið til að velja eigin leið sem gerir námspásu að svo einstöku ævintýri.
Ferðastu á þínum eigin forsendum
Hvort sem markmiðið er að sjá fleiri lönd, öðlast nýja reynslu eða taka sér tíma til að finna út hvað þú vilt gera næst, þá getur námspása verið ein verðmætasta fjárfesting sem þú gerir í sjálfum þér. Þú ákveður hvert ferðinni er heitið og hvernig hún lítur út.
Lærðu að surfa í Ástralíu
Sjálfboðastarf í Kosta Ríka
Lærðu jóga
Upplifanir sem gera námspásuna eftirminnilega
Upplifanir sem fylgja þér áfram
Það besta við námspásu eru ekki bara staðirnir sem þú heimsækir heldur upplifanirnar sem þú safnar á leiðinni. Einn mánuðinn gætir þú verið að vinna með dýrum, þann næsta að læra að surfa, ganga um fjöll eða skoða nýja borg. Hver áskorun, árangur og tengsl móta ferðalagið þitt. Námspásan verður að minningum, hæfni og sögum sem fylgja þér út lífið.
Safari í námspásu
Að skoða í námspásu
Lærðu að surfa í námspásunni
Dýr í námspásu
Marokkó námspása
Algengar spurningar
Allt sem þú þarft að vita um að skipuleggja, bóka og nýta námspásuævintýrið þitt til fulls.
Margir ferðalangar taka námspásu á milli menntaskóla og háskóla og áður en þeir hefja starfsferilinn. Besti tíminn fer algjörlega eftir þínum markmiðum, plönum og hvað hentar þér.
Tækifærin eru endalaus. Þú getur ferðast sjálfstætt, tekið þátt í sjálfboðastarfi erlendis, lært nýtt tungumál, tekið þátt í skipulögðum ævintýrum eða blandað öllu saman í eina ferð.
Námspása þarf alls ekki að vara í 12 mánuði. Hvort sem þú hefur nokkrar vikur, nokkra mánuði eða heilt ár, þá geturðu sett saman ferðaplan sem passar við þinn tíma og fjárhag. Við getum aðstoðað þig við allt skipulag!
Ekki endilega. Sumir kjósa að skipuleggja allt fyrirfram en aðrir vilja ferðast með meiri sveigjanleika. Margar námspásuferðir bjóða upp á blöndu af skipulögðum upplifunum og sjálfstæðum ferðalögum.
Námspása gefur þér tækifæri til að stíga út úr rútínunni og upplifa eitthvað nýtt. Þú getur til dæmis:
Ferðast um heiminn.
Kynnst nýju fólki og menningarheimum.
Byggt upp sjálfstraust og sjálfstæði.
Lært nýja hluti um heiminn og sjálfa/n þig.
Safnað minningum fyrir lífstíð.
Fundið nýjan innblástur fyrir framtíðina.
Upplifað frelsi og ævintýri á þínum forsendum.
Sýnir 4 / 5 niðurstöður
Þú ættir að taka námspásu ef þig...
...langar að sjá meira af heiminum
Upplifðu ný lönd, kynnstu ólíkum menningarheimum og skapaðu minningar sem ná langt út fyrir hefðbundna sumarfríið.
...langar að styrkja sjálfstraustið
Vertu sjálfstæðari, stígðu út fyrir þægindarammann og öðlastu dýrmæta reynslu með nýjum upplifunum.
...langar að læra eitthvað nýtt
Hvort sem það er tungumál, hagnýt færni eða ný sýn á lífið, þá býður ferðalag upp á endalaus tækifæri til persónulegs vaxtar.



















































































