Ferð

SAFARÍ OG SÓLARSTRÖND

Vinir í safarí í Afríku
Um ferð

Fullkomin blanda af spennu og slökun!

Þessi reisa er fyrir þau sem vilja upplifa mögnuð ævintýri en líka liggja á ströndinni þess á milli: Fullkomin blanda af spennu og slökun! Skemmtilegir áfangastaðir í Afríku og Asíu sem bjóða upp á fjölbreytta náttúru og framandi menningu.

ATH: Þetta er ekki ákveðin ferð með föstum brottfarardagsetningum heldur ferðatillaga. Það er undir þér komið hvort þú vilt fara í nákvæmlega þessa ferð, bæta henni við ferðina þína eða gera hreinlega eitthvað allt annað. Við getum hjálpað þér að sérsníða ferðina þína nákvæmlega eins og þú vilt hafa hana.

Hápunktar ferðarinnar

Sérsniðnar ferðir

Byrjaðu með ferðatillögu sem við höfum sett saman og aðlagaðu hana að þínum þörfum með aðstoð ferðasérfræðinga okkar.

84 dagar

frá

496.000,-

/á mann

Innifalið

Flug

Fallegir litir í Suður-Afríku
Safarí ævintýri í Masai Mara
Skoðaðu mörgæsir í Suður-Afríku
Sólsetur og safarí
Lærðu að surfa í Suður-Afríku

Fljótleg og einföld bókun hjá KILROY

1

Hafðu samband

Segðu okkur frá ferðaplönunum þínum, hugmyndum og markmiðum.

2

Deildu plönunum þínum

Við kynnumst þér og því sem þú ert að leita að.

3

Fínstillum smáatriðin

Við mótum þína fullkomnu ferð saman.

4

Bókaðu áhyggjulaus

Við sjáum um smáatriðin svo þú getir einbeitt þér að ævintýrinu.

5

Vertu klár!

Pakkaðu töskunum og byrjaðu að telja niður.

Dagskrá

Tillaga að ferðaáætlun

Þessi tillaga að ferðalagi er aðeins byrjunin. Fínpússaðu leiðina, upplifanirnar og smáatriðin með sérfræðingum okkar og gerðu ferðina algjörlega að þinni.

Vika 1 / 12
Kameldýr í Dubai
Safarí í Suður-Afríku
Sjáðu ,,the big 5'' í Masai Mara
Lærðu að surfa á Sri Lanka
Prófaðu að ferðast með Tuk Tuk í Tælandi

Kameldýr í Dubai

Safarí í Suður-Afríku

Sjáðu ,,the big 5'' í Masai Mara

Lærðu að surfa á Sri Lanka

Prófaðu að ferðast með Tuk Tuk í Tælandi

Vika 1: Dúbaí

Ferðin hefst í stórborginni Dúbaí. Þar getur þú skoðað hæstu byggingu heims og fleiri ótrúlega skýjakljúfa. Ef þér finnst gaman að versla þarftu að fara í hið risastóra Dubai Mall en þar finnur þú allar helstu tískubúðirnar, allskonar lúxusmerki og eitt stærsta fiskabúr í heimi.

Sandur og sól! Langar þig að fara um eyðimörkina á fjórhjóli, hitta kameldýr og upplifa einstaka matarmenningu? Við mælum með!

Í hnotskurn

Verð og innifalið

Upplýsingar um verð

Fráverð á mann, með flugi fram og til baka

Hvað er innifalið í þessari ferð?

  • Allir flugmiðar

  • ISIC kort

  • Bókunargjöld

  • Þinn eigin ferðaráðgjafi

  • Gisting

  • Staðbundnar samgöngur

  • Skipulagðar ævintýraferðir

  • Ferðatrygging (en við getum aðstoðað þig með það!)

Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferðina?

Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.

FAQ

Algengar spurningar

Ert þú að skipuleggja heimsreisu? Hér eru svör við algengustu spurningunum um heimsreisur!

Já klárlega! Þetta er bara ferðatillaga og síðan sérsníðum við ferðina 100% að þér. Hafðu samband við okkur og við hjálpum þér að skipuleggja!

Þessi heimsreisa spannar mörg loftslagssvæði og því er hægt að fara í þessa ferð á ýmsum tímum ársins. Við hjálpum þér að velja besta tímann út frá þeim löndum sem þú vilt heimsækja og hvers konar upplifun þú ert að leita að.

Já, algjörlega. Þetta er ferðatillaga en ekki ferð með föstum dagsetningum. Þú getur breytt leiðinni, gistingu, lengd stoppa og bætt við eða sleppt áfangastöðum eftir því sem hentar þér. Bókaðu fría ferðaráðgjöf hjá okkur og ferðaráðgjafi hjá KILROY hjálpar þér að skipuleggja ferð sem hentar þér!

Já, algjörlega. Þessi reisa hentar vel bæði þeim sem vilja ferðast ein og þeim sem vilja hitta annað fólk á leiðinni. Áfangastaðir í Afríku og Asíu eru vinsælir meðal bakpokaferðalanga og þar eru fjölmörg tækifæri til að kynnast öðrum á hostelum, í skipulögðum dagsferðum og við vinsæla ferðamannastaði. Ef þú vilt meiri félagsskap geturðu líka tekið þátt í hópferð á hluta ferðarinnar og eignast nýja ferðafélaga á leiðinni.

Já. Asía er einn vinsælasti áfangastaður heims fyrir bakpokaferðalanga og því eru miklar líkur á að þú hittir fólk alls staðar að úr heiminum, hvort sem það er á hostelum, í dagsferðum eða á ströndum.

Já, við getum bætt við safaríferðum, köfun, gönguferðum, matarupplifunum og alls konar afþreyingu eftir áhugasviði.

Sendu okkur fyrirspurn og ferðaráðgjafi fer yfir hugmyndirnar með þér og setur saman ferð sem hentar þínum draumum!

Sýnir 4 / 7 niðurstöður

Fáðu ferðainnblástur og einstök tilboð beint í pósthólfið þitt

Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu upplýsingar um nýjar ferðir, ferðainnblástur, viðburði og tilboð. Vertu klár í næsta ævintýri!

Hringdu í okkur

+354 517 7010

Opnunartími síma: Mánudaga - föstudaga frá 10:00 til 17:00 og laugardaga frá 13:00 - 17:00

Sendu okkur tölvupóst

travels@kilroy.is

Fyrirspurnum vegna flugmiða sem keyptir eru á netinu er svarað í tölvupósti á help@kilroy.net

Um okkur

Í meira en 30 ár hefur KILROY hjálpað forvitnum ferðalöngum að uppgötva heiminn. Við sérhæfum okkur í að skipuleggja ævintýraleg ferðalög fyrir fólk á öllum aldri, allt frá bakpokaferðalögum og heimsreisum til fjölskylduferða, fyrirtækjaferða og annarra hópferða. Hvert sem ferðalagið liggur eru ferðasérfræðingar okkar hér til að hjálpa þér að láta ferðadraumana rætast.

KILROY Iceland

Norðurturn, 11. hæð 

Hagasmári 3, 201 Kópavogur

 Opnunartími skrifstofu: Mánudaga - föstudaga frá 10:00 til 17:00

Kt. 410911-0350

© 2026 Copyright KILROY Iceland ehf