SUÐUR-AMERÍSKI DRAUMURINN

Bucket-lista ævintýri í Suður-Ameríku
Suður-Ameríku veisla er reisa fyrir þau sem vilja upplifa skemmtilegu ævintýrin sem Suður-Ameríka hefur upp á að bjóða. Er það á bucket-listanum þínum að labba að hinu fræga Machu Picchu í Perú, að taka mynd af þér á salteyðimörkinni í Bólivíu eða fara á Carnival í Rio de Janeiro? Láttu drauma þína rætast með hjálp frá okkur hjá KILROY!
ATH: Þetta er ekki ákveðin ferð með föstum brottfarardagsetningum heldur ferðatillaga. Það er undir þér komið hvort þú vilt fara í nákvæmlega þessa ferð, bæta henni við ferðina þína eða gera hreinlega eitthvað allt annað. Við getum hjálpað þér að sérsníða ferðina þína nákvæmlega eins og þú vilt hafa hana.
Hápunktar ferðarinnar
Sérsniðnar ferðir
Byrjaðu með ferðatillögu sem við höfum sett saman og aðlagaðu hana að þínum þörfum með aðstoð ferðasérfræðinga okkar.




Fljótleg og einföld bókun hjá KILROY
1
Hafðu samband
Segðu okkur frá ferðaplönunum þínum, hugmyndum og markmiðum.
2
Deildu plönunum þínum
Við kynnumst þér og því sem þú ert að leita að.
3
Fínstillum smáatriðin
Við mótum þína fullkomnu ferð saman.
4
Bókaðu áhyggjulaus
Við sjáum um smáatriðin svo þú getir einbeitt þér að ævintýrinu.
5
Vertu klár!
Pakkaðu töskunum og byrjaðu að telja niður.
Tillaga að ferðaáætlun
Þessi tillaga að ferðalagi er aðeins byrjunin. Fínpússaðu leiðina, upplifanirnar og smáatriðin með sérfræðingum okkar og gerðu ferðina algjörlega að þinni.
Kannaðu Kólumbíu
Selir á Galapagos-eyjum
Machu Picchu í Perú
Magnað landslag í Bólivíu
Magnaða Argentína
Kíktu á Christ Redeemer í Ríó
Vika 1: Kólumbía
Kólumbía býr yfir mikilli sögu og landslagið svíkur engan. Stórborgir Kólumbíu koma skemmtilega á óvart þar sem þær hafa upp á ólíka hluti að bjóða. Í Kólumbíu er að finna hita og snjó, pálmatré, villtar ár, lítil þorp og stórborgir, fornar rústir Maya indjánana og arkitektúr spænsku landvinningarmannanna, fátækt og ríkidæmi, litla salsabari og stóra teknóklúbba. Kólumbía býður upp á allt!
Í hnotskurn
Upplýsingar um verð
Fráverð á mann, með flugi fram og til baka
Hvað er innifalið í þessari ferð?
Allir flugmiðar
ISIC kort
Bókunargjöld
Þinn eigin ferðaráðgjafi
Gisting
Staðbundnar samgöngur
Skipulagðar ævintýraferðir
Ferðatrygging (en við getum aðstoðað þig með það!)
Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferðina?
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.
Algengar spurningar
Ert þú að skipuleggja heimsreisu? Hér eru svör við algengustu spurningunum um heimsreisur!
Kólumbía, Ekvador, Perú, Bólivía, Argentína og Brasilía! Ferðin er þó sveigjanleg og við getum bætt við áfangastöðum eða tekið út lönd eftir þínum óskum og ferðastíl.
Þessi heimsreisa hentar vel allt árið um kring þar sem árstíðir og veður eru mismunandi eftir löndum og svæðum. Margir kjósa að ferðast á tímabilinu frá apríl til nóvember, þegar aðstæður eru oft góðar til að upplifa helstu hápunkta ferðarinnar, eins og Machu Picchu, Salar de Uyuni og Rio de Janeiro.
Já, þúsundir ferðalanga heimsækja Suður-Ameríku á hverju ári án vandræða. Eins og annars staðar í heiminum er þó mikilvægt að sýna almenna aðgát, sérstaklega í stórborgum og á fjölförnum ferðamannastöðum. Með góðum undirbúningi og almennri skynsemi geturðu ferðast um heimsálfuna á öruggan og ánægjulegan hátt.
Já klárlega! Þetta er bara ferðatillaga og síðan sérsníðum við ferðina 100% að þér. Hafðu samband við okkur og við hjálpum þér að skipuleggja!
Já, algjörlega. Þetta er ferðatillaga en ekki ferð með föstum dagsetningum. Þú getur breytt leiðinni, gistingu, lengd stoppa og bætt við eða sleppt áfangastöðum eftir því sem hentar þér. Bókaðu fría ferðaráðgjöf hjá okkur og ferðaráðgjafi hjá KILROY hjálpar þér að skipuleggja ferð sem hentar þér!
Já, algjörlega. Þessi reisa hentar vel bæði þeim sem vilja ferðast ein og þeim sem vilja hitta annað fólk á leiðinni. Áfangastaðir í Afríku og Asíu eru vinsælir meðal bakpokaferðalanga og þar eru fjölmörg tækifæri til að kynnast öðrum á hostelum, í skipulögðum dagsferðum og við vinsæla ferðamannastaði. Ef þú vilt meiri félagsskap geturðu líka tekið þátt í hópferð á hluta ferðarinnar og eignast nýja ferðafélaga á leiðinni.
Já, við getum bætt við safaríferðum, köfun, gönguferðum, matarupplifunum og alls konar afþreyingu eftir áhugasviði.
Sendu okkur fyrirspurn og ferðaráðgjafi fer yfir hugmyndirnar með þér og setur saman ferð sem hentar þínum draumum!
Sýnir 4 / 8 niðurstöður
Við höldum að þú gætir líka haft gaman af...
Vantar þig meiri innblástur? Við erum með fleiri svipaðar ferðir fyrir þig að skoða.

























