Ferð

ÁSTRALÍA, NÝJA-SJÁLAND OG FIJI

Sólseturs-tubing á Fídjí
Um ferð

Uppgötvaðu það besta af Eyjaálfu

Þessi ferð er ævintýri á nýjum slóðum í Eyjaálfu. Í um 2 mánuði (þú ræður auðvitað lengd ferðarinnar) færð þú að upplifa það besta sem austurströnd Ástralíu hefur upp á að bjóða, ótrúleg landslag Nýja-Sjálands og paradísarstrendur Fiji. 

Hápunktar ferðarinnar

Sérsniðnar ferðir

Byrjaðu með ferðatillögu sem við höfum sett saman og aðlagaðu hana að þínum þörfum með aðstoð ferðasérfræðinga okkar.

60 dagar

frá

789.111,-

/á mann

miðað við 2 með flugi inniföldu

Innifalið

Flug

Gisting

Samgöngur á staðnum

Afþreyingar

Heimsæktu Opera House í Sydney, Ástralíu
Suðrænar eyjar á Fídjí
Farðu að kafa í Great Barrier Reef
Njóttu ótrúlegs landslags í Nýja-Sjálandi
Gönguleiðir í Nýja-Sjálandi

Fljótleg og einföld bókun hjá KILROY

1

Hafðu samband

Segðu okkur frá ferðaplönunum þínum, hugmyndum og markmiðum.

2

Deildu plönunum þínum

Við kynnumst þér og því sem þú ert að leita að.

3

Fínstillum smáatriðin

Við mótum þína fullkomnu ferð saman.

4

Bókaðu áhyggjulaus

Við sjáum um smáatriðin svo þú getir einbeitt þér að ævintýrinu.

5

Vertu klár!

Pakkaðu töskunum og byrjaðu að telja niður.

Dagskrá

Tillaga að ferðaáætlun

Þessi tillaga að ferð er bara byrjunin. Fínstilltu leiðina, upplifanirnar og smáatriðin með sérfræðingum okkar til að gera ferðina að þinni eigin.

Vika 1 / 8
Farðu að kafa á Great Barrier Reef
Taktu stopp á Fraser Island
Lærðu að surfa í Ástralíu
Uppgötvaðu hvað Sydney hefur upp á að bjóða
Njóttu Nýja-Sjálands á þínum forsendum
Hvítar sandstrendur á Fiji

Farðu að kafa á Great Barrier Reef

Taktu stopp á Fraser Island

Lærðu að surfa í Ástralíu

Uppgötvaðu hvað Sydney hefur upp á að bjóða

Njóttu Nýja-Sjálands á þínum forsendum

Hvítar sandstrendur á Fiji

Vika 1: Cairns: Upplifðu heiminn neðansjávar

Þú kemur til Cairns sem er fyrsta stoppið í þessari ferðatillögu. Við höfum bókað fyrir þig fyrstu 3 næturnar á virkilega flottu hosteli, þar sem þú munt geta hitt fullt af öðrum bakpokaferðalöngum frá öllum heimshornum. Þegar þú ert búin/n að koma þér fyrir er kominn tími fyrir þig til að skoða þig um! Auðvitað er flott að skoða borgina sjálfa, en við getum líka mælt með því að þú heimsækir Cape Tribulation eða Daintree þjóðgarðinn í nágrenninu. Eftir 3 daga er kominn tími fyrir þig að kanna heiminn undir yfirborðinu þar sem við höfum bætt við 3 dögum af köfun. Ef þú ert ekki með köfunarréttindi þá getum við hjálpað þér að útvega þér það. Frá Cairns liggur leiðin svo suður til Brisbane með 7 daga rútupassanum þínum.

Í hnotskurn

Verð og innifalið

Upplýsingar um verð

Fráverð á mann, með flug til og frá, miðað við tvo ferðalanga sem ferðast saman

Hvað er innifalið í þessari ferð?

  • Flug til Cairns

  • 3 nætur á hosteli í Cairns

  • 3 dagar af fundiving

  • 7 daga buspass frá Cairns til Brisbane

  • 6 daga surf ævintýri frá Brisbane til Sydney

  • 3 nætur á hostel í Sydney

  • Flug frá Sydney til Auckland

  • Rútupassi frá Auckland til Christchurch (21 dagar)

  • Flug frá Christchurch til Nadi (Fiji)

  • 2 nætur á hosteli í Nadi

  • 7 daga eyjahopp ævintýri á Fiji með gistingu innifalinni

  • 2 nætur á hosteli í Nadi

  • Flug heim frá Nadi

  • Öll bókunargjöld

  • Þinn eigin ferðasérfræðingur

  • Ferðatrygging (við getum aðstoðað þig með það!)
  • Bólusetningar
  • Máltíðir (nema þær sem eru innifaldar í sumum ævintýraferðum)
  • Skyldumáltíðir á island hopping á Fiji (u.þ.b. 200 EUR)

  • Tandem skydive í Cairns
  • Daintree Rainforest og Cape Tribulation dagsferð
  • Outer Great Barrier Reef dagsferð
  • 5 daga Learn to Dive námskeið í Cairns
  • 3 daga K'Gari ​4WD tag-Along ferð
  • Camper eða bílaleiga í Ástralíu og/eða Nýja-Sjálandi
  • Fundives í Yasawa eða Pacific Harbour, Fiji

Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferðina?

Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.

FAQ

Algengar spurningar

Ertu að plana stóra ferð yfir Ástralíu, Nýja-Sjáland og Fiji? Hér eru svör við nokkrum af þeim spurningum sem við fáum oftast.

Algjörlega! Þessi ferð er hugsuð til að veita innblástur, en hún er alveg sveigjanleg. Viltu eyða meiri tíma á einum stað, bæta við fleiri stoppum eða setja inn aukalega ævintýri? Ferðasérfræðingur KILROY hjálpar þér að búa til ferð sem passar við þinn fjárhag, ferðastíl og bucket lista.

Þú getur farið í þessa ferð allt árið, en almennt er best að ferðast þangað frá október til apríl. Á þessum mánuðum færðu hlýtt veður á austurströnd Ástralíu, vor og sumar í Nýja-Sjálandi eru frábær fyrir gönguferðir og road trip, og Fiji býður upp á sól og suðrænt hitastig.

Að ferðast utan þessa tímabils er líka góð hugmynd. Ástralía og Fiji eru hlýir áfangastaðir allt árið, en Nýja-Sjáland sýnir fallega haustliti frá mars til maí og snjófjöll yfir veturinn. Sama hvenær þú ætlar að ferðast þá geta  ferðasérfræðingar KILROY hjálpað þér að finna bestu leiðina og aðlaga ferðina að árstíðinni.

Við mælum með að gefa þér um tvo mánuði til að njóta landanna þriggja á afslappaðan hátt. Ef þú hefur takmarkaðan tíma er það ekkert mál, við getum stytt ferðina eða aðlagað leiðina að þínum áætlunum.

Gisting er innifalin á helstu áfangastöðum til að auðvelda þér ferðalagið. Þú gistir á vinsælum hostelum þar sem auðvelt er að kynnast öðrum ferðalöngum. Viltu frekar hótel? Við finnum lausn sem hentar þér.

Já! Í bæði Ástralíu og Nýja-Sjálandi getur þú skipt út rútupassa fyrir bílaleigubíl eða campervan ef þú vilt kanna á eigin vegum. Við hjálpum þér að finna það sem hentar þínum ferðastíl best.

Alls ekki. Surf ævintýrið sem er innifalið hentar byrjendum og ef þú ert ekki með köfunarréttindi getum við auðveldlega bætt köfunarnámskeiði við ferðina áður en þú ferð í Great Barrier Reef ævintýrið.

Já! Í ferðinni er innifalið 7 daga eyjahopp á Fiji með gistingu. Þú ferðast á milli suðræna eyja, siglir með öðrum bakpokaferðalöngum og upplifir hið afslappaða eyjalíf sem Fiji er þekkt fyrir. Athugaðu að greiða þarf skyldumáltíðapakka á staðnum.

Að skipuleggja ferð um mörg lönd getur verið flókið, en við gerum það einfalt. Við sameinum flug, samgöngur, gistingu og einstakar upplifanir í eina ferð og veitum þér persónulega ráðgjöf bæði fyrir og á meðan á ferðinni stendur.

Sýnir 4 / 8 niðurstöður

Fáðu ferðainnblástur og einstök tilboð beint í pósthólfið þitt

Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu upplýsingar um nýjar ferðir, ferðainnblástur, viðburði og tilboð. Vertu klár í næsta ævintýri!

Hringdu í okkur

+354 517 7010

Opnunartími síma: Mánudaga - föstudaga frá 10:00 til 17:00 og laugardaga frá 13:00 - 17:00

Sendu okkur tölvupóst

travels@kilroy.is

Fyrirspurnum vegna flugmiða sem keyptir eru á netinu er svarað í tölvupósti á help@kilroy.net

Um okkur

Í meira en 30 ár hefur KILROY hjálpað forvitnum ferðalöngum að uppgötva heiminn. Við sérhæfum okkur í að skipuleggja ævintýraleg ferðalög fyrir fólk á öllum aldri, allt frá bakpokaferðalögum og heimsreisum til fjölskylduferða, fyrirtækjaferða og annarra hópferða. Hvert sem ferðalagið liggur eru ferðasérfræðingar okkar hér til að hjálpa þér að láta ferðadraumana rætast.

KILROY Iceland

Norðurturn, 11. hæð 

Hagasmári 3, 201 Kópavogur

 Opnunartími skrifstofu: Mánudaga - föstudaga frá 10:00 til 17:00

Kt. 410911-0350

© 2026 Copyright KILROY Iceland ehf