LANGSTÖKKVARINN

Þrjár heimsálfur og endalaus ævintýri
Í þessari heimsreisu færð þú tækifæri til þess að upplifa marga ólíka áfangastaði í Asíu, Eyjaálfu og Bandaríkjunum. Fullkomin heimsreisa fyrir þau sem vilja hafa flugin í lágmarki en upplifunina í hámarki! Njóttu strandarlífsins á Balí, Maldíveyjum, Hawaii og LA og borgarlífsins í Kuala Lumpur, Sydney og New York. Ekki má síðan gleyma ævintýrunum í Dubaí eyðimörkinni og náttúrufegurðinni á Sri Lanka og Nýja Sjálandi.
ATH: Þetta er ekki ákveðin ferð með föstum brottfarardagsetningum heldur ferðatillaga. Það er undir þér komið hvort þú vilt fara í nákvæmlega þessa ferð, bæta henni við ferðina þína eða gera hreinlega eitthvað allt annað. Við getum hjálpað þér að sérsníða ferðina þína nákvæmlega eins og þú vilt hafa hana.
Hápunktar ferðarinnar
Sérsniðnar ferðir
Byrjaðu með ferðatillögu sem við höfum sett saman og aðlagaðu hana að þínum þörfum með aðstoð ferðasérfræðinga okkar.


Fljótleg og einföld bókun hjá KILROY
1
Hafðu samband
Segðu okkur frá ferðaplönunum þínum, hugmyndum og markmiðum.
2
Deildu plönunum þínum
Við kynnumst þér og því sem þú ert að leita að.
3
Fínstillum smáatriðin
Við mótum þína fullkomnu ferð saman.
4
Bókaðu áhyggjulaus
Við sjáum um smáatriðin svo þú getir einbeitt þér að ævintýrinu.
5
Vertu klár!
Pakkaðu töskunum og byrjaðu að telja niður.
Tillaga að ferðaáætlun
Þessi tillaga að ferðalagi er aðeins byrjunin. Fínpússaðu leiðina, upplifanirnar og smáatriðin með sérfræðingum okkar og gerðu ferðina algjörlega að þinni.
Magnað útsýni í Dúbaí
Ævintýri á Maldíveyjum
Surf á Sri Lanka
Útsýni í Malasíu
Skoðaðu fallega gróður Balí
Sólsetur í Sydney
Fallega náttúra Nýja-Sjálands
Jeppaferð á Hawaii
Roadtrip í Kaliforníu
Brooklyn Bridge í New York
Vika 1: Dúbaí
Ferðin hefst í stórborginni Dubai. Þar getur þú skoðað hæstu byggingu heims og fleiri ótrúlega skýjakljúfa. Ef þér finnst gaman að versla þarftu að fara í hið risastóra Dubai Mall en þar finnur þú allar helstu tískubúðirnar, allskonar lúxusmerki og eitt stærsta fiskabúr í heimi. Sandur og sól! Langar þig að fara um eyðimörkina á fjórhjóli, hitta kameldýr og upplifa einstaka matarmenningu? Við mælum með!
Í hnotskurn
Upplýsingar um verð
Fráverð á mann, með flugi fram og til baka
Hvað er innifalið í þessari ferð?
Allir flugmiðar
ISIC kort
Bókunargjöld
Þinn eigin ferðaráðgjafi
Gisting
Staðbundnar samgöngur
Skipulagðar ævintýraferðir
Ferðatrygging (en við getum aðstoðað þig með það!)
Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferðina?
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.
Algengar spurningar
Ert þú að skipuleggja heimsreisu? Hér eru svör við algengustu spurningunum um heimsreisur!
Dúbaí, Maldíveyjar, Sri Lanka, Kuala Lumpur, Balí, Ástralía, Nýja-Sjáland, Hawaii, Kalifornía og New York. Ferðin er þó sveigjanleg og við getum bætt við áfangastöðum eða tekið út lönd eftir þínum óskum og ferðastíl.
Það fer eftir því hvað þú vilt upplifa, en þessi flugleið hentar vel allt árið um kring. Við hjálpum þér að velja þann tíma sem hentar þér best.
Já klárlega! Þetta er bara ferðatillaga og síðan sérsníðum við ferðina 100% að þér. Hafðu samband við okkur og við hjálpum þér að skipuleggja!
Já, algjörlega. Þetta er ferðatillaga en ekki ferð með föstum dagsetningum. Þú getur breytt leiðinni, gistingu, lengd stoppa og bætt við eða sleppt áfangastöðum eftir því sem hentar þér. Bókaðu fría ferðaráðgjöf hjá okkur og ferðaráðgjafi hjá KILROY hjálpar þér að skipuleggja ferð sem hentar þér!
Já, algjörlega. Þessi reisa hentar vel bæði þeim sem vilja ferðast ein og þeim sem vilja hitta annað fólk á leiðinni. Áfangastaðir í Afríku og Asíu eru vinsælir meðal bakpokaferðalanga og þar eru fjölmörg tækifæri til að kynnast öðrum á hostelum, í skipulögðum dagsferðum og við vinsæla ferðamannastaði. Ef þú vilt meiri félagsskap geturðu líka tekið þátt í hópferð á hluta ferðarinnar og eignast nýja ferðafélaga á leiðinni.
Já, við getum bætt við safaríferðum, köfun, gönguferðum, matarupplifunum og alls konar afþreyingu eftir áhugasviði.
Sendu okkur fyrirspurn og ferðaráðgjafi fer yfir hugmyndirnar með þér og setur saman ferð sem hentar þínum draumum!
Sýnir 4 / 7 niðurstöður
Við höldum að þú gætir líka haft gaman af...
Vantar þig meiri innblástur? Við erum með fleiri svipaðar ferðir fyrir þig að skoða.




























