Málaskólar

Spænskunám í Rómönsku Ameríku
Um málaskóla

Langar þig að læra tungumál erlendis?

Skelltu þér í málaskóla, kynnstu nýjum vinum og upplífðu nýtt ævintýri.

Við bjóðum upp á fjölbreytt tungumálanámskeið

Við hjá KILROY vinnum með frábærum tungumálaskólum um allan heim. Kennslan er til fyrirmyndar og félagslífið frábært. Á meðan á dvöl þinni stendur munt þú kynnast mikið af nýju fólki, bæta tungumálakunnáttu þína og upplifa fjölda ævintýra.

Við búum yfir áralangri reynslu af málaskólum svo ef þig vantar aðstoð við val á málaskóla skaltu endilega hafa samband við okkur!

Kynnstu ítalskri menningu í málaskóla á Ítalíu

Kynnstu ítalskri menningu í málaskóla á Ítalíu

Tungumál

Hvaða tungumál viltu læra erlendis?

Mikið úrval af vinsælum tungumálanámskeiðum um allan heim.

Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferð í málaskóla?

Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.

EF málaskóli

Við hjá KILROY erum í samstarfi við EF Education First, einn stærsta og reynslumesta málaskóla heims. EF býður upp á tungumálanám fyrir alla aldurshópa og í átta mismunandi tungumálum, á fjölmörgum áfangastöðum um allan heim.

Hvort sem þú ert byrjandi eða með góða tungumálakunnáttu geturðu fundið námskeið sem hentar þínum markmiðum og þínu stigi. Námið er byggt upp á fjölbreyttum og gagnvirkum kennsluaðferðum þar sem áhersla er lögð á að þú náir framförum á skemmtilegan og árangursríkan hátt.

Margir velja að fara í enskuskóla til að styrkja enskukunnáttuna sína. Vinsælir áfangastaðir eru til dæmis stórborgir á borð við New York og San Francisco í Bandaríkjunum eða sólríkir staðir eins og Malta, þar sem hægt er að njóta strandlífsins eftir kennslu. En möguleikarnir eru mun fleiri en það.

Hjá EF geturðu lært ensku, spænsku, frönsku, þýsku, ítölsku, kínversku, japönsku eða kóresku og valið úr fjölbreyttum áfangastöðum sem sameina tungumálanám, menningu og ógleymanlegar upplifanir. Hvort sem markmið þitt er að bæta tungumálakunnáttuna fyrir nám, starf eða ferðalög, þá getum við hjálpað þér að finna námskeiðið sem hentar þér.

Tungumálanám í Englandi

Tungumálanám í Englandi

Þú getur líka bætt spænskunámi við ævintýraferðina þína

Margir velja að sameina tungumálanám og ferðalag. Til dæmis byrja margir bakpokaferðalangar ferð sína um Suður-Ameríku á einni til tveimur vikum í spænskuskóla. Það gerir þeim auðveldara að eiga samskipti við heimamenn og fá enn meira út úr ferðalaginu. Með samstarfsaðilum víðs vegar um Suður- og Mið-Ameríku getum við hjálpað þér að finna spænskunámskeið sem passar fullkomlega inn í ævintýraferðina þína.

Tungumálanámsdvöl er meira en bara leið til að læra nýtt tungumál. Hún gefur þér tækifæri til að kynnast staðbundinni menningu, hitta fólk hvaðanæva að úr heiminum og upplifa daglegt líf á nýjan hátt. Við bjóðum upp á spænskunámskeið víðs vegar um Rómönsku Ameríku, þar sem þú getur æft tungumálið með heimamönnum og nýtt það strax utan kennslustofunnar.

Þú getur lært spænsku í spennandi áfangastöðum eins og Panama, Argentínu, Kosta Ríka, Kúbu, Kólumbíu, Ekvador, Mexíkó, Níkaragva og Gvatemala.

Spænskunám í Costa Rica
Nám í Panama
Spænskutími í Costa Rica

Spænskunám í Costa Rica

Nám í Panama

Spænskutími í Costa Rica

Af hverju að fara á tungumálanámskeið erlendis?

Tungumálanám erlendis er meira en bara kennsla. Það hjálpar þér að kynnast menningunni af eigin raun, eignast nýja vini og öðlast sjálfstraust til að nota tungumálið í raunverulegum aðstæðum. Að námskeiðinu loknu geturðu haldið ferðalaginu áfram og nýtt nýju kunnáttuna til að fá enn meira út úr ævintýrinu, hvar sem í heiminum þú ert.

Bakpokaferðalag í Rómönsku Ameríku
Hópur í Costa Rica
Surf í Costa Rica
Gönguferð í Gvatemala

Bakpokaferðalag í Rómönsku Ameríku

Hópur í Costa Rica

Surf í Costa Rica

Gönguferð í Gvatemala

FAQ

Algengar spurningar

Langar þig að læra nýtt tungumál eða bæta kunnáttu þína? Hér finnur þú svör við spurningum sem við fáum oft um tungumálanámskeið erlendis.

Langar þig að læra tungumál á ferðalagi? Tungumálanámskeið erlendis gefa þér tækifæri til að stíga út fyrir þægindaramma, tengjast staðbundinni menningu og æfa tungumálið daglega.

Þú getur valið að fara í EF málaskóla eða tengt spænskunám við ævintýraferðina þína!

Hvort sem þú ert byrjandi eða vilt skerpa á kunnáttunni, þá geta ferðaráðgjafar okkar hjálpað þér að velja réttan áfangastað og námskeið.

EF málaskóli býður upp á námskeið í m.a. ensku, spænsku, frönsku, þýsku, íölsku, kínversku, japönsku og kóresku. Við hjálpum þér að finna námskeið sem hentar þér!

EF málaskóli býður upp á tungumálanámskeið um allan heim!

Þú getur t.d. lært ensku í eftirfarandi löndum; Englandi, Írlandi, Bandaríkjunum, Kanada, Ástralíu, Nýja-Sjálandi, Möltu, Suður-Afríku.

Spænsku geturðu lært á Spáni eða Kosta Ríka, fönsku í Frakklandi, þýsku í Þýskalandi, ítölsku á Ítalíu, kínversku í Kína, japönsku í Japan og kóresku í Kóreu.

Það er mjög mismunandi! í EF málaskóla getur þú valið vikufjölda fyrir hvert námskeið allt frá einni viku upp í 52, eða valið ákveðin námskeið sem eru t.d. ein önn eða eitt skólaár. 

Ef þig langar að bæta spænskunámskeiði við ævintýri, þá erum við með allskonar námskeið í boði. Hafðu samband við okkur og við finnum námskeið sem hentar þér!

Hvort sem þú vilt læra á suðrænum ströndum, í líflegum borgum, fjallalandslagi eða menningarlegum miðstöðvum, þá bjóðum við spænskunámskeið á spennandi stöðum víðsvegar um Suður-Ameríku. Segðu okkur hvað þú ert að leita að og ferðaráðgjafar okkar hjálpa þér að finna námskeið og áfangastað sem passar við ævintýrið þitt.

Já! Margir ferðalangar velja að sameina tungumálanám við bakpokaferðalag, sjálfboðavinnu, surf, jóga eða aðra spennandi upplifun á meðan þeir kanna Suður-Ameríku.

Sýnir 4 / 6 niðurstöður

Þú ættir að fara í málaskóla erlendis ef þú...

...vilt læra eitthvað nýtt

Sameinaðu tungumálanám og ferðalög. Ferðaráðgjafar okkar hjálpa þér að setja saman upplifun þar sem þú lærir tungumálið og kynnist nýrri menningu.

...vilt byggja upp sjálfstraust

Öðlastu sjálfstraust til að tjá þig, taka frumkvæði og takast á við nýjar aðstæður á eigin spýtur.

...vilt eignast vini frá öllum heimshornum

Lærðu tungumál í alþjóðlegu umhverfi, kynnstu nýrri menningu, eignastu vini frá öllum heimshornum og settu kunnáttuna strax í notkun utan kennslustofunnar.

Fáðu ferðainnblástur og einstök tilboð beint í pósthólfið þitt

Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu upplýsingar um nýjar ferðir, ferðainnblástur, viðburði og tilboð. Vertu klár í næsta ævintýri!

Hringdu í okkur

+354 517 7010

Opnunartími síma: Mánudaga - föstudaga frá 10:00 til 17:00 og laugardaga frá 13:00 - 17:00

Sendu okkur tölvupóst

travels@kilroy.is

Fyrirspurnum vegna flugmiða sem keyptir eru á netinu er svarað í tölvupósti á help@kilroy.net

Um okkur

Í meira en 30 ár hefur KILROY hjálpað forvitnum ferðalöngum að uppgötva heiminn. Við sérhæfum okkur í að skipuleggja ævintýraleg ferðalög fyrir fólk á öllum aldri, allt frá bakpokaferðalögum og heimsreisum til fjölskylduferða, fyrirtækjaferða og annarra hópferða. Hvert sem ferðalagið liggur eru ferðasérfræðingar okkar hér til að hjálpa þér að láta ferðadraumana rætast.

KILROY Iceland

Norðurturn, 11. hæð 

Hagasmári 3, 201 Kópavogur

 Opnunartími skrifstofu: Mánudaga - föstudaga frá 10:00 til 17:00

Kt. 410911-0350

© 2026 Copyright KILROY Iceland ehf