Spænskuskólar

Falleg náttúra í Kosta Ríka
Um spænskunám

Langar þig að læra spænsku?

Hvort sem þú ert byrjandi eða lengra komin/n þá er frábær ákvörðun að fara erlendis í spænskunám. Við bjóðum upp á spænskunám í málaskólum víðsvegar um heiminn.

Af hverju að læra spænsku?

Spænska er eitt af mest töluðu tungumálum heims og frábært tungumál að læra í umhverfi þar sem það er talað á hverjum degi. Hvort sem þú ert byrjandi eða með góða kunnáttu í spænsku getur tungumálanám erlendis hjálpað þér að styrkja færnina, auka sjálfstraustið og kynnast menningunni á dýpri hátt.

Spænsku námskeið í Kosta Ríka

Spænsku námskeið í Kosta Ríka

Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferð í málaskóla?

Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.

Lærðu spænsku hjá EF málaskóla

Með spænskunámi hjá EF lærir þú ekki aðeins tungumálið í kennslustofunni heldur færðu líka tækifæri til að nota það í raunverulegum aðstæðum. Að vera umkringd/ur spænsku daglega flýtir fyrir framförum í málinu og veitir einstaka innsýn í menningu, sögu og daglegt líf áfangastaðarins.

Þú getur valið um spænskunám hjá EF á vinsælum áfangastöðum eins og Spáni og Kosta Ríka, þar sem tungumálanámið er í forgrunni og þú færð tækifæri til að upplifa staðbundna menningu samhliða náminu.

Lærðu spænsku í Barcelona

Lærðu spænsku í Barcelona

...eða bættu spænskunámi við ævintýraferðina þína

Ef þú ert á leið í lengra ferðalag bjóðum við hjá KILROY einnig upp á möguleikann á að sameina spænskunám og ævintýraferð, til dæmis sem hluta af heimsreisu eða bakpokaferð um Suður- og Mið-Ameríku. Þessi námskeið eru ekki hluti af EF málaskólunum heldur eru þau skipulögð í samstarfi við aðra skóla og ferðaveitendur. Þannig geturðu lært spænsku á meðan þú ferðast milli áfangastaða og upplifir löndin á einstakan hátt.

Hvort sem þú velur hefðbundið spænskunám hjá EF eða spænskunámskeið sem hluta af stærra ferðalagi hjálpum við þér að finna lausn sem hentar þínum markmiðum og ferðadraumum.

Spænskunámskeið í Suður-Ameríku

Spænskunámskeið í Suður-Ameríku

Hvar í Suður- og Mið-Ameríku get ég lært spænsku?

Að dvelja erlendis til að læra tungumál snýst um meira en að læra nýtt tungumál. Það er einstakt tækifæri til að sökkva sér í menningu heimamanna og kynnast fólki víðs vegar að úr heiminum. Spænskunámskeiðin okkar eru í boði á spennandi áfangastöðum víðs vegar um rómönsku Ameríku, þar sem þú getur æft þig í tungumálinu með fólki sem hefur spænsku að móðurmáli og upplifað daglegt líf á spænsku.

Lærðu spænsku á einum af þessum frábæru áfangastöðum:

Panama: Lærðu spænsku í líflegu stórborginni Panama City eða sameinaðu námið spennandi ferðalagi um Mið-Ameríku.

Argentína: Lærðu spænsku á meðan þú kynnist menningu, matargerð og líflegu mannlífi Buenos Aires.

Kosta Ríka: Bættu spænskukunnáttuna í suðrænni paradís og sameinaðu námið brimbrettaiðkun, sjálfboðaliðastarfi eða jóga.

Kúba: Kynntu þér spænska tungumálið í landi sem er þekkt fyrir ríka sögu, tónlist og einstakan sjarma.

Kólumbía: Lærðu spænsku í Cartagena og njóttu þess að sameina menningu, strendur og fjölbreytta afþreyingu.

Ekvador: Stundaðu nám í fallega bænum Baños og kynnstu menningu Ekvador í stórbrotnu náttúrulegu umhverfi.

Mexíkó: Sökktu þér í litríkar hefðir, merka sögu og lifandi spænskt málumhverfi.

Níkaragva: Lærðu spænsku í afslöppuðu andrúmslofti, umkringd eldfjöllum, vötnum og gestrisnu heimafólki.

Gvatemala: Sameinaðu spænskunámið við kynni af menningu Maya, útivist og spennandi tækifæri til sjálfboðaliðastarfa.

Lærðu spænsku í Mexíkó

Lærðu spænsku í Mexíkó

FAQ

Algengar spurningar

Hér eru svör við spurningum sem við fáum oft um málaskóla! Ef þú finnur ekki þína spurningu, endilega hafðu samband og ferðaráðgjafi aðstoðar þig.

Já klárlega! Áður en námið hefst tekur þú stöðupróf sem tryggir að þú sért sett/ur í hóp sem hentar þínu tungumálastigi, hvort sem þú ert byrjandi eða með góða kunnáttu.

Já, margir nemendur fara einir. Málaskólar eru frábær leið til að eignast nýja vini frá öllum heimshornum og kynnast fólki með svipuð áhugamál.

Það fer eftir markmiðum þínum. Hægt er að velja námskeið frá einni viku upp í heilt ár og á sumum stöðum eru einnig í boði annir og lengri námsleiðir.

Á flestum áfangastöðum geturðu valið um fjölbreytta gistimöguleika, til dæmis heimagistingu hjá heimafólki, stúdentagistingu, skólasvæði, gistiheimili eða hótel. Við hjálpum þér að velja og bóka það sem hentar þér best!

Það fer eftir námskeiði. Yfirleitt er hægt að velja á milli 20 og 32 kennslustunda á viku, eftir því hversu mikla áherslu þú vilt leggja á námið.

Kennslan er fjölbreytt og gagnvirk, með áherslu á að efla tal, hlustun, lestur og ritun. Allir kennarar eru menntaðir og allt kennsluefni er innifalið í náminu.

Málaskólar eru í boði fyrir mismunandi aldurshópa og markmið. Það eru t.d. námskeið fyrir ungmenni, háskólanema, fullorðna og jafnvel sérstök 50+ námskeið á völdum áfangastöðum.

Við aðstoðum þig að finna tungumálanám sem hentar þér!

Já. Við getum aðstoðað þig við að skipuleggja alla ferðina, ekki bara námið. Við hjálpum þér að finna hentug flug, velja gistingu sem hentar þínum þörfum og veitum ráðgjöf um áfangastaðinn, skólann og dvölina. Þannig geturðu einbeitt þér að því að njóta upplifunarinnar og læra tungumálið.

Já klárlega! Margir ferðalangar velja að bæta spænskunámi í Suður-Ameríku við bakpokaferðalög, sjálfboðastörf, surf, jóga eða aðrar afþreyingar á ferðalagi um heimsálfuna eða sem hluta af heimsreisu!

Sýnir 4 / 9 niðurstöður

Þú ættir að fara í málaskóla erlendis ef þú...

...vilt læra eitthvað nýtt

Sameinaðu tungumálanám og ferðalög. Ferðaráðgjafar okkar hjálpa þér að setja saman upplifun þar sem þú lærir tungumálið og kynnist nýrri menningu.

...vilt byggja upp sjálfstraust

Öðlastu sjálfstraust til að tjá þig, taka frumkvæði og takast á við nýjar aðstæður á eigin spýtur.

...vilt eignast vini frá öllum heimshornum

Lærðu tungumál í alþjóðlegu umhverfi, kynnstu nýrri menningu, eignastu vini frá öllum heimshornum og settu kunnáttuna strax í notkun utan kennslustofunnar.

Tungumál

Viltu læra annað tungumál erlendis?

Skoðaðu tungumálin sem þú getur lært í málaskóla erlendis.

Fáðu ferðainnblástur og einstök tilboð beint í pósthólfið þitt

Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu upplýsingar um nýjar ferðir, ferðainnblástur, viðburði og tilboð. Vertu klár í næsta ævintýri!

Hringdu í okkur

+354 517 7010

Opnunartími síma: Mánudaga - föstudaga frá 10:00 til 17:00 og laugardaga frá 13:00 - 17:00

Sendu okkur tölvupóst

travels@kilroy.is

Fyrirspurnum vegna flugmiða sem keyptir eru á netinu er svarað í tölvupósti á help@kilroy.net

Um okkur

Í meira en 30 ár hefur KILROY hjálpað forvitnum ferðalöngum að uppgötva heiminn. Við sérhæfum okkur í að skipuleggja ævintýraleg ferðalög fyrir fólk á öllum aldri, allt frá bakpokaferðalögum og heimsreisum til fjölskylduferða, fyrirtækjaferða og annarra hópferða. Hvert sem ferðalagið liggur eru ferðasérfræðingar okkar hér til að hjálpa þér að láta ferðadraumana rætast.

KILROY Iceland

Norðurturn, 11. hæð 

Hagasmári 3, 201 Kópavogur

 Opnunartími skrifstofu: Mánudaga - föstudaga frá 10:00 til 17:00

Kt. 410911-0350

© 2026 Copyright KILROY Iceland ehf