Þýskuskólar

Málaskóli í Þýskalandi
Um þýskunám

Langar þig að læra þýsku?

Hvort sem þú ert byrjandi eða lengra komin/n þá er frábær ákvörðun að fara erlendis í þýskuskóla. Við bjóðum upp á þýskunám í málaskólum í Berlín og Munchen.

Af hverju að læra þýsku?

Þegar þú lærir þýsku í Þýskalandi lærirðu ekki aðeins inni í kennslustofunni. Þú æfir tungumálið á kaffihúsum, í verslunum, á söfnum, tónleikum og í daglegum samskiptum við heimamenn og aðra nemendur frá öllum heimshornum. Þannig verður námið hluti af upplifuninni og framfarirnar koma oft hraðar en þú átt von á. 

Þýska er eitt mikilvægasta tungumál Evrópu og getur opnað dyr að námi, starfi og nýjum tækifærum í framtíðinni. Með því að læra tungumálið þar sem það er talað á hverjum degi færðu einstakt forskot og dýrmæta reynslu sem nýtist langt umfram kennslubækurnar. 

Berlín í Þýskalandi

Berlín í Þýskalandi

Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferð í málaskóla?

Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.

Hvar er hægt að fara í þýskuskóla?

Veldu á milli Berlínar og Munchen, tveggja ólíkra en einstaklega heillandi borga. Berlín er lífleg og skapandi stórborg þar sem saga, listir og fjölbreytt menning mætast á hverju götuhorni. Munchen býður hins vegar upp á notalegt andrúmsloft, fallega byggingarlist, græn svæði og einstaka nálægð við náttúruna og Alpafjöllin. 

Farðu út fyrir þægindarammann, uppgötvaðu nýja menningu og láttu þýskuna lifna við, hvort sem ævintýrið þitt hefst í Berlín eða München. 

Kaffihús í Berlín

Kaffihús í Berlín

FAQ

Algengar spurningar

Hér eru svör við spurningum sem við fáum oft um málaskóla! Ef þú finnur ekki þína spurningu, endilega hafðu samband og ferðaráðgjafi aðstoðar þig.

Já klárlega! Áður en námið hefst tekur þú stöðupróf sem tryggir að þú sért sett/ur í hóp sem hentar þínu tungumálastigi, hvort sem þú ert byrjandi eða með góða kunnáttu.

Já, margir nemendur fara einir. Málaskólar eru frábær leið til að eignast nýja vini frá öllum heimshornum og kynnast fólki með svipuð áhugamál.

Það fer eftir markmiðum þínum. Hægt er að velja námskeið frá einni viku upp í heilt ár og á sumum stöðum eru einnig í boði annir og lengri námsleiðir.

Á flestum áfangastöðum geturðu valið um fjölbreytta gistimöguleika, til dæmis heimagistingu hjá heimafólki, stúdentagistingu, skólasvæði, gistiheimili eða hótel. Við hjálpum þér að velja og bóka það sem hentar þér best!

Það fer eftir námskeiði. Yfirleitt er hægt að velja á milli 20 og 32 kennslustunda á viku, eftir því hversu mikla áherslu þú vilt leggja á námið.

Kennslan er fjölbreytt og gagnvirk, með áherslu á að efla tal, hlustun, lestur og ritun. Allir kennarar eru menntaðir og allt kennsluefni er innifalið í náminu.

Málaskólar eru í boði fyrir mismunandi aldurshópa og markmið. Það eru t.d. námskeið fyrir ungmenni, háskólanema, fullorðna og jafnvel sérstök 50+ námskeið á völdum áfangastöðum.

Við aðstoðum þig að finna tungumálanám sem hentar þér!

Já. Við getum aðstoðað þig við að skipuleggja alla ferðina, ekki bara námið. Við hjálpum þér að finna hentug flug, velja gistingu sem hentar þínum þörfum og veitum ráðgjöf um áfangastaðinn, skólann og dvölina. Þannig geturðu einbeitt þér að því að njóta upplifunarinnar og læra tungumálið.

Sýnir 4 / 8 niðurstöður

Þú ættir að fara í málaskóla erlendis ef þú...

...vilt læra eitthvað nýtt

Sameinaðu tungumálanám og ferðalög. Ferðaráðgjafar okkar hjálpa þér að setja saman upplifun þar sem þú lærir tungumálið og kynnist nýrri menningu.

...vilt byggja upp sjálfstraust

Öðlastu sjálfstraust til að tjá þig, taka frumkvæði og takast á við nýjar aðstæður á eigin spýtur.

...vilt eignast vini frá öllum heimshornum

Lærðu tungumál í alþjóðlegu umhverfi, kynnstu nýrri menningu, eignastu vini frá öllum heimshornum og settu kunnáttuna strax í notkun utan kennslustofunnar.

Tungumál

Viltu læra annað tungumál erlendis?

Skoðaðu tungumálin sem þú getur lært í málaskóla erlendis.

Fáðu ferðainnblástur og einstök tilboð beint í pósthólfið þitt

Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu upplýsingar um nýjar ferðir, ferðainnblástur, viðburði og tilboð. Vertu klár í næsta ævintýri!

Hringdu í okkur

+354 517 7010

Opnunartími síma: Mánudaga - föstudaga frá 10:00 til 17:00 og laugardaga frá 13:00 - 17:00

Sendu okkur tölvupóst

travels@kilroy.is

Fyrirspurnum vegna flugmiða sem keyptir eru á netinu er svarað í tölvupósti á help@kilroy.net

Um okkur

Í meira en 30 ár hefur KILROY hjálpað forvitnum ferðalöngum að uppgötva heiminn. Við sérhæfum okkur í að skipuleggja ævintýraleg ferðalög fyrir fólk á öllum aldri, allt frá bakpokaferðalögum og heimsreisum til fjölskylduferða, fyrirtækjaferða og annarra hópferða. Hvert sem ferðalagið liggur eru ferðasérfræðingar okkar hér til að hjálpa þér að láta ferðadraumana rætast.

KILROY Iceland

Norðurturn, 11. hæð 

Hagasmári 3, 201 Kópavogur

 Opnunartími skrifstofu: Mánudaga - föstudaga frá 10:00 til 17:00

Kt. 410911-0350

© 2026 Copyright KILROY Iceland ehf