Blogg

Bestu staðirnir til að læra að kafa: Topp 10 áfangastaðirnir okkar

Bestu staðirnir til að læra að kafa

Gerðu köfunarréttindin að hluta af næsta ævintýri!

Ertu tilbúin/n að kafa inn í undraheim hafsins og uppgötva fegurð sjávarlífsins? Að læra að kafa er spennandi og gefandi upplifun sem opnar fyrir þig nýjan heim ævintýra. Það eru ótal köfunarstaðir í boði og það getur verið erfitt að velja hvar þú byrjar. Þess vegna höfum við sett saman lista yfir 10 áfangastaði sem eru í hæsta gæðaflokki til að læra að kafa, hvort sem þú ert vanur kafari eða nýr í sportinu og langar að prófa. Frá Karíbahafinu til Maldíveyja og alls staðar þar á milli bjóða þessir ótrúlegu staðir upp á bestu köfunarskóla í heiminum, frábæra kennara og traustan búnað. Taktu með þér sundfötin, vertu tilbúin/n að uppgötva fegurð hafsins og fáðu kafara réttindi á einum af þessum frábæru stöðum.

Af hverju ættir þú að læra að kafa erlendis?

Það eru margar ástæður fyrir því að læra að kafa erlendis. Þú færð tækifæri til að kafa við ólíkar aðstæður, læra af reyndum kennurum og kynnast fólki alls staðar að úr heiminum. Um leið víkkar þú sjóndeildarhringinn, kynnist nýjum menningarheimum og upplifir annan lífsstíl. Á mörgum stöðum færðu einnig innsýn í verndun sjávar og hvernig þú getur lagt þitt af mörkum til að vernda viðkvæm vistkerfi hafsins.

1. Cairns í Ástralíu

Cairns í Ástralíu er einn af vinsælustu köfunaráfangastöðum heims. Rétt undan ströndinni liggur Great Barrier Reef, stærsta kóralrif í heimi, sem býður upp á einstakt tækifæri til að uppgötva stórbrotinn neðansjávarheim. Vatnið er hlýtt allt árið um kring, um 29°C yfir sumarmánuðina (desember til febrúar) og um 22°C yfir veturinn (júní til ágúst), sem skapar kjöraðstæður fyrir köfun. Þar má sjá fjölbreytt sjávarlíf, allt frá sæskjaldbökum og rifhákörlum til litríkra hitabeltisfiska.

Í Cairns eru einnig margir framúrskarandi köfunarskólar sem bjóða upp á PADI-vottuð námskeið fyrir bæði byrjendur og lengra komna, auk spennandi liveaboard-ferða á Great Barrier Reef. Hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref í köfun eða vilt bæta við þig reynslu, þá er Cairns frábær staður til að læra, æfa sig og upplifa eina mögnuðustu köfun í heimi.

Lærðu að kafa í Great Barrier Reef

Lærðu að kafa í Great Barrier Reef

2. Koh Tao í Tælandi

Koh Tao í Tælandi ætti að vera á bucket listanum hjá öllum (framtíðar) köfurum. Vatnshiti í kringum Koh Tao er oftast á bilinu 27 til 30 gráður að meðaltali, sem gerir staðinn að frábærum köfunarstað allt árið. Eyjan er umlukin kóralrifum sem eru heimili fjölbreytts og stórkostlegs sjávarlífs. Þú getur átt von á að sjá marga litríka fiska, þar á meðal englafiska, fiðrildafiska, bannerfiska og skötur, auk harðra kóralrifa eins og borðkóral, staghorna, mosaic og sveppakóral. Ef þú ert heppin/n getur þú jafnvel séð hvalháa eða eagle rays. Koh Tao er líka heimili nokkurra af bestu köfunarskólum í heiminum, til dæmis á Sairee ströndinni og í Chalok Bay, þar sem þú getur tekið PADI vottað grunnnámskeið, framhaldsnámskeið og fundiving fyrir þá sem vilja prófa. Þegar þú ert ekki að kafa getur þú slakað á hvítum sandströndum eyjunnar, kannað bratta og gróskumikla skóga eða farið í göngutúr og smakkað frábæran tælenskan mat. Lærðu að kafa á Koh Tao og upplifðu smá tælenska menningu í leiðinni!

Eyjan Koh Tao er í miklu uppáhaldi hjá köfurum

Eyjan Koh Tao er í miklu uppáhaldi hjá köfurum

3. Dauin á Filippseyjum

Filippseyjar eru þekktar fyrir einstaka köfun og Dauin er einn besti staðurinn til að stökkva í köfunarbúninginn. Vatnshitinn er yfirleitt á bilinu 27-30°C, sem gerir aðstæður til köfunar frábærar allt árið um kring. Svæðið er umlukið líflegum kóralrifum sem iða af fjölbreyttu sjávarlífi. Hér geturðu meðal annars séð klúðufiska, englafiska, fiðrildafiska og ljónfiska, auk fallegra kórala af ýmsum gerðum. Ef heppnin er með þér gætirðu jafnvel rekist á sæskjaldböku eða hvalhákarl.

Í Dauin bjóðum við upp á köfunarnámskeið fyrir bæði byrjendur og lengra komna, en einnig einstakt Marine Conservation sjálfboðaverkefni þar sem þú lærir að kafa á meðan þú tekur þátt í verndun sjávarlífs og viðkvæmra vistkerfa. Ef þú ert nú þegar vottaður kafari geturðu jafnframt tekið Divemaster-réttindin þín í þessu stórbrotna umhverfi.

Dauin sameinar heimsklassa köfun, suðrænt eyjalíf og einstök tækifæri til að læra og vaxa sem kafari. Það er auðvelt að skilja hvers vegna svo margir verða ástfangnir af Filippseyjum og vilja helst aldrei fara heim.

Vertu heppin(n) og sjáðu hvalháf á köfuninni þinni

Vertu heppin(n) og sjáðu hvalháf á köfuninni þinni

4. Gili eyjarnar í Indónesíu

Indónesía er stútfull af mögnuðum köfunarstöðum, bæði fyrir strandköfun og bátaköfun, en Gili-eyjarnar eru í sérflokki. Vatnshitinn er yfirleitt á bilinu 28-30°C allt árið um kring, sem gerir þessar hitabeltiseyjar að frábærum áfangastað fyrir kafara á öllum reynslustigum.

Gili-eyjarnar eru umluktar líflegum kóralrifum sem iða af sjávarlífi. Hér má meðal annars sjá klúðufiska, englafiska, fiðrildafiska og ljónfiska, auk fjölbreyttra kórala á borð við borðkóral, hjartarhornskóral og sveppakóral. Ef heppnin er með þér gætirðu jafnvel rekist á sæskjaldböku eða hvítoddarifhákarl.

Hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref í köfun eða ert reynslumikill kafari býður Indónesía upp á ógleymanlegar neðansjávarupplifanir. Og með afslöppuðu eyjalífi, kristaltæru vatni og frábærri köfun er auðvelt að skilja hvers vegna Gili-eyjarnar eru í uppáhaldi hjá köfurum víðs vegar að úr heiminum.

Kyara og Michael lærðu að kafa í Indónesíu

Kyara og Michael lærðu að kafa í Indónesíu

5. Quepos í Costa Rica

Costa Rica er eitt fjölbreyttasta land heims þegar kemur að náttúru og sjávarlíf. Við mælum sérstaklega með köfun í Quepos við Kyrrahafsströndina, skammt frá Manuel Antonio-þjóðgarðinum, þar sem vatnshitinn er yfirleitt á bilinu 26-30°C allt árið um kring. Undir yfirborðinu bíður fjölbreytt sjávarlíf, allt frá litskrúðugum hitabeltisfiskum og sæskjaldbökum til muræna og kolkrabba. Ef heppnin er með þér gætirðu einnig séð rifhákarla, skötur eða glæsilegar mantaskötur. Að köfun lokinni taka við gullnar strendur, gróskumiklir regnskógar og hið afslappaða „pura vida“ líf sem Costa Rica er þekkt fyrir. Fyrir þá sem vilja sameina ævintýri, náttúru og frábæra köfun er Quepos sannkölluð paradís.

Sameinaðu ótrúlega náttúru við köfunarferð

Sameinaðu ótrúlega náttúru við köfunarferð

6. Nadi á Fiji

Nadi á Fiji er sannkölluð paradís fyrir þá sem vilja læra að kafa. Borgin er hlið að nokkrum af bestu köfunarsvæðum Kyrrahafsins, þar sem þú getur skoðað litrík kóralrif, hella, sundgöng og gljúfur. Besti tíminn til að kafa er frá maí til október, þegar skyggnið er hvað best og getur náð allt að 40 metrum. Vatnið er hlýtt allt árið um kring, um 27°C að meðaltali.

Við köfun á Fiji má búast við fjölbreyttu sjávarlífi, þar á meðal sæskjaldbökum, höfrungum, mantaskötum og jafnvel hvalhákörlum. Þegar köfuninni lýkur tekur við afslappað eyjalíf og fjölbreytt úrval af afþreyingu, eins og snorkli, kajaksiglingum og siglingatúrum. Við bjóðum upp á fjölmörg köfunarnámskeið á Fijifyrir bæði byrjendur og lengra komna kafara.

Sjáðu Manta Rays á köfuninni þinni

Sjáðu Manta Rays á köfuninni þinni

7. Zanzibar í Tansaníu

Það eru ekki bara áfangastaðir í Asíu og Eyjaálfu sem bjóða upp á frábæra köfun. Zanzibar, suðræn eyja undan strönd Tansaníu, er einnig frábær kostur fyrir þá sem vilja læra að kafa. Hér bíða litrík kóralrif, kristaltært vatn og fjölbreytt sjávarlíf, með yfir 400 fisktegundum og nokkrum spennandi skipsflökum til að kanna. Bestu köfunaraðstæðurnar eru yfirleitt frá júní til október, þegar skyggnið getur náð allt að 30 metrum og vatnshitinn er þægilegur, á bilinu 25-28°C.

Einn vinsælasti köfunarstaðurinn er Mnemba Atoll, þar sem þú getur séð sæskjaldbökur, höfrunga og jafnvel hvalhákarla á réttum árstíma. Aðrir vinsælir staðir eru Tumbatu-eyja, sem er þekkt fyrir murænur, ljónfiska og kolkrabba, og Leven Bank, þar sem stærri fiskar á borð við trevally, túnfisk og kingfish halda sig. Hvort sem þú ert byrjandi eða reyndur kafari finnurðu köfun sem hentar þér á Zanzibar.

Sameinaðu köfun við safari í gegnum Tansaníu

Sameinaðu köfun við safari í gegnum Tansaníu

8. Dahab í Egyptalandi

Ef þú ert að leita að hagkvæmum stað til að taka köfunarréttindin þín án þess að gefa afslátt af upplifuninni, þá ætti Dahab að vera ofarlega á listanum. Þessi afslappaði bær við Rauðahafið í Egyptalandi er þekktur fyrir kristaltært vatn, litrík kóralrif og framúrskarandi strandköfun, sem gerir hann að vinsælum áfangastað bæði fyrir bakpokaferðalanga og byrjendur í köfun. Eitt af því sem gerir Dahab einstakt er hversu auðvelt er að komast á marga af bestu köfunarstöðunum beint frá ströndinni. Það þýðir minni tíma á bátum, lægri kostnað og meiri tíma undir yfirborðinu. Skyggni er oft á bilinu 20-40 metrar og rólegar aðstæður gera svæðið tilvalið fyrir þá sem vilja byggja upp sjálfstraust og reynslu sem kafarar. Hvort sem þú ert að taka fyrstu skrefin í köfun eða vilt bæta við þig réttindum, þá býður Dahab upp á einstaka blöndu af hagkvæmni, afslöppuðu andrúmslofti og stórbrotinni köfun.

Fallega ströndin í Dahab

Fallega ströndin í Dahab

9. Thulusdhoo á Maldíveyjum

Ef þú ert að leita að hitabeltisparadís til að læra að kafa ætti Thulusdhoo á Maldíveyjum að vera ofarlega á listanum. Þessi litla eyja í North Malé Atoll er heimili nokkurra af bestu köfunarstöðum landsins. Þótt Maldíveyjar séu oft tengdar við lúxusferðir er einnig hægt að finna frábæra og hagkvæma köfunarmöguleika fyrir þá sem ferðast á minni fjárhagsáætlun.

Undir yfirborðinu bíða litrík kóralrif, spennandi skipsflök og fjölbreytt sjávarlíf. Ef heppnin er með þér gætirðu séð hákarla, mantaskötur, sæskjaldbökur og ótal tegundir hitabeltisfiska. Bestu aðstæðurnar eru yfirleitt frá desember til maí, þegar sjórinn er rólegur og skyggnið frábært. Vatnshitinn helst jafnframt í kringum 28°C allt árið um kring.

Á Thulusdhoo geturðu valið um leiðsagðar köfanir, PADI-vottuð köfunarnámskeið og fjölbreytta köfunarpakka fyrir öll reynslustig. Þegar köfunardeginum lýkur tekur við afslappað eyjalíf, góðir veitingastaðir og stórbrotin sólsetur. Thulusdhoo er sannkölluð paradís, jafnt fyrir kafara sem þá sem vilja einfaldlega njóta lífsins á Maldíveyjum.

Sjáðu ótrúlegt undirvatnslíf

Sjáðu ótrúlegt undirvatnslíf

10. Nusa Lembongan, Indónesía

Indónesía aftur! Með yfir 6000 byggðum eyjum er ekki skrítið að það séu frábærir köfunarstaðir út um allt landið. Nusa Lembongan virðist vera lítil eyja, en hún hefur mikið upp á að bjóða og er auðveldlega aðgengileg frá Balí. Eyjan er sannkallaður fjársjóður fyrir frábæra strandköfun og köfun úr bát. Við Nusa Lembongan geturðu séð ótrúlegt sjávarlíf eins og mantaskötur, sólfiska, hákarla, sæskjaldbökur og litrík kóralrif.

Besti tíminn til að kafa á Nusa Lembongan er frá júlí til október, þegar vatnið er tært og líkurnar á að sjá mola mola eru miklar. Vatnshiti er á bilinu 20°C til 28°C, eftir árstíð og köfunarstað. Við vinnum með bestu köfunarskólunum á Nusa Lembongan og bjóðum upp á daglegar köfunarferðir, PADI námskeið og gistingu fyrir kafara á öllum stigum. Hvort sem þú vilt skoða falleg rif, synda með mögnuðum mantum eða prófa spennandi driftköfun, þá hefur Nusa Lembongan eitthvað fyrir alla.

Lærðu að kafa á Nusa Lembongan

Lærðu að kafa á Nusa Lembongan

Þarftu aðstoð við að skipuleggja köfunarferðina þína?

Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.

Fáðu ferðainnblástur og einstök tilboð beint í pósthólfið þitt

Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu upplýsingar um nýjar ferðir, ferðainnblástur, viðburði og tilboð. Vertu klár í næsta ævintýri!

Hringdu í okkur

+354 517 7010

Opnunartími síma: Mánudaga - föstudaga frá 10:00 til 17:00 og laugardaga frá 13:00 - 17:00

Sendu okkur tölvupóst

travels@kilroy.is

Fyrirspurnum vegna flugmiða sem keyptir eru á netinu er svarað í tölvupósti á help@kilroy.net

Um okkur

Í meira en 30 ár hefur KILROY hjálpað forvitnum ferðalöngum að uppgötva heiminn. Við sérhæfum okkur í að skipuleggja ævintýraleg ferðalög fyrir fólk á öllum aldri, allt frá bakpokaferðalögum og heimsreisum til fjölskylduferða, fyrirtækjaferða og annarra hópferða. Hvert sem ferðalagið liggur eru ferðasérfræðingar okkar hér til að hjálpa þér að láta ferðadraumana rætast.

KILROY Iceland

Norðurturn, 11. hæð 

Hagasmári 3, 201 Kópavogur

 Opnunartími skrifstofu: Mánudaga - föstudaga frá 10:00 til 17:00

Kt. 410911-0350

© 2026 Copyright KILROY Iceland ehf