Af hverju að bóka fund hjá KILROY?

Ævintýrið byrjar með góðu samtali
Við hjá KILROY sérhæfum okkur í að skipuleggja og sérsníða einstakar ferðir fyrir ævintýragjarna ferðalanga á öllum aldri. Hvort sem þú ert að ferðast sóló, með makanum, vinahópnum eða allri fjölskyldunni hjálpum við þér að skapa ferð sem passar þínum óskum, ferðastíl og fjárhagsáætlun. Við sameinum reynslu okkar og sérþekkingu við þínar hugmyndir til að hanna ferð sem verður eftirminnileg frá upphafi til enda.
Markmið okkar er að hjálpa þér að upplifa heiminn á þinn hátt, hvort sem draumurinn er safarí í Afríku, eyjahopp í Suðaustur-Asíu, ferð um regnskóga, slökun á afskekktum ströndum, fjallganga eða líflegar stórborgir.
Af hverju að koma og fá ráðgjöf hjá okkur?
Það kostar EKKERT að koma á fund hjá ferðráðgjafa okkar og fá ómetanleg ferðaráð.
Við hjálpum þér að finna bestu verðin fyrir þínar ferðadagsetningar.
Við sjáum til þess að þú fáir allar þær upplýsingar sem þú kannt að þurfa þegar kemur að því að skipuleggja draumaferðina þína. Þetta eru upplýsingar sem þú færð ekki endilega þegar þú bókar ferð sjálf/ur.
Þar sem við erum reyndir ferðalangar sem höfum í raun og veru ferðast um heiminn getum við gefið þér ómetanleg ferðaráð þegar kemur að þeim stöðum sem þú vilt fara til.
Þú kemur til okkar með hugmynd að ferðalagi og við hjálpum þér að útfæra hana. Útkoman verður þín draumaferð!
Og það besta er... það kostar ekkert að koma á fund til okkar!

Bókaðu fría ferðaráðgjöf - við sjáum um skipulagið
Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferð?
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.
Nýjast á ferðablogginu hjá KILROY
Við elskum að ferðast og vonum að þú gerir það líka! Fáðu innblástur fyrir næsta ævintýri með ferðasögum, ráðum og spennandi áfangastöðum.











