Eyjahopp í Indónesíu: Leiðarvísir að draumaeyjunum
Upplifðu það besta sem Indónesía hefur upp á að bjóða
Velkomin/n í leiðarvísinn um eyjahopp í Indónesíu! Ef þú ert að skipuleggja ferð til Indónesíu, þá ertu þegar að fara í ævintýri! Þetta fallega land er heimili sumra af flottustu eyjum heims, hver með sína eigin menningu, sögu og náttúrufegurð. Í þessari handbók förum við með þig í ferðalag um nokkrar af okkar uppáhalds eyjum í Indónesíu, frá Balí til Sumatra. Þú lærir hvernig best er að nýta tímann á hverri eyju og hvaða ævintýri þú mátt alls ekki missa af. Hvort sem þú ert að fara í fyrsta skipti eða ert vanur ferðalangur, þá hjálpar þessi handbók þér að skipuleggja fullkomna ferð til Indónesíu. Förum af stað!
Java
Byrjum á stærstu eyjunni í Indónesíu, Java. Java er fjölmennasta eyjan í Indónesíu og þar er höfuðborgin Jakarta. Jakarta er eins og hver önnur stórborg í Asíu; skipulagt kaos. Það er gaman að eyða einum eða tveimur dögum og sjá hvernig daglegt líf milljóna Indónesíubúa gengur fyrir sig, auk þess að skoða Jakarta Old Town og dómkirkjuna. Java sjálf er þekkt fyrir ríka sögu og menningararf, með mörgum fornum hofum og höllum til að skoða. Á eyjunni má enn sjá áhrif hollenska nýlendutímans, meðal annars í plantekrum sem hafa verið starfræktar í kynslóðir. Þar færðu innsýn í staðbundinn landbúnað, lærir um ræktun svæðisins og getur smakkað ferska ávexti og aðrar afurðir beint frá upprunanum.
Java er einnig heimili nokkurra af virkustu eldfjöllum Indónesíu, þar á meðal Merapi og Bromo. Merapi er skammt frá Yogyakarta og hofunum Borobudur og Prambanan, en Bromo er þekkt fyrir stórkostlegar sólarupprásir. Ef þú ert til í að vakna snemma færðu að sjá fyrstu geisla dagsins lýsa upp eldfjallið og landslagið í kring. Trúðu okkur, það er vel þess virði!
Bromo-fjallið á Java
Komodo-eyjar
Komodo-eyjarnar eru staðsettar í Kyrrahafinu og eru hluti af Komodo National Park, sem er á UNESCO-listanum. Hér er fjölbreytt leiksvæði fyrir ævintýri - hvort sem þú ert í gönguferð, snorkli, köfun, kajakferð eða fallegri bátsferð, þá er landslagið allt frá eldfjallatindum til bleikra sandstranda.
Komodo-eyjan er heimili Komodo-drekans, risastórrar eðlu sem getur orðið allt að 3 metrar og vegið 150 kíló. Við mælum með leiðsögn til að sjá þessa ótrúlegu veru í návígi og ekki missa af Pantai Merah (bleiku ströndinni) þar sem litadýrðin er ótrúleg. Það er frábær staður til að synda, snorkla og njóta sólarinnar. Þó Komodo-eyjan sé aðal aðdráttaraflið, þá eru nokkrar litlar eyjar í sama eyjaklasa sem vert er að skoða:
Padar-eyja: Padar-eyja er þriðja stærsta Komodo-eyjan og er þekkt fyrir stórkostlegt útsýni. Taktu klukkutíma gönguferð upp á toppinn og njóttu þess að sjá þrjár strendur; hvítar, svartar og bleikar. Á ferðinni geturðu rekist á dýr eins og dádýr, geitur og fugla.
Kanawa-eyja: Þrátt fyrir að hún sé lítil er Kanawa-eyja heimili kóralrifa sem eru einstaklega falleg. Kafaðu í tærum og rólegum sjónum og upplifðu lífið undir yfirborðinu. Þar má m.a. finna litríka fiska, skjaldbökur, hákarla og höfrunga. Eftir ævintýrið undir yfirborðinu geturðu slakað á hvítu sandströndinni. Flestir koma hingað í dagsferðir, en ef þú vilt njóta kyrrðarinnar lengur þá er hægt að gista í bungalow eða tjöldum.
Komodo-dreki á Komodo
Gili-eyjar
Gili-eyjarnar eru þrjár litlar eyjar rétt við strendur Lombok. Þær eru þekktar fyrir tært vatn og litríkt kóralrif, sem gera þær að vinsælum stað fyrir köfun og snorkl. Gili-eyjarnar eru líka frábærar til að slaka á og njóta.
Ef þú ert að leita að eyjaparadís, þá eru Gili-eyjarnar algjörlega málið. Þessar þrjár litlu eyjar við Lombok eru umkringdar tær-bláum sjó, hvítum sandströndum og pálmatrjám. Hver eyja hefur sitt eigið yfirbragð og aðdráttarafl, svo þú getur valið þá sem hentar þér best eða hoppað á milli þeirra fyrir fjölbreytta upplifun.
Gili Trawangan er stærsta og vinsælasta eyjan, þekkt fyrir líflegt næturlíf, köfun og snorkl, auk stórkostlegra sólsetra. Þú getur djammað á strandbörum, smakkað mat frá öllum heimshornum á veitingastöðum eða slakað á í heilsulind eða jóga. Þú getur líka skoðað eyjuna á reiðhjóli eða hestakerru, heimsótt skjaldbökuathvarf eða tekið bátsferð til hinna eyjanna.
Gili Meno er minnst og rólegust, fullkomin fyrir pör eða þau sem vilja rómantíska útivist. Hér eru hreinustu strendurnar og kóralrifin, þar sem þú getur synt með skjaldbökum og litríkum fiskum. Þú getur líka heimsótt saltvatnslón, fuglagarðinn eða neðansjávar skúlptúrgarðinn sem Jason de Caires Taylor skapaði.
Gili Air er næst Lombok og býður upp á blöndu af ró og skemmtun. Hér er afslappað andrúmsloft, vingjarnlegt fólk og notaleg kaffihús. Þú getur snorklað, surfað, kitesurfað eða prófað stand-up paddle, eða tekið þátt í matreiðslunámskeiði, leirvinnu eða hugleiðslu. Þú getur líka kynnst staðbundinni menningu með því að heimsækja moskuna eða þorpið.
Hvaða eyju sem þú velur, þá áttu eftir að eiga ógleymanlega tíma á Gili-eyjunum. Mundu bara að virða náttúruna og menninguna og skilja ekkert eftir nema fótspor.

Njóttu tært vatnsins í kringum Gili-eyjarnar
Sulawesi
Ef þú ert að leita að ævintýri í Indónesíu er Sulawesi staðurinn til að fara. Eyjan hefur eitthvað fyrir alla ferðalanga; allt frá ótrúlegu lífríki hafsins til heillandi menningar. Hér eru nokkrir af hápunktunum sem þú ættir ekki að missa af:
Bunaken Marine National Park: Einn af bestu köfunarstöðum í heiminum, með yfir 390 tegundir af kóral og hundruðum fiska, skjaldbaka, hákarla og höfrunga. Þú getur líka snorklað, róið á kajak eða slakað á fallegum ströndum Bunaken eyjar.
Togian Islands: Afskekktur eyjaklasi í Tomini-flóa sem býður upp á afslappað andrúmsloft og ósnortna náttúru. Hér geturðu kafað, snorklað, synt í kristaltæru vatni og skoðað mangróveskóga og falin lón. Einnig gefst tækifæri til að kynnast Bajau-fólkinu, sjávarþjóð sem býr í húsum á staurum yfir vatninu og hefur sterka tengingu við hafið.
Tana Toraja: Heimili Toraja-fólksins, sem hefur sérstaka menningu og siði. Þú getur heimsótt hefðbundin hús með bátalaga þökum, upplifað flókna jarðarfararsiði þeirra og séð grafir í klettum og tréfígúrur. Þú getur líka gengið, hjólað eða róið í gegnum fallegt landslag hrísgrjónaakra og fjalla.

Ótrúlegt vatn við Sulawesi
Sumatra
Sumatra er stór eyja í vesturhluta Indónesíu með fjölbreytta náttúru og menningarlega upplifun - þó hún sé aðeins minna „polished“ en eyjur eins og Balí. Þú flýgur inn til Medan og getur byrjað ferðina í Bukit Lawang, þar sem þú heimsækir Gunung Leuser National Park. Sem er eitt af síðustu heimkynnum fyrir dýr í útrýmingarhættu eins og órangútana, tígrisdýr, fílum og nashyrningum. Þú getur farið í leiðsögn eða í river rafting til að sjá dýrin og stórbrotna náttúruna. Órangútanarnir eru mjög blíðir og forvitnir og þú átt eftir að eiga ógleymanlega upplifun með þeim.
Eftir það er gott að fara suður til Lake Toba, stærsta eldfjallavatns í heiminum. Auk göngu getur þú skoðað Batak-þorpin og smakkað kaffið þeirra, sem er mjög ilmandi, auk þess að synda, róa á kajak eða ganga í kringum vatnið og nærliggjandi þorp. Ef þú ert heppin/n og eyðir tíma í frumskóginum getur þú rekist á Rafflesia, stærsta blóm í heiminum. Það hefur sterka lykt (satt að segja frekar slæma), en það er þess virði að sjá vegna stærðarinnar og litamynstursins. Ef þig langar að klífa eldfjall mælum við með Gunung Sibayak eða Gunung Kerinci. Njóttu útsýnisins yfir gíga, vötn og dali frá toppnum, eða slakaðu á í heitum laugum við rætur fjallsins.
Ef þú vilt smá spennu getur þú surf-að öldurnar við Mentawai Islands, hóp eyja vestan við Sumatra sem eru þekktar fyrir frábærar surf-öldur. Ef þú elskar að kafa heimsæktu Pulau Weh eyjuna, sem er með tæran sjó og fjölbreytt lífríki hafsins. Þú getur séð fiska, kóral, skjaldbökur og jafnvel hákarla. Sumatra er sannarlega frábær staður fyrir þau sem elska að kafa og náttúruáhugafólk.

Sjá villta órangútana á Sumatru
Nusa eyjarnar
Nusa eyjarnar eru hópur af þremur eyjum við suðausturströnd Balí. Eyjarnar eru þekktar fyrir fallegar strendur og tært haf, sem gerir þær að vinsælum áfangastað fyrir sund og snorkl. Nusa eyjarnar eru líka heimili nokkurra af bestu surf-stöðum í Indónesíu - þar er meira að segja eitt af okkar uppáhalds surf-campi!
Nusa Penida: Stærsta eyjan og þekkt fyrir dramatíska strandkletta og stórkostlegt útsýni. Þar eru líka nokkrar af fallegustu ströndum Balí, eins og Crystal Bay og Kelingking Beach.
Nusa Lembongan: Eyjan er þekkt fyrir ósnortnar strendur með blágrænum sjó og hvítum sandi. Hún er frábær fyrir surf og snorkl. Nokkrir vinsælir staðir eru Dream Beach, Mushroom Bay og Devil’s Tear.
Nusa Ceningan: Minnsta eyjan og staðsett milli Nusa Penida og Nusa Lembongan. Hér er rólegt og afslappað andrúmsloft. Vinsælt er að heimsækja Blue Lagoon og Peguyangan Waterfall.

Dino Rock á Nusa Penida
Balí
Við endum á eyju sem þarf ekki kynningu: Balí! Fyrir marga er Balí Indónesía - og það er engin furða að þessi elskaða eyja sé eins og safn af bestu hlutunum sem Indónesía hefur upp á að bjóða - allt í litlum pakka, þó með aðeins fleiri ferðamönnum. Ef þú hefur ekki tíma til að ferðast milli eyja er Balí frábært samansafn af fallegum ströndum, mögnuðum köfunar- og snorkl-möguleikum, bragðgóðum mat og hrísgrjónaörkum (þó ekki eins og á Java, það verður að viðurkennast). Það er margt að elska við Balí, en það kemur með smá „trade-off“ sem við getum ekki horft framhjá: Þar eru margir ferðamenn, sem hækka verðin töluvert. Ef þú vilt fá sem mest fyrir peninginn þinn, þá munu hinar indónesísku eyjarnar þjóna þér enn betur.
En aftur að Balí, þar sem það er svo margt að segja: Eyjan er heimili einstæðrar blöndu af hindúisma og búddisma, sem sést í hofunum, listinni og matnum. Það er mikið af vestrænum mat á Balí (jafnvel McDonalds ef þú getur ekki verið án franska eða flörrí), en þú verður að prófa satay lilit. Satay er gert um alla Indónesíu, en útgáfan á Balí er marinerað í kókosmjólk og kryddum og er sérstaklega bragðgóð. Þegar þú ert búin/n að skoða og borða, þá er nauðsynlegt að nýta sér frábæru spa- og vellíðunarstöðvar Balí, það er ótrúlega margt í boði! Eyjan er sannarlega frábær staður til að slaka á og njóta, með ljúfum suðrænum kokteilum í hönd.

Uppgötvaðu fjölmarga fossa Balí
Ertu tilbúin/n í næsta ævintýri?
Þarna hefurðu það, sjö af okkar uppáhalds eyjum í Indónesíu. Hver þeirra heillar þig mest? Við höfum ferðast um þessar slóðir, kynnst þeim af eigin raun og hjálpum þér með ánægju að skipuleggja draumaferðina. Smelltu á hnappinn hér að neðan, segðu okkur frá ferðaplönunum og við sjáum um restina.


Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferð til Indónesíu?
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.
Áfangastaðir sem nefndir eru í blogginu
Við erum með eitthvað fyrir þig
Tengdar ferðir
Vantar þig meiri innblástur? Við erum með frábærar ferðir til Indónesíu
Nýjast á ferðablogginu hjá KILROY
Við elskum að ferðast og vonum að þú gerir það líka! Fáðu innblástur fyrir næsta ævintýri með ferðasögum, ráðum og spennandi áfangastöðum.
































