Blogg

Kínaævintýri Önnu

Ferðasaga: Kínaævintýri Önnu

Kína í augum Önnu

Ef þú hefur einhvern tímann hugsað um Kína sem næsta áfangastað, en ert óviss um við hverju megi búast, þá er saga Önnu einmitt það sem þig vantar.

Hún er ferðaráðgjafi hjá KILROY og veit því betur en nokkur annar hvernig hægt er að fá sem mest úr ferðalaginu. Hún ferðaðist með hópi frá Peking til Hong Kong á 15 dögum og kom meðal annars við hjá pandabjörnum, skoðaði Terracotta Army, Kínamúrinn og heimsótti Avatar þjóðgarðinn. Hvað kom henni mest á óvart? Hraðlestirnar, maturinn og hversu stórkostleg náttúran er.

Viltu vita hvernig það er í raun og veru að ferðast um Kína sem ungur ferðalangur, hvað þarf að varast og hvaða staði þú mátt alls ekki láta framhjá þér fara? Lestu áfram!

Kynnumst Önnu

Ég heiti Anna og hef starfað sem ferðaráðgjafi hjá KILROY frá árinu 2024. Ferðalög eru mitt helsta áhugamál og ég reyni að uppgötva nýjan áfangastað á hverju ári. Fyrsta stóra ævintýrið mitt var 2,5 mánaða ferðalag um Asíu þar sem ég heimsótti Dubai, Sri Lanka, Tæland, Víetnam, Japan, Kuala Lumpur og Balí. Þar kviknaði ferðabakterían fyrir alvöru og hef ég ferðast víða síðan – ævintýrin eru rétt að byrja!

Anna segir okkur frá ferðinni sinni til Kína

Anna segir okkur frá ferðinni sinni til Kína

Hversu lengi varstu á ferðalagi og hver var ferðaáætlunin?

Ég eyddi alls 16 dögum í Kína, þar af 15 dögum í skipulagðri hópferð og einni auka nótt í Hong Kong. Ferðin hófst í Peking þar sem við fengum heilan dag til að skoða Kínamúrinn og annan til að heimsækja Forboðnu borgina (Forbidden City), eitt stórt VÁ! Næst var tekin næturlest til Xi‘an að sjá Terracotta Army.

Þaðan fórum við svo til Chengdu – ef þú vilt sjá pandabirni þá er þetta staðurinn til að vera á! Við ferðuðumst eingöngu með hraðlestum og næturlestum, enda eru vegalengdirnar gríðarlegar. Frá Chengdu héldum við svo með lest til Chongqing. Klárlega ein af mínum uppáhalds borgum. Hún er afar nútímaleg og gjörólík þeim borgum sem ég hafði heimsótt áður. Þar má finna byggingar með götum á mörgum hæðum, lyftur sem flytja fólk milli mismunandi hluta borgarinnar og lestarlínu sem liggur beint í gegnum íbúðarblokk.

Næst lá leiðin til Zhangjiajie, en ég hafði lengi hlakkað til að heimsækja þennan stórbrotna þjóðgarð. Hann er sérstaklega þekktur fyrir einstaka kletta sem rísa hátt til himins og virðast næstum svífa í loftinu. Margir kannast eflaust við þetta stórkostlega landslag úr kvikmyndinni Avatar!

Þaðan fórum við með lest til Yangshuo sem var mjög krúttlegur og skemmtilegur bær! Þar er hægt að njóta stórkostlegs landslags, hjóla í náttúrunni og fara á bambusfleka. Svo tók ferðalagið á enda þar sem við slökuðum á í Hong Kong sem virkaði mjög vestræn í samanburði við hina staðina.

Sæt panda í Kína

Sæt panda í Kína

Hvað var það sem heillaði mest í ferðinni?

Það er ótrúlega erfitt að velja einn stað umfram aðra, enda heillaðist ég af hverjum einasta stað sem ég heimsótti! Ef ég þarf þó að gera upp á milli, þá stendur Zhangjiajie þjóðgarðurinn upp úr. Landslagið var svo magnað og óraunverulegt að mér leið eins og ég væri stödd inni í bíómynd. Þetta var einfaldlega engu líkt og upplifun sem ég gleymi seint!

Zhangjiajie þjóðgarðurinn

Zhangjiajie þjóðgarðurinn

Hvaða staður fannst þér fallegastur og hvers vegna?

Yangshuo er með stórkostlegt landslag, hvert sem litið er má sjá einstök fjöll. Þar er einnig Li‘áin, þar sem hægt er að fara í siglingu á bambusfleka. Yangshuo er lítill og rólegur staður þar sem við leigðum hjól og hjóluðum um landslagið og dalinn sem liggur á milli fjallanna og ánna. Þetta er eitthvað sem maður má alls ekki missa af!

Yangshuo, Kína

Yangshuo, Kína

Hvaða ráð áttu handa þeim sem heimsækja Kína í fyrsta sinn?

Undirbúðu ferðina mjög vel! Þar sem ,,venjulegu‘‘ smáforritin þín virka ekki hér er mjög mikilvægt að vera vel undirbúinn. Það getur verið snúið að sækja ný forrit í Kína og þau eru oftast aðeins fáanleg á kínversku. Sæktu því öll forritin áður en þú kemur til Kína, svo þú getir stillt tungumálið á ensku. Þú munt þurfa að greiða fyrir vörur og þjónustu í gegnum sérstakt smáforrit sem krefst nettengingar svo það er mikilvægt að vera með gott esim. Greiðslukort eru hvergi tekin gild og seðlar er heldur ekki mikið notaðir.

Mér finnst algjör snilld að ferðast með skipulögðum hóp, því annars er hægt að lenda í ýmsum áskorunum. Það er mjög þægilegt, skemmtilegt og svo kynntist ég allskonar fólki frá ýmsum löndum!

Fallegt útsýni í hópferð um Kína

Fallegt útsýni í hópferð um Kína

Hvernig fannst þér öryggið, þægindi og samskipti?

Mér fannst Kína vera mjög öruggt og mér leið aldrei óöruggri neins staðar. Samskipti geta verið aðeins flóknari þar sem fólk talar yfirleitt ekki ensku, en með þýðingarforrit í símanum kemst maður langt!

Almenningssamgöngur eru vel skipulagðar. Það er nauðsynlegt þar sem vegalengdir eru rosalegar, það er nóg af hraðlestum og næturlestum til að ferðast þvert yfir landið.

Kínamúrinn

Kínamúrinn

Skipuleggðu ferðina þína til Kína

Ef þú hefur, líkt og Anna, áhuga á náttúru, fallegu landslagi og vilt kynnast gjörólíkri menningu, þá er Kína áfangastaður sem ætti að vera á þínum óskalista. Landið er svo gríðarstórt og fjölbreytt að hver ferð verður að sannkölluðu ævintýri

Ógleymanleg ferð Önnu til Kína

Ógleymanleg ferð Önnu til Kína

Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferð?

Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.

Anna Karen Stefánsdóttir - Ferðaráðgjafi KILROY

Anna

Fáðu ferðainnblástur og einstök tilboð beint í pósthólfið þitt

Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu upplýsingar um nýjar ferðir, ferðainnblástur, viðburði og tilboð. Vertu klár í næsta ævintýri!

Hringdu í okkur

+354 517 7010

Opnunartími síma: Mánudaga - föstudaga frá 10:00 til 17:00 og laugardaga frá 13:00 - 17:00

Sendu okkur tölvupóst

travels@kilroy.is

Fyrirspurnum vegna flugmiða sem keyptir eru á netinu er svarað í tölvupósti á help@kilroy.net

Um okkur

Í meira en 30 ár hefur KILROY hjálpað forvitnum ferðalöngum að uppgötva heiminn. Við sérhæfum okkur í að skipuleggja ævintýraleg ferðalög fyrir fólk á öllum aldri, allt frá bakpokaferðalögum og heimsreisum til fjölskylduferða, fyrirtækjaferða og annarra hópferða. Hvert sem ferðalagið liggur eru ferðasérfræðingar okkar hér til að hjálpa þér að láta ferðadraumana rætast.

KILROY Iceland

Norðurturn, 11. hæð 

Hagasmári 3, 201 Kópavogur

 Opnunartími skrifstofu: Mánudaga - föstudaga frá 10:00 til 17:00

Kt. 410911-0350

© 2026 Copyright KILROY Iceland ehf