SJÁLFBOÐASTARF Í SUÐUR-AMERÍKU

Leikskóli í Ekvador
Um sjálfboðastarfið

Að ferðast með tilgangi og hafa raunveruleg áhrif

Sjálfboðastarf í Suður-Ameríku er besta leiðin til að upplifa ferðina þína á alveg einstakan hátt.

Sjálfboðastarf og ævintýri í Suður-Ameríku

Sjálfboðastarf í Suður-Ameríku er ótrúlegt tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á heiminn og öðlast persónulegan, og faglegan, þroska. Hvort sem þú brennur fyrir að vinna með börnum, hjálpa dýrum eða vernda náttúruna, þá eru ótal verkefni um alla Suður-Ameríku sem bíða eftir hjálp þinni til að ná markmiðum þínum.

Sem sjálfboðaliði verður þú ekki bara túristi - heldur kafar þú beint inn í staðbundna menningu og færð djúpan skilning á áskorunum og tækifærum svæðisins. Þú vinnur með heimafólki og öðrum alþjóðlegum sjálfboðaliðum, býrð til frábær tengsl og eignast vini úr öllum áttum. Ráð: Ef þú lærir smá spænsku, kemstu miklu nær samfélaginu!

Auk persónulegra og menningarlegra ávinninga lítur sjálfboðastarf í Suður-Ameríku frábærlega út á ferilskránni þinni. Það sýnir að þú ert ábyrg/ur, getur unnið í fjölbreyttum hópum og hefur hæfileika í samskiptum, leiðtogahlutverki og að leysa vandamál. Hjá KILROY vinnum við með fjölbreyttum grasrótaverkefnum um alla Suður-Ameríku. Hvort sem þú vilt styrkja ungt fólk, vernda dýralíf og vistkerfi eða styðja við samfélagsþróun, þá finnum við verkefni sem hentar hæfileikum þínum, áhugasviðum og markmiðum.

Tamandua Ecolodge & Reserve

Tamandua Ecolodge & Reserve

Þarftu aðstoð við að skipuleggja sjálfboðastarf erlendis?

Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.

Sjálfbær verkefni

Við vinnum eingöngu með vandlega völdum, alþjóðlegum samstarfsaðilum sem uppfylla okkar háu gæðakröfur. Þú færð þinn eigin ferðasérfræðing sem hjálpar þér að setja saman draumaferðina þína. Markmið okkar er einfalt: Að tryggja að þú eigir frábæra ferð sem þú gleymir seint!

Tamandua Eco Lodge ferð

Tamandua Eco Lodge ferð

FAQ

Algengar spurningar

Ertu með spurningar? Við höfum svörin. Hér eru spurningar sem ferðalangar spyrja oftast um sjálfboðastarf í Suður-Ameríku!

Að vinna mikið og þurfa að borga fyrir það? Það hljómar kannski skrýtið, en fjárhagslegt framlag þitt er mikilvægt. Það nær beint yfir kostnaðinn þinn og tryggir að þú leggir ekki fjárhagslega byrði á samfélagið sem þú ert að hjálpa. Þitt gjald nær yfir:

  • Gisting: Öruggt, vandað húsnæði til að sofa, taka upp úr töskunni og slaka á eftir annasaman dag.

  • Matur og drykkur: Daglegar máltíðir, oft með fersku, staðbundnu hráefni.

  • Samgöngur: Öruggar samgöngur, tengdar verkefninu, á hverjum degi, með engu veseni.

  • Stuðningur og eftirlit á staðnum: Aðgangur að staðbundnum tengiliðum allan sólarhringinn, kynning og neyðarhjálp ef þú þarft.

  • Beinn styrkur til verkefnisins: Fjármögnun fyrir nauðsynleg efni, langtímaskipulag og laun fyrir heimafólk til að halda verkefninu gangandi.

Gisting er alltaf innifalin. Það fer eftir áfangastað hvort þú gistir í sjálfboðaliðahúsi, fjörugu farfuglaheimili eða hjá hlýju heimafólki. Í sumum verkefnum geturðu valið eða uppfært í sérherbergi fyrir smá aukagjald.

Hvað matinn varðar, þá eru máltíðirnar mismunandi eftir verkefnum, en þú verður alltaf södd/saddur. Flutningar á staðinn eru innifaldir og oft nær þetta líka til flugvallarferða, þegar þú kemur og ferð, svo ferðalagið verður áhyggjulaust. Þú færð líka ítarlegar leiðbeiningar frá okkur áður en þú ferð, svo þú ert vel undirbúinn áður en þú stígur upp í flugvél.

Auðvitað gætir þú reynt að finna sjálfboðaverkefni sjálf/ur á bakpokaferðalagi, en við mælum eindregið gegn því. Án djúprar rannsóknar er nánast ómögulegt að vita hvort verkefni séu siðferðislega rétt, örugg eða hvert peningarnir þínir fara. Því miður eru sum verkefni sett upp til að græða á ferðalöngum frekar en að skapa varanlegar breytingar.

Þegar þú ferð í sjálfboðavinnu í gegnum KILROY tökum við alla vinnuna af þér. Við skoðum alla samstarfsaðila vandlega til að tryggja að þeir séu sjálfbærir, siðferðislega réttir og með hagsmuni samfélagsins í fyrirrúmi. Auk þess færð þú fullan stuðning frá okkur ef eitthvað kemur fyrir, á meðan eða eftir ferðina.

Já, alveg örugglega! Við biðjum þig þó að forðast að gefa pening beint. Einbeittu þér frekar að hlutum sem verkefninu vantar raunverulega. Ef þú ert að vinna að samfélags- eða skóla­verkefni, hugsaðu um föt, penna, stílabækur og kennslubækur.

Best er að bíða þar til þú kemur á staðinn, ræða við staðbundinn verkefnastjóra um hvað vantar mest núna og kaupa vörurnar á staðnum. Þannig tryggir þú að gjöfin nýtist 100% og styður við heimafólk með því að setja peninginn beint inn í hagkerfi hverfisins.

Þú ættir að fara í sjálfboðastarf í Suður-Ameríku ef...

...þig langar að fá aðgang að villtustu vistkerfum jarðar

Þú færð að búa, og vinna, inni í lokuðum Amazon-verndunarsvæðum og dýraathvörfum sem venjulegir túristar komast ekki inn í.

...þú vilt komast út úr túristabólunni og upplifa menninguna

Í stað þess að fara bara í gegnum staðina, deilirðu máltíðum með heimafólkinu og byggir raunveruleg tengsl við samfélagið.

...þú ert tilbúin/n í ferðalag með raunverulegan tilgang

Þig langar að styrkja ferilskrána þína með þvermenningarlegri leiðtogafærni og skilja eftir raunveruleg, varanleg áhrif á samfélög og verndunarverkefni.

Áfangastaðir

Aðrir frábærir staðir fyrir sjálfboðavinnu

Fáðu ferðainnblástur og einstök tilboð beint í pósthólfið þitt

Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu upplýsingar um nýjar ferðir, ferðainnblástur, viðburði og tilboð. Vertu klár í næsta ævintýri!

Hringdu í okkur

+354 517 7010

Opnunartími síma: Mánudaga - föstudaga frá 10:00 til 17:00 og laugardaga frá 13:00 - 17:00

Sendu okkur tölvupóst

travels@kilroy.is

Fyrirspurnum vegna flugmiða sem keyptir eru á netinu er svarað í tölvupósti á help@kilroy.net

Um okkur

Í meira en 30 ár hefur KILROY hjálpað forvitnum ferðalöngum að uppgötva heiminn. Við sérhæfum okkur í að skipuleggja ævintýraleg ferðalög fyrir fólk á öllum aldri, allt frá bakpokaferðalögum og heimsreisum til fjölskylduferða, fyrirtækjaferða og annarra hópferða. Hvert sem ferðalagið liggur eru ferðasérfræðingar okkar hér til að hjálpa þér að láta ferðadraumana rætast.

KILROY Iceland

Norðurturn, 11. hæð 

Hagasmári 3, 201 Kópavogur

 Opnunartími skrifstofu: Mánudaga - föstudaga frá 10:00 til 17:00

Kt. 410911-0350

© 2026 Copyright KILROY Iceland ehf