SJÁLFBOÐASTARF Í ASÍU

Sjálfboðavinna í Asíu
Um sjálfboðastarfið

Af hverju að gerast sjálfboðaliði í Asíu?

Hafðu áhrif sem skipta máli á meðan þú ferðast um Asíu - hvort sem það er í dýravernd, samfélagsuppbyggingu, verndun hafsins eða menntunarverkefnum.
Ferðir

Valin sjálfboðaverkefni

Upplifanir sem við mælum sérstaklega með

Hvaða sjálfboðastörf getur þú unnið í Asíu?

Asía er einn vinsælasti bakpokaferðamannastaður heims, þekkt fyrir fjölbreytt menningarsvæði, stórkostlegt landslag og ógleymanlegar ferðaupplifanir. Ef þú vilt kynnast svæðinu betur og skilja eftir þig jákvæð áhrif, þá er sjálfboðastarf í Asíu frábær viðbót við ævintýrið þitt.

Hjá KILROY vinnum við með traustum staðbundnum samstarfsaðilum til að bjóða upp á þýðingarmikil og sjálfbær sjálfboðaverkefni víðsvegar um Asíu. Hvort sem þú hefur áhuga á verndun dýralífs, samfélagsþróun, menntun eða umhverfisvernd, þá finnur þú tækifæri til að leggja þitt af mörkum og fá ómetanlega lífsreynslu.

Sjálfboðaliðar í Tælandi

Sjálfboðaliðar í Tælandi

Þarftu aðstoð við að skipuleggja sjálfboðastarf erlendis?

Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.

Verndun dýralífs og umhverfis

Hjálpaðu til við að vernda tegundir í útrýmingarhættu og varðveita sum af mikilvægustu náttúrusvæðum Asíu. Sjálfboðatækifæri eru meðal annars:

  • Björgunar- og endurhæfingarstöðvar fyrir dýralíf

  • Verndunarverkefni fyrir fíla

  • Verndunarverkefni fyrir sæskjaldbökur

  • Verkefni til að vernda sjávarlíf og kóralrif

  • Umhverfishreinsunarverkefni

  • Rannsóknar- og gagnasöfnunarverkefni

Sjálfboðavinna með bjargaðum fílum í Tælandi
Kynntu þér nýja vini alls staðar að úr heiminum
Verndunarverkefni sjávarlífs á Filippseyjum
Verndunarverkefni fyrir skjaldbökur

Sjálfboðavinna með bjargaðum fílum í Tælandi

Kynntu þér nýja vini alls staðar að úr heiminum

Verndunarverkefni sjávarlífs á Filippseyjum

Verndunarverkefni fyrir skjaldbökur

Samfélagsverkefni í Asíu

Að styðja við staðbundin samfélög og fá dýrmæta innsýn í menninguna í leiðinni. Samfélags- og menntunarverkefni gefa sjálfboðaliðum tækifæri til að aðstoða við fræðslu, samfélagsátök og verkefni sem skapa jákvæð tækifæri fyrir börn og ungt fólk.

Sjálfboðaliðastarf með börnum í Asíu
Byggingarverkefni í Laos

Sjálfboðaliðastarf með börnum í Asíu

Byggingarverkefni í Laos

FAQ

Algengar spurningar

Ertu með spurningar? Við höfum svörin. Hér eru spurningar sem ferðalangar spyrja oftast um sjálfboðaliðastarf í Asíu!

Nei. Flest verkefni eru ætluð þeim sem eru að prófa sig áfram í sjálfboðavinnu í fyrsta sinn, og þú færð kynningu og leiðsögn frá reyndum staðbundnum verkefnastjórum. Áhugi, sveigjanleiki og vilji til að hjálpa eru miklu mikilvægari en fyrri reynsla.

KILROY býður upp á sjálfboðaverkefni í Indónesíu, Filippseyjum, Nepal, Kambódíu, Víetnam, Tælandi, Laos, Sri Lanka og Suður-Kóreu - hvert land gefur þér einstaka leið til að upplifa svæðið og gefa eitthvað til baka.

Þetta er spurning sem við fáum oft. Þó þú gefir tíma og orku í þýðingarmikið verkefni, þá fer þátttökugjaldið þitt í að dekka kostnað við rekstur verkefnisins og að styðja þig á meðan dvölinni stendur. Eftir verkefnum er gjaldið þitt yfirleitt notað í:

  • Gistingu

  • Máltíðir (ef við á)

  • Samgöngur

  • Staðbundna kynningu og stuðning

  • Beinann stuðning til sjálfboðaverkefnisins

Gjaldið þitt tryggir að verkefnið geti haldið áfram að skapa jákvæð áhrif fyrir samfélagið, dýralífið eða umhverfið.

Lengd sjálfboðaverkefnisins fer eftir því hvaða verkefni þú velur. KILROY býður upp á verkefni sem eru frá einni viku upp í um 30 vikur. Flest verkefni krefjast lágmarks dvalar, en þú getur oft lengt tímann ef þú vilt.

Lágmarksdvöl er sérstaklega mikilvæg í samfélagsverkefnum þar sem traust og tengsl þarf að byggja upp. Lengri dvöl gerir upplifunina þýðingarmeiri bæði fyrir þig og þau sem þú styður við.

Hvert verkefni er aðeins ólíkt, en gistiaðstaða er alltaf innifalin. Það fer eftir verkefninu hvort þú gistir í sjálfboðaliðahúsi, farfuglaheimili eða hjá staðbundinni fjölskyldu. Sum verkefni bjóða upp á að bóka sérherbergi gegn aukagjaldi.

Mörg verkefni innihalda máltíðir, en önnur bjóða aðeins upp á morgunmat eða aðgang að sameiginlegu eldhúsi. Samgöngur til og frá sjálfboðaliðastöðinni eru skipulagðar, og oft er flugvallarskutl innifalið líka.

Já. Margir sjálfboðaliðar ferðast einir og taka þátt í verkefnum þar sem þeir hitta fólk með svipaðar áherslur frá öllum heimshornum.

Sýnir 4 / 6 niðurstöður

Þú ættir að gerast sjálfboðaliði í Asíu ef þú...

...vilt gera ferðalagið þitt meira innihaldsríkt

Leggðu þitt af mörkum í verkefnum sem hafa raunveruleg áhrif á staðbundin samfélög, menntun og umhverfi.

...ert spenntur fyrir að upplifa ekta staðbundna menningu

Að tengjast heimafólkinu og upplifa daglegt líf utan hefðbundinna túristaslóða.

...vilt læra nýja hæfni og vaxa persónulega

Þróaðu nýja hæfni, fáðu alþjóðlega reynslu og ögraðu þér í umhverfi sem gefur mikið til baka.

Fáðu ferðainnblástur og einstök tilboð beint í pósthólfið þitt

Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu upplýsingar um nýjar ferðir, ferðainnblástur, viðburði og tilboð. Vertu klár í næsta ævintýri!

Hringdu í okkur

+354 517 7010

Opnunartími síma: Mánudaga - föstudaga frá 10:00 til 17:00 og laugardaga frá 13:00 - 17:00

Sendu okkur tölvupóst

travels@kilroy.is

Fyrirspurnum vegna flugmiða sem keyptir eru á netinu er svarað í tölvupósti á help@kilroy.net

Um okkur

Í meira en 30 ár hefur KILROY hjálpað forvitnum ferðalöngum að uppgötva heiminn. Við sérhæfum okkur í að skipuleggja ævintýraleg ferðalög fyrir fólk á öllum aldri, allt frá bakpokaferðalögum og heimsreisum til fjölskylduferða, fyrirtækjaferða og annarra hópferða. Hvert sem ferðalagið liggur eru ferðasérfræðingar okkar hér til að hjálpa þér að láta ferðadraumana rætast.

KILROY Iceland

Norðurturn, 11. hæð 

Hagasmári 3, 201 Kópavogur

 Opnunartími skrifstofu: Mánudaga - föstudaga frá 10:00 til 17:00

Kt. 410911-0350

© 2026 Copyright KILROY Iceland ehf