SJÁLFBOÐASTARF Í MIÐ-AMERÍKU

Að ferðast með tilgangi um Mið-Ameríku
Langar þig að vernda dýralíf, kynnast staðbundnum samfélögum og upplifa frábæru Mið-Ameríku á meðan þú hefur raunveruleg áhrif?
Sjálfboðavinna með dýrum í Mið-Ameríku
Mið-Ameríka er eitt af líffræðilega fjölbreyttustu svæðum heims, sem gerir svæðið frábært fyrir sjálfboðastarf með dýralífi. Margar tegundir eru í hættu vegna eyðingar búsvæða þeirra og ólöglegs dýramarkaðar. Staðbundnar björgunarstöðvar treysta á sjálfboðaliða til að annast slösuð og munaðarlaus dýr áður en þeim getur vonandi verið sleppt aftur út í náttúruna.
Hvað þú gerir fer eftir verkefninu sem þú velur. Þú gætir eytt dögunum í að útbúa mat fyrir dýr sem hefur verið bjargað, þrífa búr, viðhalda dýrahælum, hjálpa til við verndunarvinnu og læra af reyndu heimafólki. Enginn dagur er eins! Þó svo að vinnan geti verið líkamlega krefjandi, þá er ótrúlega gefandi að sjá dýrin ná sér og blómstra.
Sjálfboðavinna við umönnun bjargaðra dýra
Verndun líffræðilegrar fjölbreytni í Mið-Ameríku
Sjálfboðaliðar hjálpa til við að vernda hitabeltisskóga
Dýrahæli
Þarftu aðstoð við að skipuleggja sjálfboðastarf erlendis?
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.
Hjálpaðu til við að vernda sæskjaldbökur í útrýmingarhættu
Kosta Ríka er við Kyrrahafsströndina og er einn mikilvægasti varpstaður sæskjaldbaka í heiminum. Á hverju ári styðja sjálfboðaliðar við staðbundin verndarteymi sem vinna að því að vernda hreiður, fylgjast með ströndum og gefa ungum skjaldbökum bestu mögulegu tækifæri til að komast örugglega til sjávar.
Verkin eru mismunandi eftir árstíma, en þú gætir hjálpað til við að vakta ströndina á nóttunni, safna mikilvægum verndargögnum, flytja viðkvæm hreiður og aðstoða við að sleppa ungum skjaldbökum. Þetta er einstakt tækifæri til að upplifa náttúruna í nærmynd og leggja þitt af mörkum til að vernda eina af mikilvægustu dýrategundum hafsins.
Hjálpaðu einni af helstu tegundum hafsins
Sjálfboðavinna við verndun sæskjaldbaka
Aðstoð við að sæskjaldbakaungar komist til sjávar
Strandvernd með tilgang
Algengar spurningar
Ertu með spurningar? Við höfum svörin. Hér eru spurningar sem ferðalangar spyrja oftast um sjálfboðastarf í Mið-Ameríku!
KILROY býður upp á fjölbreytt sjálfboðavinnuverkefni um alla Mið-Ameríku. Þú getur hjálpað til við umönnun bjargaðra dýra á björgunarstöðvum, stutt við verndunarverkefni sæskjaldbaka á Kyrrahafsströnd Kosta Ríka eða sameinað sjálfboðavinnu við spænskunám og surf.
Nei. Flest verkefni eru hönnuð fyrir fólk sem er að prófa sjálfboðavinnu í fyrsta skipti. Þú færð kynningu og leiðsögn frá reyndum skipuleggjendum verkefnanna. Áhugi, sveigjanleiki og vilji til að hjálpa skipta meira máli en fyrri reynsla.
KILROY býður upp á sjálfboðaverkefni í Kosta Ríka, Nicaragua og Guatemala, þar sem þú getur upplifað svæðið á einstakan hátt og gefið til baka. Flest verkefnin eru í Kosta Ríka, þar sem þú getur tekið þátt í björgunarstöðvum fyrir dýr, verndunarverkefnum sæskjaldbaka eða sameinað sjálfboðavinnu við spænskunám og surf. Ef þú vilt skoða meira af Mið-Ameríku, getur þú líka bætt Nicaragua eða Guatemala við ferðaplanið fyrir eða eftir verkefnið.
Þetta er spurning sem við fáum oft. Þú gefur tíma og orku í verkefni sem skiptir máli, en þátttökugjaldið þitt fer í að standa straum af kostnaði við að halda verkefninu gangandi og að styðja þig á meðan á dvölinni stendur. Það sem gjaldið þitt nær yfir fer eftir verkefninu, en yfirleitt innifalið:
Gisting
Máltíðir (þar sem það á við)
Samgöngur
Staðbundin kynning og stuðningur
Bein fjárhagslegur stuðningur við sjálft sjálfboðaverkefnið
Þátttökugjaldið þitt tryggir að verkefnið geti haldið áfram að hafa jákvæð áhrif á samfélagið, dýralíf eða umhverfið á staðnum.
Lengd sjálfboðaverkefnisins veltur á því hvaða verkefni þú velur. KILROY býður upp á verkefni sem eru frá einni viku upp í um 30 vikur. Flest verkefni krefjast lágmarksdvalar, en oft getur þú lengt dvölina ef þér hentar.
Lágmarksdvöl er sérstaklega mikilvæg í samfélagsverkefnum þar sem það tekur tíma að byggja upp traust og tengsl. Lengri dvöl gerir upplifunina dýpri og gefandi bæði fyrir þig og þau sem þú styður.
Það virðist kannski auðvelt að finna sjálfboðastarf þegar þú ert komin/n á áfangastað, en það getur verið erfitt að vita hvort verkefnið sé siðferðislega rétt og raunverulega gagnlegt fyrir samfélagið á staðnum. Sum samtök setja hagnað í forgang fram yfir áhrif eða hafa lítið langtímagildi fyrir fólk, dýr eða umhverfi sem þau eiga að styðja.
Með því að fara í sjálfboðaverkefni í gegnum KILROY getur þú verið viss um að þú sért að taka þátt í vandlega völdum verkefnum sem leggja áherslu á ábyrga og sjálfbæra sjálfboðavinnu. Þú færð líka stuðning fyrir, á meðan og eftir dagskrána ef þú þarft á því að halda.
Við trúum því að sjálfboðavinna eigi að hafa jákvæð áhrif, bæði fyrir þig og samfélagið á staðnum. Þess vegna skoðum við hvert verkefni vandlega áður en við bjóðum verkefnin ferðalöngum KILROY. Við athugum hvernig verkefnið er rekið, hvort það sé með langtímamarkmið, hvernig samfélagið tekur þátt og hvernig sjálfboðaliðar leggja sitt af mörkum á raunverulegan hátt.
Sjálfboðaverkefnin okkar eru persónulega yfirfarin af sérfræðingi í sjálfboðavinnu sem vinnur náið með staðbundnum samstarfsaðilum til að tryggja að þau uppfylli okkar kröfur um ábyrga og siðferðislega sjálfboðavinnu. Þetta þýðir að þú getur ferðast með vitneskju um að tíminn og framlagið þitt skipti raunverulegu máli.
Hvert verkefni er aðeins öðruvísi, en gisting er alltaf innifalin. Það fer eftir verkefni hvort þú gistir í sjálfboðaliðahúsi, á farfuglaheimili eða hjá lókal fjölskyldu. Sum verkefni bjóða einnig upp á að bóka einkaherbergi gegn aukagjaldi.
Mörg verkefni innihalda máltíðir, en önnur bjóða aðeins upp á morgunmat eða aðgang að sameiginlegu eldhúsi. Samgöngur til og frá sjálfboðastöðinni eru skipulagðar og í mörgum tilfellum er flugvallarskutl innifalið líka.
Sýnir 4 / 8 niðurstöður
Lærðu spænsku, surfaðu og hjálpaðu til sem sjálfboðaliði
Viltu gera ferðina þína enn meira spennandi? Í Mið-Ameríku getur þú sameinað sjálfboðastarf, spænskunám og surf. Þetta er frábær leið til að kafa djúpt inn í staðbundna menningu og læra nýja hluti bæði á landi og í sjó.
Morgnarnir fara í spænskukennslu, síðdegin í surf og hluti vikunnar í að leggja þitt af mörkum sem sjálfboðaliði í samfélaginu. Þessi blanda gefur þér tækifæri til að tengjast heimafólki, bæta tungumálakunnáttuna og hafa jákvæð áhrif - allt í einu ógleymanlegu ævintýri.
Endurheimt strandvistkerfa í Mið-Ameríku
Lærðu að surfa
Menningarskipti í gegnum sjálfboðastarf
Lærðu spænsku á meðan þú ert sjálfboðaliði
Aðstoð við verkefni sem bæta samfélagið
Sameinaðu sjálfboðastarf og yoga
Þú ættir að gerast sjálfboðaliði í Mið-Ameríku ef...
...þú vilt hjálpa til við að vernda ótrúlegt dýralíf
Frá björgun letidýra og apa, til verndun sjávarskjaldbaka í útrýmingarhættu.
...þér finnst gaman að blanda ævintýrum við alvöru tilgang
Bakpokaferðalag sem inniheldur surf, spænskunámskeið og sjálfboðaliðaupplifun - getur ekki klikkað.
...þig langar að ferðin þín skilji eftir sig jákvæð áhrif
Að styðja við verkefni sem gera raunverulegan mun fyrir fólk, dýr og náttúru.





























