SJÁLFBOÐASTARF Í AFRÍKU

Sólsetur í Afríku
Um sjálfboðastarfið

Að ferðast með tilgangi og hafa raunveruleg áhrif

Hvernig hljómar það að vinna með dýrum, styðja staðbundin samfélög og upplifa Afríku á ótroðnum slóðum?

Ekki bara heimsækja Afríku. Taktu þátt.

Sjálfboðavinna í Afríku gefur þér tækifæri til að ferðast með tilgang. Hvort sem þú hjálpar til við að vernda dýralíf í útrýmingarhættu, styður staðbundin samfélög eða tekur þátt í menntunarverkefnum - þá ertu að leggja þitt af mörkum og upplifa hlið á Afríku sem margir ferðalangar sjá aldrei.

Þú hittir fólk með ólíkan bakgrunn, stígur út fyrir þægindarammann og verður hluti af verkefni sem hefur raunveruleg áhrif.

Þú sérð ótrúlegt landslag, rekst á dýralíf og upplifir menningu, samfélög og staði sem eru allt öðruvísi en heima. Sjálfboðastarf gefur þér eitthvað sem flestar fríferðir gera ekki - tækifæri til að vera hluti af daglegu lífi. Í stað þess að fara bara í gegnum staðina, eyðir þú tíma með heimafólki, lærir um áskoranir sem þau standa frammi fyrir og leggur þitt af mörkum í verkefni sem miða að langtíma jákvæðum breytingum.

Kannski eyðir þú morgnunum í að kenna börnum í staðbundnum skóla, kannski hjálpar þú til við að endurnýja samfélagsaðstöðu eða kannski ert þú að fylgjast með dýrum og hjálpa til við björgun dýralífs. Hvert verkefni er einstakt!

Sjálfboðavinna og byggingarvist í Afríku
Vinna með staðbundnum samfélögum í Afríku
Sjálfboðaverkefni í múrverk í Afríku
Hópur fólks í sjálfboðavinnu í Afríku
Ljón í grasinu í Afríku

Sjálfboðavinna og byggingarvist í Afríku

Vinna með staðbundnum samfélögum í Afríku

Sjálfboðaverkefni í múrverk í Afríku

Hópur fólks í sjálfboðavinnu í Afríku

Ljón í grasinu í Afríku

Þarftu aðstoð við að skipuleggja sjálfboðastarf erlendis?

Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.

Veldu verkefni sem þú ert virkilega ástríðufull/ur fyrir

Bestu reynslurnar sem sjálfboðaliði eru ekki endilega þær sem eru mest framandi - heldur þær sem passa við áhugasviðið þitt. Elskar þú dýr? Skoðaðu verndunarverkefni í Suður-Afríku, Namibíu eða Seychelles-eyjum. Hefur þú áhuga á menntun? Hugsaðu um kennslu, barnaumönnun eða samfélagsþróunarverkefni. Ástríðufull/ur fyrir íþróttum? Sum verkefni sameina þjálfun og menntun, þar sem fótbolti eða surf er notað til að virkja ungt fólk á staðnum. Þú leggur meira af mörkum og færð miklu meira út úr reynslunni þegar þú ert að gera eitthvað sem þú brennur fyrir.

Sjálfboðavinna með dýralífi:

Afríka er heimili sumra af þekktustu dýrum heims. Sem sjálfboðaliði í dýralífi getur þú stutt við baráttuna gegn veiðum, fylgst með verndunarsvæðum, aðstoðað við endurhæfingu dýra eða tekið þátt í rannsóknum á verndun. Þetta er ekki safarí - þú færð að sjá bakvið tjöldin hjá fólki, sem vinnur daglega við verndun dýralífs í Afríku, og færð mun dýpri skilning á verndun en þú myndir fá úr aftursæti í game-drive.

Suður-Afríka

Einn vinsælasti áfangastaðurinn fyrir sjálfboðastarf með dýralífi. Verkefnin eru allt frá rannsóknum á verndun og stjórnun friðlenda, til endurhæfingar dýra og umhverfisfræðslu. Þú eyðir dögunum í ótrúlegu landslagi og með sumum af frægustu dýrum Afríku.

Namibía

Víðáttumikið landslag, ótrúlegt eyðimerkur dýralíf og mikilvæg verndunarverkefni. Sjálfboðavinnumöguleikar hér snúast oft um verndun dýrategunda, vistkerfa og sjálfbæra stjórnun dýralífs.

Seychelles-eyjar

Ekki öll verndunarverkefni snúast um stór spendýr. Á Seychelles-eyjum getur þú hjálpað til við að vernda einstök vistkerfi, styðja við sjávarverndunarverkefni og lagt þitt af mörkum til að varðveita eitt fallegasta eyjaumhverfi heims.

Sjálfboðavinna með staðbundnum samfélögum:

Ef þér finnst betra að vinna með fólki en dýrum eru fjölmörg tækifæri til að styðja við staðbundin samfélög um alla Afríku. Samfélagsverkefni miða að langtímabættri menntun, innviðum, barnaumönnun og hæfileikaþróun. Þú vinnur með heimafólkinu, í stað þess að horfa bara á frá hliðarlínunni - og það er oft þar sem mest gefandi reynslan gerist.

Úganda

Úganda býður upp á fjölbreytt samfélagsverkefni. Þú gætir hjálpað til við að endurnýja skóla, styðja við barnaumönnunarmiðstöðvar, aðstoðað við samfélagsþróun eða tekið þátt í menntunarverkefnum. Lífið gengur á öðrum hraða hér og þú kemst fljótt inn í staðbundna menningu og daglegt líf.

Suður-Afríka

Auk dýralífsverkefna býður Suður-Afríka einnig upp á fjölbreytt samfélagsverkefni. Þú getur stutt skóla, unnið með börnum, aðstoðað við eftir-skóla starfsemi eða hjálpað til við að koma á mennta- og tómstundarverkefnum sem skapa tækifæri fyrir ungt fólk.

Sjálfboðavinna við byggingar í Afríku
Að gefa litlum apa að borða í sjálfboðavinnu í Afríku
Meerkat - sjálfboðavinna með dýralífi í Afríku
Að kenna börnum í sjálfboðavinnu í Afríku

Sjálfboðavinna við byggingar í Afríku

Að gefa litlum apa að borða í sjálfboðavinnu í Afríku

Meerkat - sjálfboðavinna með dýralífi í Afríku

Að kenna börnum í sjálfboðavinnu í Afríku

FAQ

Algengar spurningar

Mörg verkefni eru hönnuð fyrir þá sem eru að prófa sjálfboðavinnu í fyrsta skipti og bjóða upp á þjálfun og stuðning þegar þú kemur. Jákvæðni, vilji til að hjálpa og áhugi á verkefninu eru oft mikilvægari en fyrri reynsla.

Verkefnin eru fjölbreytt - allt frá verndun dýra og velferð þeirra yfir í kennslu, barnagæslu, íþróttaþjálfun og samfélagsverkefni. Þú getur valið verkefni sem passar við áhugasvið þín, hæfileika og ferðamarkmið.

Flest verkefni taka á móti sjálfboðaliðum í 2 vikur eða lengur, allt upp í nokkra mánuði. Við mælum yfirleitt með að vera í 2 til 4 vikur svo þú fáir sem mest út úr upplifuninni og leggir þitt af mörkum.

Algjörlega! Margir ferðalangar blanda sjálfboðavinnu við önnur ævintýri - hvort sem það er road trip í Suður-Afríku, safari í Austur-Afríku, eyjahopp á Seychelles eða lengra bakpokaferðalag um álfuna. KILROY getur hjálpað þér að setja saman draumaferðina í kringum verkefnið.

Þú ættir að fara í sjálfboðavinnu ef þú...

...elskar dýr og náttúru

Taktu þátt í verndunarstarfi sem hjálpar til við að vernda nokkrar af þekktustu tegundum Afríku.

...vilt hafa jákvæð áhrif á meðan þú ferðast

Leggðu þitt af mörkum til verkefna sem styðja við verndun dýra eða staðbundin samfélög.

...vilt öðlast dýrmæta lífsreynslu

Byggðu upp sjálfstraust, sjálfstæði og nýja sýn á lífið.

Áfangastaðir

Aðrir frábærir staðir fyrir sjálfboðavinnu

Fáðu ferðainnblástur og einstök tilboð beint í pósthólfið þitt

Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu upplýsingar um nýjar ferðir, ferðainnblástur, viðburði og tilboð. Vertu klár í næsta ævintýri!

Hringdu í okkur

+354 517 7010

Opnunartími síma: Mánudaga - föstudaga frá 10:00 til 17:00 og laugardaga frá 13:00 - 17:00

Sendu okkur tölvupóst

travels@kilroy.is

Fyrirspurnum vegna flugmiða sem keyptir eru á netinu er svarað í tölvupósti á help@kilroy.net

Um okkur

Í meira en 30 ár hefur KILROY hjálpað forvitnum ferðalöngum að uppgötva heiminn. Við sérhæfum okkur í að skipuleggja ævintýraleg ferðalög fyrir fólk á öllum aldri, allt frá bakpokaferðalögum og heimsreisum til fjölskylduferða, fyrirtækjaferða og annarra hópferða. Hvert sem ferðalagið liggur eru ferðasérfræðingar okkar hér til að hjálpa þér að láta ferðadraumana rætast.

KILROY Iceland

Norðurturn, 11. hæð 

Hagasmári 3, 201 Kópavogur

 Opnunartími skrifstofu: Mánudaga - föstudaga frá 10:00 til 17:00

Kt. 410911-0350

© 2026 Copyright KILROY Iceland ehf