SAFARÍ OG DÝRALÍF Í TANSANÍU

Safarí í Tansaníu: Möst fyrir dýraunnendur
Farðu í safarí í Tansaníu fyrir The Big Five, The Great Migration og ævintýri sem þú gleymir aldrei.
Af hverju ættir þú að fara í safarí í Tansaníu?
Þegar þú ferð í safaríferð í Tansaníu er hver sjón eins og úr kvikmynd og hvert augnablik minnisstæðara en það síðasta. Stundum ertu að keyra yfir graslendi með akasíutrjám á sjóndeildarhringnum. Næsta augnablik gengur hópur fíla yfir veginn, gíraffi hverfur inn á milli trjána eða ljón liggur kyrrt í skugganum. Bættu við víðáttumiklum sléttum Serengeti, dramatíska Ngorongoro eldfjallinu og tækifærinu til að sjá ,,The Big Five" í villtri náttúru og þá er auðvelt að skilja af hverju Tansanía er einn af klassískum safaríáfangastöðum Afríku. Og það besta? Þú getur auðveldlega gert ævintýrið að þínu eigin, hvort sem þú vilt nokkra daga í safarí eða stærri Tansaníuferð þar sem þú sameinar dýralíf, gönguferðir og strendur.
Vertu tilbúinn fyrir epísk sjálfsmyndatök
Útsýni yfir Kilimanjaro-fjallið
Sebra í grænu grasi
Ljón að slaka á undir trjánum
Gíraffar á savanna
Notalegt safari-lodge
Fílar og tré í bakgrunni
Valdar upplifanir og afþreyingar
Kynntu þér fjölbreytt úrval spennandi upplifana
Þarftu aðstoð við að skipuleggja safaríferð?
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.
Hvar getur þú farið í safarí í Tansaníu?
Tansanía er heimili sumra af frægustu safaríáfangastöðum Afríku og hver þeirra býður upp á eitthvað sérstakt. Svo, hvert ættir þú að fara?
Serengeti þjóðgarðurinn: Þetta er stóra svæðið. Nafnið þýðir „endalausar sléttur“ og þegar þú ert þar skilurðu af hverju. Gullin graslendi teygja sig að sjóndeildarhringnum, með akasíutrjám og troðfull af dýrum. Hér er best að leita að ljónum, hlébörðum, fílum, hýenum og stórum hópum gnúa og sebrahesta. Þegar ,,The Great Migration" á sér stað, ferðast milljónir dýra yfir víða Serengeti-svæðið í leit að fersku vatni. Þetta er einn af stórbrotnustu dýraatburðum heimsins.
Ngorongoro: Ngorongoro er stórt eldfjall sem hefur hrunið og við rætur þess safnast villt dýr. Frá brúninni geturðu horft niður yfir grænt landslagið áður en þú leitar að ljónum, fílum, flóðhestum, hýenum og ef þú ert heppin/n, sjaldgæfum svörtum nashyrningum. Landslagið hér er jafn áhrifamikið og dýrin.
Ruaha þjóðgarðurinn: Ef þú vilt rólegra umhverfi, þá býður Ruaha þjóðgarðurinn upp á víðáttumikið landslag og færri gesti en í frægustu svæðum Tansaníu. Ruaha-áin verður mikilvæg vatnsuppspretta á þurrkatímabilinu og dýrin safnast að bökkum hennar - og það eykur líkurnar á að sjá sem fjölbreyttasta dýralífið. Færri ferðamenn gera upplifunina friðsælli.
Tarangire þjóðgarðurinn: Tarangire er frábær viðkomustaður, sérstaklega ef þú elskar fíla. Stórir hópar safnast að Tarangire-ánni, á meðan risavaxin baóbab-tré gefa landslaginu allt annan svip en opnar sléttur Serengeti. Hér geturðu líka séð ljón, gíraffa og fullt af fuglum.
Hvort sem þú ert að leita að klassísku ,,The Big Five", dramatísku landslagi, stórum dýrahópum eða rólegra safarí fjarri mannfjöldanum, þá gefur Tansanía þér fullt af valkostum. Af hverju ekki að prófa smá af öllu?
Hópur fíla að ganga yfir veginn í Serengeti
Ljón að hvíla sig á steini í Serengeti
Ngorongoro-kröfan
Ngorongoro-verndarsvæðið
Tarangire þjóðgarðurinn
Frá safarí yfir í strendur eða gönguferðir
Eitt af því besta við að ferðast um Tansaníu er hversu auðvelt það er að blanda saman ólíkum ævintýrum.
Ef þú ert spennt/ur fyrir fleiri ævintýrum eftir safaríferðina, af hverju ekki að klífa Mount Kilimanjaro? Fjallið er 5.895 metrar á hæð, hæsta fjall Afríku og alvöru áskorun - en líka stórkostleg upplifun.
Hvort sem þú hefur klifið Kilimanjaro eða ekki, þá gæti Zanzibar verið staðurinn til að hægja á ferðinni, slaka á og láta allar upplifanirnar setjast. Hugsaðu um hvítar sandstrendur, hlýtt vatn Indlandshafsins og nægan tíma til að synda, snorkla eða bara gera ekki neitt. Og ef þú ert ekki búin/n að skoða nóg af dýrum, þá er Zanzibar líka frábær staður til að kafa.
Kilimanjaro, hæsta fjall Afríku
Á toppi Kilimanjaro
Hvít sandströnd á Zanzibar
Hótel sundlaug á Zanzibar
Slakaðu á og kældu þig niður við sundlaugina
Algengar spurningar
Fáðu svör við öllum spurningum þínum um safaríferðir í Tansaníu.
Já. Tansanía er einn af þekktustu safarí-áfangastöðum Afríku og býður upp á frábær tækifæri til að sjá fjölbreytt dýralíf í mörgum þjóðgörðum. Hvort sem þetta er fyrsta safaríferðin þín eða ekki, þá geturðu verið viss um að skapa ógleymanlegar minningar.
Þurrkatímabilið, frá júní til október, er yfirleitt besti tíminn til að sjá dýralíf, þar sem dýrin safnast oft saman við vatnsbólin og gróðurinn er þynnri. The ,,Great Migration'' er oft best að fylgjast með frá júlí til október, þó tímasetningin breytist á milli ára. Í janúar og febrúar er burðartími í suðurhluta Serengeti, þegar þúsundir gnúar fæða og rándýr eru oft nálægt.
Í Tansaníu hefur þú tækifæri til að sjá „The Big Five“: Ljón, hlébarða, fíl, nashyrning og vatnabuffaló. Dýralíf er óútreiknanlegt og það er aldrei hægt að lofa að þú sjáir öll - en haltu augunum opnum og þú gætir náð að spotta þau öll.
Safarí getur tekið allt frá nokkrum dögum upp í viku eða lengur, allt eftir því hversu marga þjóðgarða þú vilt heimsækja og hversu hratt þú vilt ferðast. Um 3-5 dagar eru góð byrjun til að sjá það helsta í Tansaníu, en lengri ferð gefur þér tækifæri til að sameina fleiri þjóðgarða og ferðast á rólegra tempó-i.
Algjörlega! Zanzibar er vinsæl viðbót við safaríferð í Tansaníu og býður upp á allt annan takt, með hvítum sandströndum og hlýjum sjó við Indlandshafið. Það er frábær leið til að slaka á eftir ævintýralega daga í safarí.
Já, margir ferðalangar sameina safaríferð við göngu á Kilimanjaro. Það gerir ferðina einstaklega ævintýralega, að fara frá sléttum Tansaníu upp á hæsta fjall Afríku.
Sýnir 4 / 6 niðurstöður
Þú ættir að fara í safarí í Tansaníu ef þú...
...vilt sjá „The Big Five“
Tansanía býður upp á nokkrar af þekktustu dýraupplifunum heims og frábært tækifæri til að sjá „The Big Five“: ljón, hlébarða, nashyrning, fíl og vatnabuffaló.
...einfaldlega elskar náttúruna
Tansanía snýst ekki bara um að merkja dýr af listanum. Landslagið sjálft er stór hluti af upplifuninni; endalausar sléttur, gígar og gróskumiklir árbakkar.
...vilt sameina safarí við önnur ævintýri
Bættu við nokkrum dögum á ströndinni í Zanzibar eða skoraðu á þig að fara á Kilimanjaro - Tansanía gerir það auðvelt að breyta safarí í mun stærra ævintýri.
Aðrir frábærir safaríáfangastaðir
Fjölbreytt úrval af vinsælum safaríáfangastöðum.
















































