SAFARÍ OG DÝRALÍF Í SUÐUR-AFRÍKU

Fílar í Suður-Afríku
Um safarí í Suður-Afríku

Mögnuð safaríupplifun í Suður-Afríku

Sjáðu ,,The Big Five", vaknaðu við hljóðin í afrísku dýralífi og skoðaðu dýrategundir sem eru hvergi annars staðar á jörðinni.

Safarí í Suður-Afríku: Þar sem dýralífsdraumar rætast

Suður-Afríka er einn af þekktustu safaríáfangastöðum heims, frægur fyrir víðáttumikil savanna, fjölbreytt dýralíf og ógleymanlegt landslag. Hvort sem þetta er fyrsta safaríferðin þín eða þú ert vanur ferðalangur, þá heldur þessi staður áfram að heilla. Hér færð þú tækifæri til að upplifa ótrúlega náttúru Afríku í návígi, frá endalausum sléttum til gróskumikils runnlendis sem iðar af lífi.

Flestir ferðalangar koma til Suður-Afríku með von um að sjá hin goðsagnakenndu Big Five: ljón, hlébarða, fíl, nashyrning og buffalo. Þessi dýr eru á óskalistanum hjá mörgum, en upplifunin nær langt út fyrir það. Hver safaríferð er einstök og eftir árstíma, staðsetningu og tíma dags getur þú upplifað ólík dýralífsmóment. Allt frá friðsælum dýrahópum á beit við sólarupprás til rándýra í leit að næstu máltíð. Það er það sem gerir safarí í Suður-Afríku svo sérstakt: Engir tveir dagar í villtri náttúru eru eins.

Njóttu safariferða snemma morguns
Sjáðu fílana í villtri náttúru
Safariferð um Kruger þjóðgarðinn
Upplifðu villt dýralíf á safari
Upplifðu dýralíf með leiðsögumanni

Njóttu safariferða snemma morguns

Sjáðu fílana í villtri náttúru

Safariferð um Kruger þjóðgarðinn

Upplifðu villt dýralíf á safari

Upplifðu dýralíf með leiðsögumanni

Þarftu aðstoð við að skipuleggja safaríferð?

Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.

Að skipuleggja safaríævintýrið þitt

Það eru ótal safarí möguleikar í Suður-Afríku og því getur verið erfitt að ákveða hvert þú vilt fara og hvaða upplifun hentar þér best. Gott er að hugsa um hvað þú vilt sjá - hvaða dýr eru á óskalistanum, hvernig þú vilt ferðast um, hversu mikil þægindi þú vilt og hversu marga daga þú hefur. Þessar ákvarðanir móta safaríupplifunina þína.

Frægasti safarí-áfangastaðurinn er án efa Kruger þjóðgarðinn, en Suður-Afríka býður líka upp á önnur ótrúleg safarí-svæði, hvert með sinn karakter og dýralífsupplifanir. Margar ferðir okkar innihalda þessi heimsþekktu svæði. Hvort sem þú vilt klassíska safaríferð, eða blanda henni við aðra hápunkta sem landið býður upp á, þá getum við hjálpað þér að skipuleggja ferð sem passar ferðastílnum þínum fullkomlega.

Nærmynd af zebrum í villtri náttúru
Ævintýri í safariferð snemma morguns
Ljón í afrísku runnlendi
Fíll að ganga yfir veginn
Dýralíf skoðað með leiðsögumanni

Nærmynd af zebrum í villtri náttúru

Ævintýri í safariferð snemma morguns

Ljón í afrísku runnlendi

Fíll að ganga yfir veginn

Dýralíf skoðað með leiðsögumanni

FAQ

Algengar spurningar

Hér er allt sem þú þarft að vita áður en þú ferð út í villta náttúru Suður-Afríku.

Besti tíminn til að fara í safarí er á þurrkatímabilinu (maí til október). Þá er gróðurinn þynnri, vatnsból takmörkuð og dýrin safnast því saman við ár og vatnsból - þá er auðveldara að finna þau. Sumarmánuðirnir (nóvember til apríl) eru grænni og frábærir fyrir fuglaskoðun, en að finna stóru dýrin getur verið aðeins erfiðara.

Suður-Afríka er fræg fyrir Big Five: ljón, hlébarða, fíl, nashyrning og buffalo. Þú getur líka séð gíraffa, sebrahesta, flóðhesta, krókódíla, antilópur og fjölmargar fuglategundir. Hver safarí-ferð er einstök og það er mikilvægt að muna að þetta eru villt dýr í náttúrulegu umhverfi og því er ekki hægt að ábyrgjast að þú sjáir þau - hver upplifun er einstök, háð heppni, tíma og aðstæðum.

Venjulegt safarí tekur 2 til 5 daga, en lengri ferðir gefa þér betri möguleika á að sjá fjölbreyttari dýralíf og mismunandi vistkerfi. Margir ferðalangar sameina safarí við aðra hápunkta eins og Cape Town eða Garden Route.

Flestar safaríferðir eru með reyndum leiðsögumanni, sérstaklega í þjóðgörðum og einkavernduðum svæðum. Leiðsögumenn vita hvar dýrin eru og deila innsýn sem þú myndir annars missa af. Sjálfkeyrandi safaríferðir eru líka mögulegar á stöðum eins og Kruger National Park ef þú vilt meiri sveigjanleika.

Taktu létt, litalaus föt, hlýtt lag fyrir morgnana, þægilega skó, sólarvörn, flugnaeitur, sjónauka og góða myndavél. Hitastig getur breyst hratt milli dags og nætur, svo það er mikilvægt að klæða sig í lögum.

Sýnir 4 / 5 niðurstöður

Safarí í Kruger National Park

Kruger National Park er eitt af bestu safaríáfangastöðum Suður-Afríku og það eru mismunandi leiðir til að upplifa hann. Þú getur valið sjálfkeyrslu safarí, byrjað frá Jóhannesborg og kannað garðinn í eigin bílaleigubíl. Þessi valkostur gefur þér frelsi og sveigjanleika, með gistimöguleikum bæði innan og utan garðsins og aðgangi í gegnum níu mismunandi hlið sem eru á norður-, mið- og suðursvæðum. Ferðasérfræðingar okkar geta hjálpað þér með hagkvæma bílaleigu og fleira. Hins vegar getur það verið meiri áskorun að finna dýrin sjálfur, þar sem þú hefur ekki aðgang að sérfræðiþekkingu eða rauntíma dýraeftirliti. Við mælum því með að fara í safarí með leiðsögn, þar sem reyndir leiðsögumenn vita nákvæmlega hvar dýrin eru og hafa samskipti sín á milli yfir daginn til að auka möguleika þína á að sjá dýrin.

Með KILROY getur þú bókað hagkvæmar Kruger safaríferðir með faglegum leiðsögumönnum sem deila innsýn um dýrin, hegðun þeirra og ótrúlega líffræðilega fjölbreytni garðsins. Ef þú ert á ferð með Baz Bus Flexi Pass getur þú jafnvel bætt við margra daga safarí í Kruger sem hluta af bakpokaferðalaginu.

Leiðsögumaður getur gert villidýraævintýrið þitt enn betra

Leiðsögumaður getur gert villidýraævintýrið þitt enn betra

Þú ættir að fara í safarí í Suður-Afríku ef þú...

...vilt einn besta möguleikann á að sjá "The Big Five"

Suður-Afríka er eitt besta safaríland Afríku til að sjá ljón, fíl, nashyrning og hlébarða, sérstaklega í þjóðgörðum eins og Kruger National Park.

...hefur áhuga á safaríferð sem er aðgengileg

Hvort sem þú ert að fara í fyrsta skipti eða ekki, þá býður Suður-Afríka upp á auðveldar ferðaleiðir og fjölbreyttar safaríferðir til að velja úr.

...leitar að safarí á góðu verði

Suður-Afríka er hagkvæmari en lönd eins og Kenía eða Tansanía, með sveigjanlegri valkostum um gistingu, samgöngur og leiðsögn.

Fáðu ferðainnblástur og einstök tilboð beint í pósthólfið þitt

Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu upplýsingar um nýjar ferðir, ferðainnblástur, viðburði og tilboð. Vertu klár í næsta ævintýri!

Hringdu í okkur

+354 517 7010

Opnunartími síma: Mánudaga - föstudaga frá 10:00 til 17:00 og laugardaga frá 13:00 - 17:00

Sendu okkur tölvupóst

travels@kilroy.is

Fyrirspurnum vegna flugmiða sem keyptir eru á netinu er svarað í tölvupósti á help@kilroy.net

Um okkur

Í meira en 30 ár hefur KILROY hjálpað forvitnum ferðalöngum að uppgötva heiminn. Við sérhæfum okkur í að skipuleggja ævintýraleg ferðalög fyrir fólk á öllum aldri, allt frá bakpokaferðalögum og heimsreisum til fjölskylduferða, fyrirtækjaferða og annarra hópferða. Hvert sem ferðalagið liggur eru ferðasérfræðingar okkar hér til að hjálpa þér að láta ferðadraumana rætast.

KILROY Iceland

Norðurturn, 11. hæð 

Hagasmári 3, 201 Kópavogur

 Opnunartími skrifstofu: Mánudaga - föstudaga frá 10:00 til 17:00

Kt. 410911-0350

© 2026 Copyright KILROY Iceland ehf