SAFARI Í BOTSVANA

Upplifðu Okavango-flóann í Botsvana.
Um safarí í Botsvana

Dýralíf sem toppar allt

Frá mögnuðu dýralífi til afskekktra landsvæða. Botsvana er draumastaðurinn fyrir ógleymanlegt safarí ævintýri í Afríku.

Alvöru safaríævintýri

Gleymdu troðfullum útsýnisstöðum og röðum af safarí-bílum. Í Botsvana er þetta öðruvísi. Hér svífur þú um Okavango Deltsa í hefðbundnum mokoro-kanó, horfir á fíla ganga framhjá tjaldstæðinu þínu og sofnar við hljóðin í afrísku náttúrunni. Þetta er hrátt, afskekkt og fullt af dýraupplifunum sem láta þig leggja símann frá þér og njóta augnabliksins.

Stundum ertu að fylgjast með ljónum á safarí-akstri, en stundum að sigla um vatnið umkringd/ur flóðhestum og litríkum fuglum. Með einhverjum hreinustu þjóðgörðum Afríku og mikla áherslu á ábyrga ferðamennsku, færðu safarí upplifun sem er ekta, ævintýraleg og sannarlega villt í Botsvana.

Ótamdar víðáttur í Botsvana.
Vertu þar sem allt gerist - nálægt náttúrunni.
Sjáðu villt dýr við hvert fótmál.
Útsýni sem á sér enga líka.
Farðu í safari-akstur í opnum jeppum.

Ótamdar víðáttur í Botsvana.

Vertu þar sem allt gerist - nálægt náttúrunni.

Sjáðu villt dýr við hvert fótmál.

Útsýni sem á sér enga líka.

Farðu í safari-akstur í opnum jeppum.

Þarftu aðstoð við að skipuleggja safaríferð?

Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.

Safarí er skemmtilegra saman

Ímyndaðu þér rykugar slóðir, sólsetur á tjaldsvæðinu og bíl fullan af nýjum vinum sem eru jafn spenntir að sjá ljón og þú. Safarí og hópferðir passa fullkomlega saman og snúast um ferðalagið sjálft, ekki bara áfangastaðinn. Dæmigerð hópferð blandar saman helstu safarí-perlum Botsvana, eins og Okavango Delta og Chobe National Park, með fullt af ógleymanlegum augnablikum á leiðinni. Einn daginn ertu að sigla í mokoro-kanó, þann næsta að fylgjast með fílahjörðum safnast saman við vatnið í sólsetri. Þetta er hagkvæmt, nærandi og passar fullkomlega fyrir þau sem vilja hámarka bæði ævintýri og verðgildi. Dýralífið er stórkostlegt, en sögurnar og samveran, verða oft jafn eftirminnileg og safaríið sjálft.

Farðu yfir landið í Botsvana með nýjum vinum.

Farðu yfir landið í Botsvana með nýjum vinum.

FAQ

Algengar spurningar

Ertu með spurningar um safarí í Botsvana? Við erum með svörin!

Botsvana er þekkt fyrir stórar fílahjarðir, auk ljóna, hlébarða, buffaló, flóðhesta, krókódíla, gíraffa, sebrahesta, antilópur, strúta og hundruð fuglategunda. Ef þú ert heppin/n gætirðu jafnvel séð blettatígra eða afríska villihunda.

Þurrkatímabilið frá maí til október er yfirleitt talinn besti tíminn til að sjá villt dýr, þar sem þau safnast saman við vatnsbólin. Regntímabilið frá nóvember til apríl býður upp á gróskumikla náttúru, færri ferðamenn og frábæra fuglaskoðun.

Okavango Delta er á heimsminjaskrá UNESCO, en þar myndast einstakt vistkerfi þar sem dýralíf dafnar meðal vatnaleiða, eyja og flæðilanda.

Þú ættir að fara í safarí í Botsvana ef...

...þig dreymir um að komast nálægt villtum dýr Afríku

Upplifðu mögnuð kynni við dýrin í þeirra náttúrulega umhverfi - fílar, ljón, hlébarðar og margt fleira.

...þú elskar náttúruna og útivist

Kannaðu víðáttumikla þjóðgarða, afskekktar óbyggðir og sum af stórbrotnustu landsvæðum heims.

...þig langar að upplifa alvöru ævintýri

Ekkert safarí er eins - þú átt eftir að safna ógleymanlegum augnablikum, óvæntum upplifunum og minningum sem endast út ævina.

Fáðu ferðainnblástur og einstök tilboð beint í pósthólfið þitt

Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu upplýsingar um nýjar ferðir, ferðainnblástur, viðburði og tilboð. Vertu klár í næsta ævintýri!

Hringdu í okkur

+354 517 7010

Opnunartími síma: Mánudaga - föstudaga frá 10:00 til 17:00 og laugardaga frá 13:00 - 17:00

Sendu okkur tölvupóst

travels@kilroy.is

Fyrirspurnum vegna flugmiða sem keyptir eru á netinu er svarað í tölvupósti á help@kilroy.net

Um okkur

Í meira en 30 ár hefur KILROY hjálpað forvitnum ferðalöngum að uppgötva heiminn. Við sérhæfum okkur í að skipuleggja ævintýraleg ferðalög fyrir fólk á öllum aldri, allt frá bakpokaferðalögum og heimsreisum til fjölskylduferða, fyrirtækjaferða og annarra hópferða. Hvert sem ferðalagið liggur eru ferðasérfræðingar okkar hér til að hjálpa þér að láta ferðadraumana rætast.

KILROY Iceland

Norðurturn, 11. hæð 

Hagasmári 3, 201 Kópavogur

 Opnunartími skrifstofu: Mánudaga - föstudaga frá 10:00 til 17:00

Kt. 410911-0350

© 2026 Copyright KILROY Iceland ehf