SAFARÍ OG DÝRALÍF Í AFRÍKU

Sjáðu ,,The Big Five''
Þegar þú hugsar um Afríku, hugsar þú um dýrin, ekki satt?
Valdar safaríferðir
Handvaldar upplifanir sem vert er að skoða
Afrískar safaríferðir
Við erum með ótal mismunandi safaríferðir í Afríku til að velja úr. Það getur verið smá yfirþyrmandi að sía úr öllum valkostunum, en ekki hafa áhyggjur - við hjálpum þér. Við höfum valið út allra bestu safaríferðirnar um fallegustu þjóðgarða Afríku. Hvort sem þú ert að horfa á Kenía, Suður-Afríku, Úganda eða Tansaníu (eða annarra Afríkulanda), þá getum við hjálpað þér að finna frábærar safaríferðir um alla heimsálfuna.
Hvort sem þú ert að reyna að merkja við „The Big Five“ á bucket-listanum þínum, eða vilt frekar mæta villtum górillum augliti til auglitis, þá eru endalausir möguleikar til að upplifa dýralífið í Afríku. Þú getur líka valið að skoða á fótum, í kröftugum 4x4 jeppa eða með fólksbíl - þannig getur þú aðlagað ferðina að þínum stíl og fjárhagsáætlun.

Suður-Afríka safari
Valdar upplifanir og afþreyingar
Kynntu þér fjölbreytt úrval spennandi upplifana
Þarftu aðstoð við að skipuleggja safaríferð?
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.
Kenía, Suður-Afríka, Úganda, Tansanía?
Afríka er stútfull af ótrúlegum safarívalkostum, en tvö lönd sem þú mátt alls ekki missa af eru Kenía og Suður-Afríka. Kenía er goðsagnakennd fyrir víðáttumikla ,,savanna" og dýralíf. Hér færðu klassíska safaríupplifunina - að leita að „Big Five“ (ljón, fíll, buffaló, hlébarði og nashyrningur). Ef þú ferð á réttum tíma geturðu jafnvel séð "The Great Migration" í fræga þjóðgarðinum Masai Mara. Hins vegar býður Suður-Afríka upp á einstaka blöndu af stórkostlegu landslagi og fjölbreyttu dýralífi. Auk þess að elta „The Big Five“ í heimsfræga Kruger þjóðgarðinum geturðu farið í road-trip eftir stórfenglega Garden Route, þar sem þú ert umkringd/ur strandútsýni og grænum skógum. Einnig er safari í Suður-Afríku frábær leið til að kafa ofan í menningu landsins og njóta staðbundins mats. Í Úganda svitnar þú í bröttum, drullugum stígum Bwindi og færð ógleymanlega klukkustund með góríllufjölskyldu. Í Tansaníu ferðast þú um í 4x4 jeppa um Serengeti til að upplifa ótrúlega "The Great Migration" og dýralífið í Ngorongoro Crater. Hvort sem þú velur ævintýri í Kenía, Suður-Afríku eða einhverjum af okkar fjölmörgu Afríkuáfangastöðum, þá er safarí ferð sem situr í minningunni. Dýrin, náttúran og adrenalínið við að kanna villta Afríku líkist engu öðru. Leyfðu okkur að hjálpa þér að skipuleggja safarí sem passar við fjárhagsáætlun þína og ferðadrauma.

Tignarlegir gíraffar í Tansaníu
Algengar spurningar
Ertu með spurningar um safarí í Afríku? Við erum með svörin!
Þurrt vetrartímabil (yfirleitt frá júní til október) er almennt talið besta tímabilið til að sjá dýrin. Þá er lítil rigning, gróðurinn þynnist og auðveldara að sjá dýrin. Dýrin safnast líka sjálfkrafa við vatnsból og ár, sem gerir dýraskoðun fyrirsjáanlegri og stórkostlegri.
Já, svo lengi sem þú fylgir leiðbeiningum leiðsögumannsins. Ökutækjum er haldið í hæfilegri fjarlægð og stór rándýr líta yfirleitt á safaríbíl sem ógnarlausan hlut, ekki sem bráð. Á göngusafarí ert þú alltaf með vel þjálfaða, vopnaða leiðsögumenn sem þekkja hegðun dýranna og öryggisatriði.
Taktu með þér létt föt sem anda vel, í hlutlausum litum (khaki, grænt og beige) til að blandast umhverfinu og laða ekki að pöddur. Þar sem safaríferðir fela oft í sér litlar flugvélar, er farangur takmarkaður við 15-20 kg á mann og þarf að vera pakkað í mjúka tösku, en ekki harðskelja ferðatösku.
Já, flestir safaríáfangastaðir krefjast eða mæla með sérstökum varúðarráðstöfunum. Venjulegar bólusetningar þurfa að vera uppfærðar og malaríulyf eru staðalbúnaður fyrir vinsæla staði eins og Serengeti eða Kruger þjóðgarðinn. Athugaðu hjá Heilsugæslunni hvort þú sért með réttar bólusetningar áður en þú ferð.
Þú hefur tvo valkosti þegar kemur að því að skipuleggja safarí í Kruger Park. Ef þú hefur tíma og orku til að undirbúa ferðina og smá ævintýraþrá, þá geturðu auðveldlega leigt bíl og farið í ferðina sjálf/ur. Að keyra hingað frá Jóhannesborg tekur um 4 klukkustundir, svo ekki reikna með dagsferðum! Það eru tjaldsvæði með tjöldum eða kofar sem þú getur gist í innan garðsins, auk fjölda gistingar rétt fyrir utan. Mundu að ef þú ferð í safarí án leiðsögumanns, þá gætirðu misst af dýrunum sem þú vilt sjá. Þess vegna mælum við eindregið með að bóka skipulagða safaríferð, þar sem leiðsögumenn í mismunandi ferðum hafa mikla reynslu og eru í stöðugu sambandi til að finna dýrin. Faglegur leiðsögumaður segir þér líka mikið um dýrin og hegðun þeirra.
Ökutækin sem notuð eru eru örugg og matur og gisting er innifalið, svo þú þarft ekki að eyða tíma í að skipuleggja það. Allt sem þú þarft að taka með er þú sjálf/ur og góða myndavél! Fyrir byrjendur mælum við með einfaldri en frábærri safaríferð frá Drifters sem heitir „5 day Kruger Safari“.
Ef þig langar í ævintýralega brúðkaupsferð, hentar þessi ferð líka vel, þar sem gist er á hóteli (einfaldur standard).
Sýnir 4 / 5 niðurstöður
Þú ættir að fara í safarí í Afríku ef...
...þú vilt sjá "The Big Five"
Afríka er eini staðurinn þar sem þú getur séð "The Big Five" og margar aðrar einstakar dýrategundir sem finnast aðeins í þessari heimsálfu!
...þér finnst safarí hljóma eins og spennandi ævintýri
Hvort sem þú ert að fara í fyrsta skipti eða ekki, þá býður Afríka upp á auðveldar ferðaleiðir, góða innviði og mikið úrval af fjölbreyttu safarí.
...þú leitar að óvenjulegri og einstakri upplifun
Afríka er engu lík, og safarí er sko ekki eins og að fara í dýragarð - þetta er alvöru upplifun á einstöku, villtu dýralífi í sínu heimaumhverfi.
Bestu safaríáfangastaðirnir
Úrval af vinsælum safaríáfangastöðum.


































