SURF Í INDÓNESÍU

Surf og fleira skemmtilegt
Uppgötvaðu hið fullkomna jafnvægi milli surf, eyjalífs og nýrra vina á Balí og Nusa Lembongan. Lærðu að surfa með öðrum ferðalöngum!
Minna að skipuleggja, meira að surfa!
Við höfum valið bestu surf-námskeiðin í Indónesíu fyrir þig, svo þú getur einbeitt þér að því að ná öldunum og njóta ævintýrsins. Þú færð sama verð og ef þú bókar beint, ásamt aðgangi að ferðasérfræðingum okkar sem þekkja þessa staði út og inn. Viltu gera ferðina enn meira spennandi? Bættu við flugi, skelltu þér í köfun eða blandaðu saman mismunandi upplifunum í eina ógleymanlega ferð. Frá fyrstu skipulagningu til síðasta sólsetursins á ströndinni - við stöndum með þér allan tímann.

Valin surf-námskeið sem þú vilt ekki yfirgefa.
Valdar upplifanir og afþreyingar
Kynntu þér fjölbreytt úrval spennandi upplifana
Þarftu aðstoð við að skipuleggja surf-ferð?
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.
Þetta fylgir með á surf-námskeiðunum okkar
Þegar þú bókar surf-námskeið er allt tilbúið fyrir þig. Þá er bara að mæta og njóta. Þú getur átt von á þægilegri gistingu, morgunverði á hverjum degi, faglegri surfkennslu sem er sniðin að þínu getustigi og frábærri aðstöðu eins og sundlaugum og sameiginlegum svæðum.
Fyrir utan surfið býðst þér að taka þátt í ýmsum uppákomum, kynnast nýju fólki og njóta alls þess sem Indónesía hefur upp á að bjóða. Hvort sem þú ferðast einn eða með vinum eru surf-námskeiðin hönnuð til að sameina nýja kunnáttu, ógleymanlegar upplifanir og nýja vini.

Vertu hluti af samfélagi ferðalanga með sama áhuga
Komdu sóló og eignastu nýja vini á leiðinni
Ertu ein/n að ferðast? Surfcamp er ein auðveldasta leiðin til að kynnast nýju fólki og verða hluti af samfélagi frá fyrsta degi. Hvort sem þú ert að surfa, deila máltíðum eða kanna svæðið eftir dag í sjónum, þá tengist þú fljótt öðrum ferðalöngum alls staðar að úr heiminum.
Surfcamp snýst um miklu meira en bara surf. Búðu þig undir sólsetursstundir, hópmáltíðir, jóga, karaoke kvöld, stranddaga og ,,spontant'' ævintýrum sem breyta ókunnugum í vini. Komdu ein/n, farðu heim með ógleymanlegar minningar og hópspjall sem þú ert enn að nota löngu eftir að ferðinni lýkur.

Hittu aðra unga, lífsþyrsta ferðalanga.
Þú ættir að prófa surf ef þú...
...vilt læra eitthvað nýtt og hafa gaman
Settu þig í nýjar aðstæður, byggðu upp sjálfstraustið og upplifðu spennuna þegar þú nærð fyrstu öldunni þinni - allt í skemmtilegu og stuðningsríku umhverfi.
...elskar að hitta ferðalanga alls staðar að úr heiminum
Vertu hluti af opnu surf samfélagi þar sem auðvelt er að eignast vini, deila ævintýrum og skapa ógleymanlegar minningar saman.
...færð ekki nóg af hafinu, strandlífinu og ævintýrum
Vaknaðu við salt loft, njóttu dagsins í að elta öldur og endaðu hann á því að horfa á sólina setjast við sjóndeildarhringinn.
Algengar spurningar
Ertu með spurningar um surf, gistingu eða eitthvað annað? Við erum með svarið!
Í Indónesíu eru öldur allan ársins hring, en bestu aðstæðurnar eru yfirleitt á þurrkatímabilinu (frá apríl til október). Þá finnur þú stöðugar öldur, sól og frábærar surfaðstæður á mörgum af þekktustu surfstöðum landsins.
Alls ekki. Surf námskeiðin eru fyrir öll - frá byrjendum sem eru að læra að standa á bretti yfir í lengra komna sem vilja fínpússa tækni sína. Við finnum það sem hentar þér best!
Flestir byrjendur ná að standa upp á brettinu eftir fyrstu kennslustundirnar. Því meira sem þú ert í sjónum, því hraðar nærðu framförum.
Heldur betur! Surf-námskeið eru þekkt fyrir félagslegt andrúmsloft þar sem ævintýraþyrst fólk alls staðar að úr heiminum kemur saman. Búðu þig undir hópmatartíma, strandstundir og fullt af öðrum góðum minningum saman.
Það fer eftir námskeiði og pakka sem þú velur. Flestir pakkar innihalda nokkrar kennslur dreifðar yfir dvölina, svo þú færð nægan tíma til að æfa þig og bæta þig.
Sýnir 4 / 5 niðurstöður
Aðrir frábærir surf-áfangastaðir
Mikið úrval af vinsælum surf-áfangastöðum
Nýjast á ferðablogginu hjá KILROY
Við elskum að ferðast og vonum að þú gerir það líka! Fáðu innblástur fyrir næsta ævintýri með ferðasögum, ráðum og spennandi áfangastöðum.

































