ROAD TRIP UM NAMIBÍU

Road trip í Namibíu
Road trip um Namibíu

Farðu út á veginn í endalausu eyðimerkurlandslagi Namibíu

Kannaðu einn af bestu sjálfsakstursáfangastöðum Afríku, þar sem opnir vegir, stórbrotin náttúra og algjört frelsi eru í forgrunni.

Af hverju road trip um Namibíu er svona sérstakt

Namibía er eitt besta land í heimi fyrir road trip ævintýri. Vegirnir eru langir, tómir og umkringdir síbreytilegri náttúru sem gerir ferðalagið jafn stórkostlegt og áfangastaðina sjálfa. Með bílaleigubíl, eða campervan, getur þú ferðast á þínum hraða og upplifað þekktar perlur eins og sandöldurnar í Sossusvlei, Skeleton Coast og Etosha National Park í algjöru frelsi.

Sandalda í Sossusvlei
Granít tindar Spitzkoppe
Road trip með 4x4
Sebra nálægt í Etosha National Park
Stjörnubjartur næturhiminn

Sandalda í Sossusvlei

Granít tindar Spitzkoppe

Road trip með 4x4

Sebra nálægt í Etosha National Park

Stjörnubjartur næturhiminn

Þarftu aðstoð við að skipuleggja road trip?

Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.

Kannaðu Namibíu með rétta farartækinu fyrir þitt ævintýri

Eitt stærsta valið þegar þú skipuleggur road trip í gegnum Namibíu er hvernig þú vilt ferðast um. Bílaleigubíll er frábær kostur ef þú vilt gista í lodges og gestahúsum og ferðast þægilega yfir langar vegalengdir. Ef þú vilt hámarks frelsi, þá gefur 4x4 camper, eða þak tjald, þér tækifæri til að tjalda á stórkostlegum stöðum og vakna umkringd/ur ótrúlegri náttúru Namibíu.

Hjá KILROY vinnum við með traustum staðbundnum samstarfsaðilum til að hjálpa þér að finna farartæki sem hentar leiðinni þinni, fjárhagsáætlun og ferðastíl. Hvort sem þig dreymir um grófan 4x4 með þaktjaldi eða áreiðanlegan bílaleigubíl, hjálpum við þér að skipuleggja dagskrá sem nýtir víðáttur Namibíu, og helstu perlur, til fulls. Þannig getur þú eytt minni tíma í að pæla í smáatriðum og meiri tíma í að njóta ævintýrsins framundan.

Leigðu 4x4 með þak tjald
Farðu í safari
Sjáðu þekktu sandöldurnar í Sossusvlei
Spottaðu dýralíf

Leigðu 4x4 með þak tjald

Farðu í safari

Sjáðu þekktu sandöldurnar í Sossusvlei

Spottaðu dýralíf

FAQ

Algengar spurningar

Ertu með spurningar? Við höfum svörin. Hér er sumt af því sem ferðalangar spyrja oft um road trip í Namibíu!

Algjörlega. Namibía er eitt besta land í heimi fyrir road trip. Landið er með vel viðhaldna vegi, ótrúlega náttúru og það er lítið um umferð, sem gerir það fullkomið til að kanna með bílaleigubíl eða campervan. 

Við mælum með að eyða 10 til 14 dögum til að upplifa helstu staðina án þess að flýta sér. Ef þú hefur meiri tíma getur þú skoðað fjarlægari svæði eða sameinað Namibíu við nágrannalönd eins og Botswana eða Suður-Afríku. 

Flestir ferðalangar heimsækja Sossusvlei, Swakopmund, Etosha National Park, Spitzkoppe og Skeleton Coast. Ferðaráætlun þín getur líka innihaldið Fish River Canyon, Damaraland eða Caprivi Strip.

Algjörlega. Að tjalda er ein af bestu leiðunum til að upplifa Namibíu. Margir ferðalangar velja þakttjald, sem gerir þeim kleift að gista á vel útbúnum tjaldsvæðum, umvafin ótrúlegri náttúru og sumum af tærustu næturhimnum heims.

Namibíu er hægt að heimsækja allt árið, en þurrkatímabilið (maí til október) er sérstaklega vinsælt fyrir dýralíf í Etosha þjóðgarðinum og þægilegar akstursaðstæður. Hlýrri sumarmánuðir bjóða upp á dramatískt landslag og tækifæri til að sjá eyðimörkina lifna við eftir rigningar.

Namibía er áfangastaður þar sem skipulagning borgar sig. Landið er gríðarlega stórt, vegalengdir milli staða eru mun lengri en þær virðast á korti og gististaðir eða tjaldsvæði á vinsælum stöðum geta verið bókuð langt fram í tímann. Þó þú getir haldið smá sveigjanleika í ferðaplaninu, mælum við með að þú skipuleggir leiðina, gistingu og akstursvegalengdir áður en þú leggur af stað. Þannig getur þú notið frelsisins á opnum vegum án þess að þurfa að hafa áhyggjur af því hvar þú sefur eða hvort þú náir næsta áfangastað fyrir myrkur.

Sýnir 4 / 6 niðurstöður

Þú ættir að fara í road trip í Namibíu ef…

...þú vilt algjört frelsi til að kanna

Namibía er gerð fyrir sjálfakstur - endalausir vegir, stórbrotin náttúra og víðáttur gera þér kleift að ferðast á þínum eigin hraða.

...þig dreymir um óraunverulegt eyðimerkurlandslag

Frá rauðu sandöldum Sossusvlei til villtu Skeleton Coast og víðáttumikilla saltflata Etosha - hver akstur er eins og að fara inn í nýjan heim.

...þú elskar að vakna á afskekktum og ógleymanlegum stöðum

Með camper-leigu getur þú sofið undir tærum næturhimni og vaknað umvafin/n þögn og ósnortinni náttúru.

Áfangastaðir

Aðrir frábærir staðir fyrir road trip

Hvert langar þig að keyra?

Fáðu ferðainnblástur og einstök tilboð beint í pósthólfið þitt

Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu upplýsingar um nýjar ferðir, ferðainnblástur, viðburði og tilboð. Vertu klár í næsta ævintýri!

Hringdu í okkur

+354 517 7010

Opnunartími síma: Mánudaga - föstudaga frá 10:00 til 17:00 og laugardaga frá 13:00 - 17:00

Sendu okkur tölvupóst

travels@kilroy.is

Fyrirspurnum vegna flugmiða sem keyptir eru á netinu er svarað í tölvupósti á help@kilroy.net

Um okkur

Í meira en 30 ár hefur KILROY hjálpað forvitnum ferðalöngum að uppgötva heiminn. Við sérhæfum okkur í að skipuleggja ævintýraleg ferðalög fyrir fólk á öllum aldri, allt frá bakpokaferðalögum og heimsreisum til fjölskylduferða, fyrirtækjaferða og annarra hópferða. Hvert sem ferðalagið liggur eru ferðasérfræðingar okkar hér til að hjálpa þér að láta ferðadraumana rætast.

KILROY Iceland

Norðurturn, 11. hæð 

Hagasmári 3, 201 Kópavogur

 Opnunartími skrifstofu: Mánudaga - föstudaga frá 10:00 til 17:00

Kt. 410911-0350

© 2026 Copyright KILROY Iceland ehf