ROAD TRIP UM ÁSTRALÍU

Láttu vanlife drauminn rætast í Ástralíu
Fylltu tankinn og leggðu af stað í að kanna surf bæi á austurströndinni, Outback og vesturhluta Ástralíu.
Valdar road trip leiðir
Handvaldar upplifanir sem þú verður að skoða
Finndu hina fullkomnu leið fyrir þig
Austurströndin: Á austurströnd Ástralíu finnur þú surfbæi, notalegar borgir, hitabeltiseyjar og þekkt náttúruundur. Þetta er draumaleiðin fyrir þau sem elska strendur, þau sem eru að fara í sitt fyrsta road trip og þau sem vilja upplifa klassískt Aussie ævintýri.
Red Centre: Byrjaðu í Alice Springs, sem er aðalinnkomustaður í Red Centre Ástralíu. Ómalbikaðir vegir leiða þig djúpt inn í "outback-ið" þar sem þú sérð eyðimerkursvæði, frumbyggjamenningu og þekkt kennileiti eins og Uluru.
Tasmanía: Þessi hluti Ástralíu sameinar hrjúfa náttúru, fallega strandlengju, sérstakt dýralíf og sjarmerandi bæi. Tasmanía er lítil en fjölbreytt, svo auðvelt er að blanda saman ströndum, þjóðgörðum, matarsvæðum og litlum bæjum í eina ferð.
Vesturströndin: Vesturströnd Ástralíu snýst um stórbrotna náttúru, afskekktar strendur og geggjaða vegi. Vesturströndin er oft hunsuð miðað við austurströndina, en ef þú spyrð okkur þá er hún klárlega þess virði að bæta við ferðina þína.
Besti parturinn við að tjalda? Útsýnið.
Engin betri leið til að vakna - ef þú spyrð okkur!
Finndu camper sem passar þínum ferðastíl.
Upplifðu outbackið í Ástralíu.
Þarftu aðstoð við að skipuleggja road trip?
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.
Leiga á campervan og húsbílum
Ástralía er eiginlega gerð fyrir road trip. Náðu þér í campervan eða húsbíl og skelltu þér af stað - hvort sem þú ert að elta öldurnar meðfram austurströndinni, vilt skoða "outback-ið" eða bæta þjóðgörðum við leiðina.
Það er í boði budget-vænn campervan með öllu nauðsynlegu, eða fullbúinn húsbíl með nóg pláss, þú finnur valkostinn fyrir þinn stíl og fjárhag. Með tjaldsvæðum um allt land og sveigjanlegum one-way leigum, er auðvelt að setja saman ferðaleið sem hentar þér. Engar stífar dagskrár, ekkert stress - bara frelsi til að taka fallegustu leiðirnar og stoppa lengur þar sem þér líður vel.

Hvaða bíll hentar þér best í road trip?
Algengar spurningar
Hér eru algengustu spurningarnar um að leigu á campervan eða húsbíl í Ástralíu!
Það fer alveg eftir þínum ferðastíl og hvað þig langar að upplifa. Austurströndin er fullkomin fyrir strendur og líflega bæi, Red Centre býður þér klassískt outback landslag, Tasmanía er draumur náttúruunnenda og vesturströndin er þekkt fyrir fjarlægar ævintýraferðir og stórbrotna náttúru.
Ástralía er góður áfangastaður yfit allt árið, en besti ferðatíminn fer eftir svæðum. Austurströndin er vinsæl allt árið, en Red Centre og norðurhlutinn eru þægilegastir yfir kaldari mánuðina, frá apríl til október.
Ástralía er gríðarlega stórt land, svo við mælum með minnst 2-3 vikum til að nýta ferðina sem best. Þá hefurðu nægan tíma til að skoða svæði eins og austurströndina, Tasmaníu eða Red Centre, án þess að þurfa að flýta þér. Margir ferðalangar velja að vera mánuð eða lengur á ferðinni og fá þannig meiri sveigjanleika, tíma fyrir óvænta útúrdúra og afslappaðra ferðalag.
Já, Ástralía er með frábær tjaldsvæði, líka í þjóðgörðunum, allt frá einföldum stöðum til fullbúinna tjaldsvæða með eldhúsi, sundlaug og fleira. En við elskum líka að finna afskekkt tjaldsvæði þar sem þú ert ein/n með náttúruna.
Það fer eftir leiguaðilum, en flest fyrirtæki bjóða upp á campervan, staðalbúnað fyrir hann og grunntryggingu. Aukakostnaður getur komið til fyrir aukahluti eins og rúmföt, campingbúnað, GPS, barnasæti, drop-off pakka og uppfærðar tryggingar.
Já, þú getur bætt við fleiri ökumönnum. Gjöld og skilmálar eru mismunandi eftir leiguaðila, svo mikilvægt er að skoða upplýsingar áður en þú leggur af stað. Láttu ferðaráðgjafann þinn vita!
Þú þarft yfirleitt að hafa:
Gilt ökuskírteini
Vegabréf
Kreditkort á nafni ökumanns
Staðfestingu á bókun
Sýnir 4 / 7 niðurstöður
Þú ættir að fara í road trip um Ástralíu ef þú...
...vilt skoða sérstakt dýralíf Ástralíu
Þú færð raunverulega möguleika á að sjá grizzly birni, elgi og hvali á ferðalaginu, beint frá útsýnisstöðum við veginn.
...vilt njóta hvers augnabliks á veginum
Skelltu góðum playlist-a í gang, horfðu á frábært útsýni og njóttu akstursins.
...vilt upplifa ótrúlega náttúru
Þú vilt sjá landslag breytast frá háum fjöllum yfir í fallegar strendur á einni leið.
Aðrir frábærir staðir fyrir road trip
Hvert langar þig að keyra?






















