FERÐIR TIL KYRGYZSTAN

Jurta við Song-Kul vatn
Um áfangastaðinn

Ævintýri í villtum landsvæðum Mið-Asíu

Snjóþaktir fjallatindar, blágræn alpavötn og endalaus víðátta langt frá fjöldanum.

Kyrgyzstan er paradís fyrir göngufólk
Mundu að gista eina nótt í jurta
Kichi-Karakol á Pamir Highway
Snakk og te í jurtunni
Villiblóm

Töfrandi fjallaáfangastaður

Um það bil 90% af Kyrgyzstan er þakið fjöllum, svo ef þú elskar göngur og náttúruupplifanir þá ert þú á réttum stað. Búðu þig undir djúpa dali, ár, jökla, víðáttumikla grassléttur og kristaltær vötn sem liggja yfir einhverja stórbrotnustu náttúru Mið-Asíu.

Kyrgyzstan er enn lítið þekkt meðal alþjóðlegra ferðalanga, sem gerir landið að frábærum áfangastað fyrir þá sem vilja fara á ótroðnar slóðir og upplifa náttúruna á hennar eigin forsendum. Hér finnur þú stórfenglegt landslag, alvöru gestrisni heimamanna og ekta ævintýri, langt frá fjöldanum.

Um það bil 90% af Kyrgyzstan er fjöll

Um það bil 90% af Kyrgyzstan er fjöll

Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferð til Kyrgyzstan?

Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.

Hvernig getur KILROY hjálpað þér að ferðast um Kyrgyzstan?

Hvort sem þig dreymir um sveigjanlegt bakpokaferðalag, kraftmikið ævintýrafrí eða hópferð, þá getum við aðstoðað við að móta ferðina eftir þínum ferðastíl.

Við getum hjálpað þér með allt skipulag, eða hluta af því, eins og þér hentar best. Kannski viltu bara hjálp við flug og nokkrar nætur í gistingu, eða kýst að hafa stærri hluta ferðarinnar planaða fyrirfram, eins og ferðir, samgöngur og afþreyingu. Þú ræður!

Ef þér finnst skemmtilegra að ferðast með öðrum, þá bjóðum við líka hópferðir í Kyrgyzstan, bæði sem sjálfstæðar ferðir og í bland við aðra áfangastaði í Mið-Asíu. Þetta er frábær leið til að upplifa nokkur af spennandi „-stan“ löndunum í einni ferð.

Hvernig sem þú kýst að ferðast, þá geturðu hlakkað til ótrúlegra upplifana, stórbrotinna landslaga og nóg af ævintýrum á leiðinni.

Ómissandi: Gistu í hefðbundnum jurtum

Ómissandi: Gistu í hefðbundnum jurtum

Af hverju að velja KILROY fyrir næstu ferðina þína

30+ ára reynsla

Yfir 30 ára reynsla, sérþekking og traustir samstarfsaðilar okkar um allan heim gera þér kleift að ferðast með öryggi og sjálfstrausti.

Persónuleg ferðaráðgjöf

Ferðaráðgjafi sem kynnist þínum óskum, draumum og markmiðum. Frá fyrstu hugmynd að heimkomu erum við með þér í hverju skrefi á leiðinni.

24/7 neyðarsími

Ef eitthvað óvænt kemur upp á er neyðarsíminn okkar opinn allan sólarhringinn. Ferðasérfræðingar KILROY eru til staðar fyrir þig, hvar og hvenær sem er.

KILROY leiðin

Bestu ferðirnar enda ekki þegar þú kemur heim. Þær lifa áfram í upplifunum, sögum og minningum sem fylgja þér lengi eftir að ferðinni lýkur.

Hvað ættir þú að skoða í Kyrgyzstan?

Gistu í hefðbundnum tjöldum sem kallast ,,jurts'', farðu í hestbak og heimsæktu spennandi borgir Kyrgyzstan. Hér eru nokkrir af okkar uppáhalds áfangastöðum í Kyrgyzstan.

Hestar, fjöll og ,,jurts''

Það eru fáir staðir í heiminum þar sem náttúran er jafn ósnortin og stórkostleg og í Kyrgyzstan.

Hestar hafa verið hjarta lífsins hér í aldir og að kanna landið á hestbaki er ein besta leiðin til að upplifa það. Á mörgum svæðum geturðu fylgt gömlum slóðum hirðingja um dali og yfir háa fjallagarða sem bílar komast ekki á. Ef þú ert meira fyrir hjólreiðar, geturðu líka skoðað fjöllin á hjólum.

Ef þú ert fyrir gönguferðir, þá er Altyn Arashan algjör hápunktur. Svæðið er þekkt fyrir stórfenglegt landslag, gróskumikla dali og heitar náttúrulaugar, sem er fullkomið að slaka á í eftir dag á slóðinni.

Issyk-Kul er annað náttúruundur Kyrgyzstan. Þetta er næst stærsta fjallavatn heimsins og er umkringt snjóþöktum fjallatindum. Á sumrin er þetta frábær staður til að sameina gönguævintýri við afslappaða daga við vatnið.

Í hjarta landsins er Song-Kul, eitt af helstu vötnum Kyrgyzstan. Hér geturðu sofið í hefðbundnum ,,jurtum'', hitt lókal hirðingjafjölskyldur og gengið um víðáttumiklar grassléttur þar sem hestar og búfé ganga frjáls. Þetta er Kyrgyzstan í sinni bestu mynd.

Bishkek: Þar sem sovésk saga mætir nútíma Mið-Asíu

Höfuðborg Kyrgyzstan, Bishkek, er oft upphafspunktur ferðar um landið. Breiðar götur, grænir garðar og einstök blanda af sovéskri byggingarlist og mið-asískri menningu gefa borginni sitt sérstaka yfirbragð.

Einn þekktasti minnisvarði borgarinnar er Manas Monument, tileinkað þjóðhetjunni Manas, sem sagan segir að hafi sameinað þjóðflokka í Kyrgyzstan og lagt grunninn að þjóðinni.

Osh: Fornborg Silkivegarins

Í suðurhluta landsins er Osh, ein elsta borg Mið-Asíu. Í aldir var hún mikilvægur viðkomustaður á hinum goðsagnakennda Silkivegi og markaðurinn í miðborginni er enn hjarta borgarinnar í dag.

Svæðið í kringum Osh er líka vinsælt upphaf fyrir gönguleiðir, tjaldsvæði og ævintýri í fjöllunum í nágrenninu.

Kirgizstan er mótað af sterku nomadamenningu

Kirgizstan er mótað af sterku nomadamenningu

Hvenær er best að heimsækja Kyrgyzstan?

Vegna mikils hæðarmunar í landinu breytist loftslagið töluvert eftir svæðum. Í lægðum dalanna getur hitinn farið upp í um 40 gráður yfir sumarið, á meðan fjöllin bjóða oft upp á milt og þægilegt veður sem er fullkomna fyrir útivist og ævintýri.

Besti tíminn til að ferðast er yfirleitt frá júlí til september, þegar fjallavegir eru opnir, landslagið er sem grænast og aðstæður eru frábærar fyrir gönguferðir, hestbak og tjaldútilegur.

Vorið og haustið geta líka verið frábærir tímar til að ferðast, þó það geti snjóað á sumum fjallasvæðum og aukin hætta er á snjóflóðum.

Yfir vetrartímann getur hitinn fallið niður í um -20 gráður í köldustu hlutum landsins og þá getur verið erfitt og nánast ómögulegt að komast á sum fjallasvæði. Ef þú vilt helst upplifa stórbrotið náttúrulandslag Kyrgyzstan er ferðalag á hlýrri mánuðum oftast betri kosturinn.

Flestir heimsækja Kyrgyzstan í júlí-september

Flestir heimsækja Kyrgyzstan í júlí-september

FAQ

Algengar spurningar

Ertu með spurningar? Við erum með svörin. Hér eru nokkur af því sem ferðalangar spyrja oft áður en þeir leggja af stað til Kyrgyzstan!

Kyrgyzstan er staðsett í Mið-Asíu og á landamærum Kasakstan, Úsbekistan, Tajikistan og Kína.

Opinbert tungumál Kyrgyzstan er kirgizíska, en rússneska er líka mikið notuð í viðskiptum, stjórnsýslu og daglegu lífi. Á ferðamannasvæðum geturðu fundið fólk sem talar smá ensku, en það er góð hugmynd að læra nokkur grunnorð og setningar fyrir ferðina.

Höfuðborg Kyrgyzstan er Bishkek. Hún er staðsett í norðurhluta landsins, nálægt landamærum við Kasakstan og er stærsta borg landsins og aðal inngangur fyrir ferðalanga sem vilja skoða Kyrgyzstan.

Bishkek er í norðurhluta Kyrgyzstan, nálægt landamærum við Kasakstan. Borgin stendur við rætur Tian Shan fjallanna og er pólitískur, menningar og efnahags miðpunktur landsins.

Kyrgyzstan er þekkt fyrir gönguferðir, hestbak, tjaldsvæði og að skoða stórbrotna fjallalandslagið. Vinsælir staðir eru Issyk-Kul vatn, Son-Köl vatn, Altyn Arashan og að gista í hefðbundnum hirðingjatjöldum sem kallast ,,jurt''.

Sýnir 4 / 5 niðurstöður

Nýjast á ferðablogginu hjá KILROY

Við elskum að ferðast og vonum að þú gerir það líka! Fáðu innblástur fyrir næsta ævintýri með ferðasögum, ráðum og spennandi áfangastöðum.

Fáðu ferðainnblástur og einstök tilboð beint í pósthólfið þitt

Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu upplýsingar um nýjar ferðir, ferðainnblástur, viðburði og tilboð. Vertu klár í næsta ævintýri!

Hringdu í okkur

+354 517 7010

Opnunartími síma: Mánudaga - föstudaga frá 10:00 til 17:00 og laugardaga frá 13:00 - 17:00

Sendu okkur tölvupóst

travels@kilroy.is

Fyrirspurnum vegna flugmiða sem keyptir eru á netinu er svarað í tölvupósti á help@kilroy.net

Um okkur

Í meira en 30 ár hefur KILROY hjálpað forvitnum ferðalöngum að uppgötva heiminn. Við sérhæfum okkur í að skipuleggja ævintýraleg ferðalög fyrir fólk á öllum aldri, allt frá bakpokaferðalögum og heimsreisum til fjölskylduferða, fyrirtækjaferða og annarra hópferða. Hvert sem ferðalagið liggur eru ferðasérfræðingar okkar hér til að hjálpa þér að láta ferðadraumana rætast.

KILROY Iceland

Norðurturn, 11. hæð 

Hagasmári 3, 201 Kópavogur

 Opnunartími skrifstofu: Mánudaga - föstudaga frá 10:00 til 17:00

Kt. 410911-0350

© 2026 Copyright KILROY Iceland ehf