Nemendaferðir

Við sjáum um stússið
Safnið bekknum saman og látið ævintýrið hefjast. Við hjálpum ykkur að skipuleggja nemendaferð sem sameinar fræðslu, upplifun og skemmtun.
Valdar nemendaferðir
Upplifanir sem við mælum sérstaklega með
Við hjálpum ykkur að skipuleggja nemendaferðina
Það er margt sem þarf að huga að þegar skipuleggja á nemendaferð. Flug, gisting, fjárhagsáætlun, dagskrá og afþreying eru aðeins hluti af því sem þarf að ganga upp.
Segðu okkur frá hópnum og ferðahugmyndunum og við hjálpum ykkur að setja saman ferð sem hentar ykkur fullkomlega. Ferðaráðgjafar okkar leiðbeina ykkur í gegnum allt ferlið, frá fyrstu hugmynd að brottför.
Nemendaferð í Berlín
Heimsækið spennandi söfn
Hjólatúr um Amsterdam
Þarftu aðstoð við að skipuleggja nemendaferð?
Ferðaráðgjafar okkar hjálpa þér að móta hugmyndirnar, velja réttu staðina og skipuleggja ferðina frá upphafi til enda.

Hrafnhildur Jóna
Fljótlegt og einfalt bókunarferli
1
Hafðu samband
Segðu okkur frá bekknum, áfangastaðnum og ferðahugmyndunum. Við hjálpum ykkur að koma skipulaginu af stað.
2
Sérsníðum ferðina
Sérfræðingar hjálpa þér að setja saman ferðaplan sem hentar faginu, áhugamálum og fjárhagsáætlun.
3
Bókaðu ferðina
Þegar ferðatillagan er tilbúin staðfestir þú ferðina og tryggir sæti hópsins með innborgun.
4
Fínstillum smáatriðin
Við hjálpum ykkur að velja afþreyingu, skoðunarferðir og upplifanir sem gera ferðina enn eftirminnilegri.
5
Vertu klár!
Safnið bekknum saman og pakkið í töskurnar. Við sjáum um restina svo þið getið hlakkað til ferðarinnar.
Algengar spurningar
Svör við algengustu spurningunum um nemendaferðir! Ef þú finnur ekki svarið við þinni spurningu hér skaltu endilega hafa samband.
Persónuleg ferðaráðgjöf, fyrir og meðan á ferð stendur
Flugmiðar og samgöngur með lest eða rútu
Gisting á farfuglaheimili eða hóteli á góðum stað
Skemmtilegar afþreyingar og upplifanir
Ferðatrygging og forfallavernd
Frítt stafrænt ISIC afsláttar kort fyrir alla nemendur og ITIC afsláttarkort fyrir alla kennara
Nemendaferð er frábært tækifæri til að styrkja tengslin innan bekkjarins, læra eitthvað nýtt og skapa minningar sem lifa langt eftir útskrift. Með því að ferðast saman fáið þið tækifæri til að tengja námið við raunveruleikann, kynnast nýrri menningu og upplifa heiminn utan skólastofunnar.
Fjölmargir möguleikar eru í boði þegar kemur að styrkjum fyrir nemenda- og fræðsluferðir. Eftirfarandi sjóðir bjóða til dæmis upp á styrki sem við hvetjum þig til að kynna þér betur á heimasíðum félaganna.
Fjölmörg stéttarfélög bjóða einnig oft upp á styrki svo við hvetjum þig til þess að kanna reglurnar hjá þínu stéttarfélagi til að sjá hvort að þú getur fengið hluta af ferðinni þinni niðurgreidda.
Nemendaferðirnar okkar eru fyrir hópa (10 manns eða fleiri). Ef þið eruð færri er hægt að hafa samband við einstaklingsdeildina okkar.
Við skipuleggjum nemendaferðir til áfangastaða um allan heim. Hvort sem þið hafið áhuga á menningu, sögu, listum, viðskiptum, tækni eða náttúruupplifunum, hjálpum við ykkur að finna áfangastað sem hentar markmiðum ferðarinnar og fjárhagsáætlun hópsins. Meðal vinsælla áfangastaða eru meðal annars Barcelona, Berlín, Amsterdam, Prag, London og New York, en möguleikarnir eru mun fleiri.
Við mælum með að hefja skipulagningu sem fyrst til að tryggja besta úrval af flugum, gistingu og afþreyingu.
Sýnir 4 / 6 niðurstöður







