Ferð

Útskriftarferð til Portúgal

Surf í Portúgal
Um ferð

Skellið ykkur í ævintýralega útskriftarferð

Langar ykkur að fara í einstaka útskriftarferð til Portúgal? Skoðið þá þessa hugmynd okkar að hinni fullkomnu útskriftarferð sem samanstendur af sól, strönd og fallegu umhverfi.

Útskrift er fullkomið tilefni til þess að fagna, svo hvers vegna ekki að fara í ferðalag með samnemendum þínum og vinum? Við höfum sett saman tryllta 11 daga ferð í Portúgal sem einkennist af sól, strönd, næturlífi og heilum helling í viðbót.

Hápunktar ferðarinnar

11 dagar

frá

219.000,-

/á mann

fyrir hóp að lágmarki 10 manns

Heillandi strendur Portúgal
Surfævintýri
Heillandi götur Portúgal
Skoðaðu miðbæinn
Taktu sporvagn á milli staða

Þarftu aðstoð við að skipuleggja útskriftarferðina?

Ferðaráðgjafar okkar hjálpa þér að móta hugmyndirnar, velja réttu staðina og skipuleggja ferðina frá upphafi til enda.

Hrafnhildur Jóna - Ferðaráðgjafi hópa hjá KILROY

Hrafnhildur Jóna

Verð

Upplýsingar um verð

Verð frá miðast við hóp sem telur að lágmarki 10 manns.

Fljótlegt og einfalt bókunarferli

1

Hafðu samband

Segðu okkur frá hópnum þínum, helstu áfangastöðum og óskum fyrir ferðina og við hjálpum þér að gera draumaferðina að veruleika.

2

Sérsníðum ferðina

Við setjum saman ferðatillögu sem tekur mið af óskum hópsins, fjárhagsáætlun og því sem þið viljið upplifa saman.

3

Bókaðu ferðina

Þegar þið eruð sátt við ferðatillöguna staðfestið þið ferðina með innborgun.

4

Fínstillum smáatriðin

Veljið afþreyingu og upplifanir sem gera útskriftarferðina enn skemmtilegri og eftirminnilegri.

5

Vertu klár!

Safnið hópnum saman og pakkið í töskurnar. Við sjáum um restina svo þið getið notið ferðarinnar til fulls.

Hvað er innifalið í þessari ferð?

Hvað er innifalið þegar þú bókar þessa útskriftarferð hjá KILROY.

  • Persónulegur ferðaráðgjafi og öll aðstoð og leiðsögn

  • Flug

  • Far til og frá flugvellinum

  • Far á milli gististaða

  • Gisting á 3-4* hótelum í Lissabon og við hafið

  • Þjónustugjald

  • Afþreyingar

  • Máltíðir aðrar en þær sem eru nefndar

  • Ferðatrygging - en við getum aðstoðað þig við að festa kaup á slíkri

Áfangastaðir

Portúgal

Ferðin hefst í Lissabon þar sem hópurinn er sóttur á flugvöllinn og skutlað á fyrsta gististaðinn. 3-4 * hótel með morgunmat inniföldum. Hér hafið þið 4 daga (gisting í 3 nætur) þar sem þið getið skoðað allt það besta sem borgin hefur upp á að bjóða.

Eftir að útskriftarhópurinn hefur skoðað borgina er kominn tími til að halda á næsta áfangastað við sjóinn. Hér getið þið valið um að gista á Ericeira, Peniche eða Cascai. Allir þessir áfangastaðir eru í aðeins 40 mínútna fjarlægð frá Lissabon og einkennast allir af góðum ströndum og skemmtilegu næturlífi.

Það mun hópurinn einnig gista á 3-4* hóteli með morgunverði en nú í í viku. Farðu að surfa, slappaðu af á ströndinni eða kíktu út á lífið. Það sem hópurinn vill gera við tíma sinn er algjörlega undir ykkur komið. Ef þið viljið getum við þó skipulagt fyrir hópinn skemmtilegar afþreyingar eins og dagsferð til Sintra, vínsmökkun, surfkennslu, leiðsögn um Lissabon og margt fleira, látið okkur bara vita!

Lissabon, Portúgal

Lissabon, Portúgal

FAQ

Algengar spurningar

Svör við spurningum um útskriftarferðir til Mexíkó!

Ferðin hefst í Lissabon en svo er valið um að gista á Ericeira, Peniche eða Cascai, þar sem mikið er af góðum ströndum og skemmtilegu næturlífi. Við sérsníðum allar ferðir, svo við finnum eitthvað sem passar ykkar hóp fullkomnlega!

Yfirleitt eru flug, gisting, flugvallarskutl og önnur atriði samkvæmt ferðalýsingu innifalin. Við setjum sérsníðum ferðina alveg að ykkar hópi svo hún passi ykkur fullkomnlega!

Verð á mann miðast við 10 manns að ferðast saman en við skipuleggjum ferðir fyrir bæði minni og stærri útskriftarhópa. Sendið okkur upplýsingar um hópinn og við finnum lausn sem hentar.

Já svo sannarlega! Þegar hópar skipuleggja sjálfir enda oft einn eða tveir í hópnum með að bera ábyrgð á flugi, gistingu, greiðslum og samskiptum fyrir alla. Við tökum þann pakka af ykkur. KILROY sér um skipulagninguna frá upphafi til enda svo hópurinn geti einbeitt sér að því að hlakka til ferðarinnar, ekki að halda utan um Excel-skjöl og óteljandi skilaboð.

Portúgal er fullkominn áfangastaður fyrir útskriftarferðina því landið sameinar allt það besta: sólríkar strendur, líflegt og ódýrt næturlíf og frábæra menningu. Þar sem verðlagið er með því lægsta í Vestur-Evrópu geta hópar gert vel við sig í mat og skemmtun án þess að tæma bankareikninginn.

Sýnir 4 / 5 niðurstöður

Fáðu innblástur fyrir næstu hópferð beint í pósthólfið þitt

Skráðu þig á póstlistann og fáðu innblástur, ferðahugmyndir og tilboð fyrir næstu hópferð.

Hringdu í okkur

+354 517 7010

Opnunartími síma: Mánudaga - föstudaga frá 10:00 til 17:00 og laugardaga frá 13:00 - 17:00

Sendu okkur tölvupóst

groups@kilroy.is

Fyrirspurnum vegna flugmiða sem keyptir eru á netinu er svarað í tölvupósti á help@kilroy.net

Um okkur

Í meira en 30 ár hefur KILROY hjálpað forvitnum ferðalöngum að uppgötva heiminn. Við sérhæfum okkur í að skipuleggja ævintýraleg ferðalög fyrir fólk á öllum aldri, allt frá bakpokaferðalögum og heimsreisum til fjölskylduferða, fyrirtækjaferða og annarra hópferða. Hvert sem ferðalagið liggur eru ferðasérfræðingar okkar hér til að hjálpa þér að láta ferðadraumana rætast.

KILROY Iceland

Norðurturn, 11. hæð 

Hagasmári 3, 201 Kópavogur

 Opnunartími skrifstofu: Mánudaga - föstudaga frá 10:00 til 17:00

Kt. 410911-0350


© 2026 Copyright KILROY Iceland ehf

Kt. 410911-0350

© 2026 Copyright KILROY Iceland ehf