Blogg

Hópaflug

Hópalflug

Bókun hópaflugs

Ertu að skipuleggja ferð fyrir stærri hóp og veltir fyrir þér hvernig allir komist í sama flug og á sama verði? Það er aðeins flóknara að kaupa hópaflug sjálfur en að bóka flug fyrir þig eða fjölskylduna. En ekki hafa áhyggjur, því við hjálpum þér!

Af hverju að bóka hópaflug?

Það er auðvelt að leita að flugum á netinu og þú getur fundið góð tilboð sjálf/ur. En það eru nokkur atriði sem vert er að hafa í huga áður en þú bókar flug fyrir hópinn sjálf/ur:

  • Lágt verð á einum miða þýðir ekki endilega að allir í hópnum fái miða á sama verði.

  • Þú getur aðeins keypt miða fyrir nokkra í einu í flugleitarvélum, ekki fyrir allan hópinn. Ef þú skiptir bókuninni upp verða þeir sem kaupa miða á mismunandi tímum taldir aðskildir hópar af flugfélaginu. Þetta þýðir að ef flugið er t.d. ofbókað eða þið missið af tengiflugi gæti hópnum verið skipt upp í mismunandi flug eftir bókunum.

  • Þegar þú kaupir flug á netinu þarftu að greiða alla upphæðina í einu. Hópaflugmiðar eru með sveigjanlegri breytinga- og afbókunarskilmála en venjulegir miðar. Ef þú bókar sjálfur á netinu færðu alltaf venjulega miða og missir af þessum sveigjanlegu skilmálum.

Af hverju að bóka hópaflug hjá KILROY?

Slepptu við vesenið og segðu okkur hvaða flugtímar og flugleiðir henta hópnum þínum - og við sjáum um flugmiðana fyrir ykkur. Ef þú bókar flug hjá okkur tryggjum við að allur hópurinn sé á sama flugi, í stað þess að kaupa miða fyrir nokkra í einu og lenda í því að síðustu hópmeðlimir komist ekki með vegna þess að flugið er fullt.

  • Við tryggjum nægan tengitíma fyrir stóra hópa og þú getur alltaf treyst á aðstoð okkar ef eitthvað breytist í ferðinni.

  • Þú getur greitt flugmiðana í hlutum. Greiðir staðfestingargjald við bókun og restina um það bil 8 vikum fyrir ferðina.

  • Við bókum sæti fyrir hópinn í valda fluginu strax við bókun, en miðarnir eru skrifaðir út um það bil mánuði fyrir brottför (nema um annað sé samið). Ef samsetning hópsins breytist getum við breytt nöfnum án aukakostnaðar þar til miðarnir eru skrifaðir út. Eftir útgáfu miðanna getum við oftast breytt nöfnum gegn gjaldi. Ef þú kaupir sjálf/ur eru nöfnin nánast alltaf endanleg við kaup. Ef breytingar eru mögulegar eru þær alltaf gegn gjaldi.

  • Rétt stafsetning nafna er mjög mikilvæg í flugmiðum. Ef þú sendir okkur nöfnin og við sjáum um bókunina, færir þú ábyrgðina yfir á okkur. Við tryggjum að séríslenskir stafir séu rétt skrifaðir eftir alþjóðlegum kröfum.

  • Skilmálar hópaflugmiða eru sveigjanlegri en venjulegra miða, líka eftir útgáfu miðanna (u.þ.b. 1 mánuði fyrir ferð).

Aukið öryggi með pakkaferð

Ef þú bókar flug og gistingu saman hjá okkur telst ferðin almennt pakkaferð samkvæmt lögum um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun nr. 95/2018. Þú nýtur þá þeirra réttinda og þeirrar verndar sem lögin kveða á um fyrir kaupendur pakkaferða.

Hafðu þetta í huga þegar þú berð saman verð. Þegar flug og gisting eru bókuð sem pakkaferð ber skipuleggjandi ferðarinnar ákveðna ábyrgð samkvæmt lögum og þú getur átt rétt á aðstoð og úrræðum sem ekki gilda endilega þegar hver þjónustuþáttur er keyptur sérstaklega.

Ef þú bókar flug og gistingu sitt hjá hvorum aðilanum nýtur þú almennt ekki sömu verndar og þegar um pakkaferð er að ræða.

Þarftu aðstoð við að skipuleggja hópferð?

Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.

Af hverju að velja KILROY fyrir næstu ferðina þína

Sérsniðnar hópferðir

Við sérsníðum ferðina að þínum hópi og pössum að þið fáið frábæra upplifun og hagstæðasta kostinn.

24/7 neyðarsími

Ef eitthvað óvænt kemur upp á er neyðarsíminn okkar opinn allan sólarhringinn. Ferðasérfræðingar KILROY eru til staðar fyrir þig, hvar og hvenær sem er.

Sparaðu tíma og fyrirhöfn

Við sjáum um öll praktísku atriðin; skipulag, að fylgja fjárhagsáætlun, pappírsvinnu og breytingar, svo að þið getið notið upplifunarinnar áhyggjulaus.

Persónuleg ferðaráðgjöf

Ferðaráðgjafi sem kynnist óskum, draumum og markmiðum hópsins. Frá fyrstu hugmynd að heimkomu erum við með þér í hverju skrefi á leiðinni.

Nýjast á KILROY ferðablogginu

Við elskum að ferðast og vonum að þú gerir það líka! Fáðu innblástur fyrir næsta ævintýri með ferðasögum, ráðum og spennandi áfangastöðum.

Fáðu innblástur fyrir næstu hópferð beint í pósthólfið þitt

Skráðu þig á póstlistann og fáðu innblástur, ferðahugmyndir og tilboð fyrir næstu hópferð.

Hringdu í okkur

+354 517 7010

Opnunartími síma: Mánudaga - föstudaga frá 10:00 til 17:00 og laugardaga frá 13:00 - 17:00

Sendu okkur tölvupóst

groups@kilroy.is

Fyrirspurnum vegna flugmiða sem keyptir eru á netinu er svarað í tölvupósti á help@kilroy.net

Um okkur

Í meira en 30 ár hefur KILROY hjálpað forvitnum ferðalöngum að uppgötva heiminn. Við sérhæfum okkur í að skipuleggja ævintýraleg ferðalög fyrir fólk á öllum aldri, allt frá bakpokaferðalögum og heimsreisum til fjölskylduferða, fyrirtækjaferða og annarra hópferða. Hvert sem ferðalagið liggur eru ferðasérfræðingar okkar hér til að hjálpa þér að láta ferðadraumana rætast.

KILROY Iceland

Norðurturn, 11. hæð 

Hagasmári 3, 201 Kópavogur

 Opnunartími skrifstofu: Mánudaga - föstudaga frá 10:00 til 17:00

Kt. 410911-0350


© 2026 Copyright KILROY Iceland ehf

Kt. 410911-0350

© 2026 Copyright KILROY Iceland ehf