Blogg

Árshátíðarferðir

Árshátíðarferð erlendis

Er þitt fyrirtæki að skipuleggja árshátíðarferð?

Er árshátíð á næsta leiti? Á að gera eitthvað öðruvísi í ár? Hvað með að fara með fyrirtækið í árshátíðarferð erlendis? Við getum aðstoðað ykkur við að skipuleggja árshátíðarferð fyrir stóra jafnt sem smáa hópa. Kíkið á okkar tillögur að frábærum árshátíðarferðum og hafið síðan samband við okkur til að fá fría ráðgjöf fyrir hópinn ykkar!

Hvert langar ykkur að fara?

Við getum skipulagt árshátíðarferð fyrir fyrirtækið þitt út um allan heim, en til að auðvelda þér vinnuna tókum við saman þá áfangastaði sem hafa verið hvað vinsælastir hjá okkur upp á síðkastið. Skoðaðu þetta og hafði svo samband við okkur til að fá fría ráðgjöf fyrir hópinn þinn.

Við bjóðum upp á fjölmarga áfangastaði

Við bjóðum upp á fjölmarga áfangastaði

Fljótlegt og einfalt bókunarferli

1

Hafðu samband

Segðu okkur frá hópnum, áfangastaðnum og ferðahugmyndunum. Við hjálpum ykkur að koma skipulaginu af stað.

2

Sérsníðum ferðina

Við sérsníðum fræðsluferðina að markmiðum, áhugasviði og fjárhagsáætlun hópsins.

3

Bókaðu ferðina

Þegar ferðatillagan er tilbúin staðfestir þú ferðina og tryggir sæti hópsins með innborgun.

4

Fínstillum smáatriðin

Við hjálpum ykkur að velja afþreyingu, skoðunarferðir og upplifanir sem gera ferðina enn eftirminnilegri.

5

Vertu klár!

Safnið hópnum saman og pakkið í töskurnar. Við sjáum um restina svo þið getið hlakkað til ferðarinnar.

Árshátíðarferð til Prag

Prag er ein fallegasta og mest heillandi borg Evrópu og tilvalin fyrir árshátíðarferð þar sem hópurinn sameinast í upplifun sem enginn gleymir. Borgin er þekkt fyrir stórbrotinn arkitektúr, sögufræga götur og notalegt andrúmsloft. Gamli bærinn, sem er á heimsminjaskrá UNESCO, er fullur af lífi og býður upp á fjölbreytta menningu, sögur og falin fjársjóð til að uppgötva saman.

Gist er á glæsilegu fimm stjörnu hóteli í miðborginni þar sem morgunverður er innifalinn. Hótelið býður upp á veislusal sem hentar einstaklega vel fyrir sjálfa árshátíðina. Herbergin eru vel búin, með öllum þeim þægindum sem gera dvölina afslappandi og þægilega.

Prag hentar einstaklega vel fyrir hópa og býður upp á skemmtilega og fjölbreytta afþreyingu. Röltið um gamla bæinn og yfir Karlsbrúna, bjórsmökkun, gómsæta kvöldverði og bátsferð á Vltava-ánni, þar sem hægt er að njóta borgarinnar frá öðru sjónarhorni.

Upplifið sólsetur í Prag

Upplifið sólsetur í Prag

Árshátíðarferð til Dublin

Dublin er einstaklega lífleg og skemmtileg borg sem hentar fullkomlega fyrir árshátíðarferð. Hér sameinast rík menningarsaga, frábær stemning og hlýlegt andrúmsloft sem gerir borgina sérstaklega heillandi fyrir hópa. Hvort sem þið viljið njóta írskrar menningar, góðra veitinga eða einfaldlega upplifa borg sem tekur gestum opnum örmum, þá er Dublin rétti staðurinn.

Hópurinn gistir á fjögurra stjörnu hóteli með frábæra staðsetningu í hjarta borgarinnar og morgunverður er innifalinn. Við komu tekur rúta á móti hópnum á flugvellinum og keyrir ykkur þægilega að gististað.

Í Dublin má finna fjölbreytta afþreyingu fyrir alla eins og heimsókn í Guinness verksmiðjuna, gönguferð um Temple Bar hverfið, söfn, dómkirkjur og stór græn almenningssvæði eins og Phoenix Park. Kvöldverður í góðum félagsskap á eftirminnilegum veitingastað er tilvalin leið til að fagna og skapa góðar minningar saman. Dublin býður upp á ferð sem sameinar afslöppun, upplifun og gleði.

Kannið Dublin í árshátíðarferð

Kannið Dublin í árshátíðarferð

Þarftu aðstoð við að skipuleggja árshátíðarferð?

Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.

Agnes - Ferðaráðgjafi hópa hjá KILROY

Agnes

Árshátíðarferð til Helsinki

Helsinki er einstaklega áhugaverður áfangastaður sem sameinar rólegt norrænt andrúmsloft við líflega borgarmenningu og skapandi orku. Borgin stendur við strönd Eystrasaltsins og er þekkt fyrir glæsilega arkitektúr, nútímalega hönnun, góða matarmenningu og fjölbreytt menningarlífið. Hér finnur hópurinn bæði ró og fjör, fullkomið jafnvægi fyrir árshátíðarferð.

Hópurinn gistir á fjögurra stjörnu hóteli með morgunverði þar sem öll aðstaða til að halda árshátíð er til staðar. Veislusalurinn er með fallegu útsýni og kvöldverðurinn sem býðst er bæði vandaður og sniðinn fyrir tilefnið.

Í Helsinki er úrval af afþreyingu sem hentar hópum, hvort sem það er að fara saman í klassíska finnska gufu, skella sér í karókípartý eða njóta góðs matar á einum af mörgum veitingastöðum borgarinnar. Þetta er ferð sem sameinar hágæða upplifun, fallegt umhverfi og ógleymanlega samveru.

Allskyns afþreying í boði í Helsinki

Allskyns afþreying í boði í Helsinki

Árshátíðarferð til Munich

Langar ykkur að fara í einstaka árshátíðarferð til Munich? Þá er þessi hugmynd okkar að hinni fullkomnu árshátíðarferð til Munich, sem samanstendur af einstökum arkitektúr, hátíðarhöldum og góðum mat, eitthvað fyrir ykkur!

Ferðalagið til Munich er ekki langt og í flestum tilfellum er það bara beint frá Keflavík, sem er frábært fyrir stutta ferð. Þegar árshátíðarhópurinn lendir í Munich er hann sóttur á flugvöllinn og skutlað á frábærlega staðsett 4 stjörnu hótel í þessari gullfallegu borg.

Fyrsta daginn væri tilvalið að fara í göngutúr og skoða borgina eða jafnvel hoppa í skoðunarferð og enda túrinn á stórkemmtilegri bjórsmökkun, þar sem Munich er mjög þekkt fyrir bjórmenningu sína.

Næsta dag yrði síðan haldinn hátíðlegur árshátíðarkvöldverður þar sem þið munuð gæða ykkur á dýrindis veitingum og drykkjum og fagna saman fram á nótt!

Daginn eftir frábæra árshátíð erlendis væri tilvalið að eyða deginum í að skoða Munich betur, jafnvel kíkja aðeins í búðir og nýta tækifærið áður en haldið er af stað heim á leið.

Hjólið um og kannið borgina

Hjólið um og kannið borgina

Árshátíðarferð til Stokkhólms

Stokkhólmur er ein fallegasta og mest heillandi borg Norðurlandanna. Borgin er byggð á eyjum sem tengjast með brúm og hefur gjarnan verið kölluð Feneyjar norðursins. Hér mætist sögulegur miðbær með þröngum steinlögðum götum og litríkum húsum við nútímalega hönnun og lifandi borgarmenningu. Þetta er staður þar sem saga og nútími fléttast saman á einstakan hátt.

Hópurinn gistir á fjögurra stjörnu hóteli í miðborginni þar sem morgunverður er innifalinn. Hótelið hentar sérlega vel fyrir hópa og býður upp á stílhrein herbergi, góða aðstöðu og nálægð við helstu kennileiti borgarinnar.

Fyrir þá sem vilja bjóða meira enn hefbundna árshátíðarferð býður Stokkhólmur einnig upp á skemmtileg hópefli utan hins hefðbundna. Hægt er að bóka Game Night Show þar sem keppnisskap og hlátur ráða ríkjum, eða halda í ævintýralega ferð með báti yfir í Prison Island, þar sem hópar takast á við krefjandi og skemmtileg verkefni saman. Kvöldið má síðan fullkomna á glæsilegum veitingastað í miðbæ Stokkhólms.

Skoðið gamla bæinn í Stokkhólmi

Skoðið gamla bæinn í Stokkhólmi

Vantar ykkur aðstoð við að skipuleggja árshátíðarferðina?

Af hverju að gera hlutina erfiðari en þeir þurfa að vera? Við getum séð um skipulagninguna á árshátíðarferð fyrirtækis þíns frá A til Ö. Skrifaðu okkur og fáðu fría ferðaráðgjöf.

Tengdar ferðir

Viltu meiri innblástur? Hér eru ferðatillögur sem þú getur skoðað.

Nýjast á KILROY ferðablogginu

Við elskum að ferðast og vonum að þú gerir það líka! Fáðu innblástur fyrir næsta ævintýri með ferðasögum, ráðum og spennandi áfangastöðum.

Fáðu innblástur fyrir næstu hópferð beint í pósthólfið þitt

Skráðu þig á póstlistann og fáðu innblástur, ferðahugmyndir og tilboð fyrir næstu hópferð.

Hringdu í okkur

+354 517 7010

Opnunartími síma: Mánudaga - föstudaga frá 10:00 til 17:00 og laugardaga frá 13:00 - 17:00

Sendu okkur tölvupóst

groups@kilroy.is

Fyrirspurnum vegna flugmiða sem keyptir eru á netinu er svarað í tölvupósti á help@kilroy.net

Um okkur

Í meira en 30 ár hefur KILROY hjálpað forvitnum ferðalöngum að uppgötva heiminn. Við sérhæfum okkur í að skipuleggja ævintýraleg ferðalög fyrir fólk á öllum aldri, allt frá bakpokaferðalögum og heimsreisum til fjölskylduferða, fyrirtækjaferða og annarra hópferða. Hvert sem ferðalagið liggur eru ferðasérfræðingar okkar hér til að hjálpa þér að láta ferðadraumana rætast.

KILROY Iceland

Norðurturn, 11. hæð 

Hagasmári 3, 201 Kópavogur

 Opnunartími skrifstofu: Mánudaga - föstudaga frá 10:00 til 17:00

Kt. 410911-0350


© 2026 Copyright KILROY Iceland ehf

Kt. 410911-0350

© 2026 Copyright KILROY Iceland ehf