{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.
Brúðkaupsferð til Suður-Afríku - Þarf að setja nýja mynd
Sjá sem lista

Lengd

15 dagar

Tegund ferðalags

Brúðkaupsferð

Áfangastaður

Jóhannesarborg, Kruger þjóðgarðurinn, Cape Town

Verð frá

522.500 ISK á mann

Viltu vita meira?
Suður-Afríka er fullkominn áfangastaður brúðkaupsferðar fyrir hjón sem vilja sameina ævintýraleg safarí, stórbrotið landslag, litrík borgarlíf og afslappaða daga á fallegum ströndum. Stórkostleg fjöll, fjölbreytt dýralíf og menningarríkar borgir skapa rómantíska, spennandi og ógleymanlega stemningu frá fyrsta degi.

 

Ferðin hefst með flugi til Jóhannesarborgar með stuttri millilendingu í London. Fyrstu dagarnir fara í safarí í Kruger þjóðgarðinum, þar sem þið kynnist afríska villidýralífinu áður en leiðin liggur aftur til Jóhannesarborgar. Þar farið þið í hjólaferð um Soweto og heimsækið sögulegastaði sem gefa ferðalaginu aukna dýpt. Í Cape Town bíða ykkar níu nætur af slökun, góðum mat, dagsferðum og rólegum augnablikum við hafið. Þetta er ferð sem sameinar ævintýri, menningu og samveru – fullkomin byrjun á lífinu saman.

Fá fría ferðaráðgjöf

 

Innifalið
  • Öll flug með tösku
  • 4 daga safari ferð í Kruger þjóðgarðinum
  • Dagur í vínsmökkun
  • Dagsferð á Cape Peninsula
  • 4* hótel í Cape Town
  • 4* hótel í Jóhannesarborg
  • Dagsferð um Soweto á á Nelson Mandela safnið
  • Þjónustugjald
  • Ráðgjöf hjá ferðasérfræðing
Ekki innifalið
  • Tryggingar, en við getum aðstoðað þig við kaup á slíkum
  • Máltíðir aðrar en þær sem eru nefndar

1. Flug: Flogið til Jóhannesarborgar

Flogið er frá Íslandi til Jóhannesarborgar með millilendingu í London. Ekki er gist í London.

2. Dagar 1-4: Safarí í Kruger þjóðgarði

Komið er til Suður-Afríku og farið beint í Kruger þjóðgarðinn í fjögurra daga safarí ferð. Þar getið þið séð fjölmargar dýrategundir, allt frá þeirri stundu sem þið komið inn á svæðið. Afríska antilópu, sebrahesta, gíraffa og fíla... listinn er endalaus. Njótið fjölbreyttra safarí-upplifana og reynið að sjá The Big 5. Ferðin sameinar morgun- og kvöldleiðangra þegar dýrin eru virkust, auk dagsferðar um garðinn þar sem landslagið og fjölbreytni dýranna koma svo sannarlega í ljós. Með reyndum leiðsögumanni verður ferðin bæði örugg og ótrúlega fróðleg. Gisting í 3 nætur nálægt svæðinu er innifalin. Þið byrjið ferðalagið á algjöru ævintýri og ógleymanlegri upplifun.

3. Dagar 4-6: Jóhannesarborg - Hjólaferð um Soweto og sögulegar heimsóknir

Eftir safarí ferðina er áfram haldið til Jóhannesarborgar og gist á fjögurra stjörnu hóteli í tvær nætur. Þar farið þið í hjólaferð um Soweto sem er staður fullur af sögu, menningu og skapandi hugsun. Innifalið er einnig aðgangur á Nelson Mandela safnið. Seinni daginn í Jóhannesarborg er svo flogið yfir til Cape Town.

4. Dagar 6-15: Cape Town - explora, slaka á og njóta

Í Cape Town dveljið þið á fjögurra stjörnu hóteli í níu nætur, þar sem þið hafið bæði skipulagðar upplifanir og nægan frítíma til að njóta borgarinnar á ykkar eigin hraða. Við höfum sett saman tvær spennandi dagsferðir fyrir ykkur, en restin er í ykkar höndum.

Fyrri ferðin er vínsmökkun þar sem þið gangið um stórbrotið landslag og vínekrur, kynnist sögu vínræktar, smakkið ólíkar tegundir og njótið staðbundinna kræsingar. Hin ferðin leiðir ykkur um Cape Peninsula, með stórkostlegu útsýni yfir strendur og kletta, heimsókn til mörgæsanna í Simons Town og ferð eftir Chapman’s Peak, einni fallegustu strandleið Suður-Afríku – allt á sama deginum.

Cape Town býður svo upp á endalaust af afþreyingu, hvort sem þið viljið slaka, safna minningum eða kanna eitthvað nýtt. Við eigum ótal fleiri uppástungur ef þið viljið gera ferðina enn þéttari.

Á degi 15 hefst heimferðin aftur, með millilendingu í London á leiðinni.

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.