Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'
0 Results found
Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'
0 Results found
Flogið er frá Íslandi til Sydney með millilendingum í London og Dúbaí.
Þið gistið 3 nætur í Sydney og getið nýtt dagana sem þið hafið þar til þess að skoða borgina. Til dæmis skoðað Óperuhúsið, tekið ferju til Manly Beach eða farið til Bondi Beach og upplifað surf stemmninguna.
Eftir nokkra daga í borginni er flogið til Brisbane þar sem húsbíll er sóttur fyrir spennandi roadtrip upp alla austurströndina. Á leiðinni mælum við með að stoppa á nokkrum einstaklega áhugaverðum og skemmtilegum stöðum, en úrval af afþreyingu er mikið alla leiðina.
Fyrst er hægt að stoppa í Noosa og þaðan halda áfram til K'gari Island. Við mælum með að fara í tveggja daga ferð um K’gari þar sem þið uppgötvið stærstu sandeyju heims á einstöku ævintýri. Þar keyrið þið eftir 75 Mile Beach, sjáið skipsflakið SS Maheno og syndið í kristaltæru vatni Lake McKenzie. Þið njótið kvöldanna í einstakri tjaldgistingu með leiðsögn heimamanna og upplifið ósnortna náttúru eyjarinnar.
Frá K’gari er haldið til Agnes Water og þaðan áfram til Airlie Beach. Í Airlie Beach er farið í útsýnisflug yfir ströndina og eyjarnar í kring, sem og í tveggja daga bátsferð um Whitsunday-eyjarnar sem er sannkölluð ógleymanleg upplifun. Þetta er fullkomin leið til að „disconnecta“ frá umheiminum og upplifa hið sanna bátalíf. Gist er um borð, Whitehaven Beach er heimsótt og þið njótið fallegra sólsetra og góðrar stemmningar á bátnum.
Þaðan er haldið áfram upp til Townsville þar sem hægt er að heimsækja Magnetic Island áður en leiðin liggur áfram til Mission Beach. Í Mission Beach er svo farið í river rafting og síðan hægt að finna allskonar aðrar skemmtilegar afþreyingar.
Þið skilið bílnum í Cairns og tjékkið ykkur inn á 4* hótel. Frá Cairns er mælum við með að fara að kafa í Great Barrier reef (þið getið líka breytt því í köfun) og skoða svo skóglendið í kring í skemmtilegum dagsferðum - og svo er líka hægt að slaka bara á.
Eftir ævintýrið í Cairns er flogið suður til Melbourne þar sem dvölinni lýkur í borginni og þar getið þið skoðað ykkur um. Við mælum með að fara í dagsferð þar sem þið keyrið eina fallegustu strandleið heims. Þar bíða ykkar dramatískir klettar, regnskógar, dýralíf og hinir stórfenglegu Twelve Apostles. Eftir fjórar nætur í Melbourne fljúgið þið síðan aftur heim til Íslands, með tveimur millilendingum.
Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText
Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.