{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.

Bókaðu áhyggjulaus með KILROY

Girl Trekking With Backpack During Sunset (1)

Afhverju að bóka með ferðaskrifstofu?

Þegar þú bókar með KILROY færðu ráðgjöf frá fólki sem hefur sjálft ferðast um heiminn og þekkir þetta af eigin reynslu. Við vitum að hlutirnir fara ekki alltaf samkvæmt áætlun og einmitt þess vegna er gott að hafa einhvern innan handar á meðan á ferðinni stendur.

Hjá okkur fara saman raunveruleg ferðareynsla og traust vernd. Ef þú bókar ferð hjá okkur nýtur ferðin þín verndar samkvæmt lögum nr. 95/2018 um pakkaferðir. Það þýðir að ef eitthvað fer ekki eins og áætlað var stendur þú ekki ein/n, við erum með þér alla leið.

 

Hafa samband

Square IMG 0453

Hvað þýðir það að kaupa ferðapakka?

Ferðapakki þýðir að þú kaupir ferð sem samanstendur af nokkrum þáttum í einu, frá sama aðila. Þá sér þinn ferðaráðgjafi um að allt passi saman í tíma og að ferðin gangi smurt fyrir sig.

Til dæmis, ef þú bókar bæði flug og gistingu hjá okkur á einu verði, þá telst það ferðapakki. Í slíkum tilfellum átt þú rétt á aðstoð ef eitthvað fer úrskeiðis á ferðinni eða ef þjónustan er ekki eins og lofað var.

 

Öryggi í breyttu heimsástandi

Þar sem veðurfar breytist ört, átök eru stigmagnandi og milliríkjadeilur færast í aukana þá getur þetta allt haft áhrif á flugsamgöngur milli landa. Ef þú bókar ferð hjá okkur, hjálpum við þér með endurbókun, að finna aðra ferð eða fá fulla endurgreiðslu ef ekki er hægt að framkvæma ferðina vegna ófyrirséðra og óvenjulegra aðstæðna. Við fylgjum alltaf ferðaráðleggingum utanríkisráðuneytisins og höldum þér upplýstum.

 

Ferðatrygging

Ef þú vilt aukið öryggi fyrir ferðina þína geturðu bókað ferðatryggingu í gegnum okkur. Hún hentar bæði stuttum og löngum ferðum, þar á meðal ævintýraferðum. Við hjálpum þér að velja þann kost sem hentar þér best.

 

24/7 Neyðarsími

Ef þú bókar ferðapakka hjá okkur hefurðu aðgang að neyðarsíma allan sólarhringinn á meðan á ferðinni stendur. Ef eitthvað brýnt kemur upp eins og aflýsing á flugi, tap á ferðaskjölum eða önnur óvænt atvik, getur þú haft samband við neyðarsíma KILROY. Sérfræðingar á vakt hjálpa þér að leysa málin.

Við erum með KILROY starfsmenn frá KILROY löndunum sem hafa flust til annars vegar Suður-Ameríku og hins vegar Eyjaálfu 6 mánuði í senn. Með staðsetningunni þá geta allir á venjulegum vinnutíma náð yfir 24 klukkustundir í sólarhring. Eftir íslenskan vinnutíma taka við KILROY starfsmenn staðsettir í Suður Ameríku, þegar þeirra vinnudegi líkur þá standa KILROY starfsmenn í Ástralíu vaktina á meðan við sofum. Þannig nær KILROY með samstilltu átaki að veita sem besta þjónustu, með raunverulegri reynslu og innanhússþekkingu sama hvaða tíma sólarhrings.

 

Raunverulegt fólk sem er til staðar fyrir þig

Ferðaráðgjafarnir okkar hafa sjálfir ferðast víða um heiminn og hjálpa þér að skipuleggja ferð sem virkar í raun, ekki bara á pappír. Þau aðstoða þig við að velja áfangastaði, skipuleggja leiðir og sjá um praktísk atriði áður en þú leggur af stað. Og ef eitthvað óvænt gerist, ert þú ekki ein/n.

Hafa samband

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.