RÚTUFERÐIR

Miðinn þinn út í heim
Uppgötvaðu heiminn með rútuferðum.
Valdar rútuferðir og rútupassar
Skoðaðu úrvalið okkar af rútuferðum og rútupössum um allan heim
Langar þig að ferðast án þess að keyra sjálf/ur?
Sveigjanlegu rútupassarnir okkar og sérvaldar rútuferðir eru hannaðar til að þú getir ferðast á þínum hraða frá einum stað til annars og gripið öll helstu ævintýrin með á leiðinni. Hvort sem þig langar að ferðast meðfram goðsagnakenndum strandvegum í Eyjaálfu, kafa ofan í líflega menningu Asíu eða leggja af stað í stórbrotið safaríævintýri í Afríku, þá erum við með leið fyrir þig. Veldu heimsálfu, pakkaðu í töskuna og skipuleggðu draumaferðina þína:
Ástralía og Nýja-Sjáland: Fylgdu goðsagnakenndu austurströndinni eða uppgötvaðu stórbrotið landslag Nýja-Sjálands.
Suðaustur-Asía: Hoppaðu á milli líflegra borga, sögulegra mustera og falinna strandparadísa.
Suður- og Mið-Ameríka: Ferðastu um fjallaskörð, fornar rústir og gróskumikla regnskóga.
Afríka: Upplifðu stórbrotna náttúru, epískar leiðir og svæði þar sem villt dýralíf ræður ríkjum.

Greyhound Coach, Ástralía
Þarftu aðstoð við að bóka rútuferð?
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.
Ferðastu á þínum forsendum
Við vinnum með traustum samstarfsaðilum um allan heim til að gera ferðalagið eins einfalt, sveigjanlegt og skemmtilegt og mögulegt er. Hvort sem þú ert að eltast við bestu strandirnar, falda náttúruperlur eða nýja vini á leiðinni, þá hjálpa samstarfsaðilar okkar þér að komast þangað.
Í Ástralíu er Greyhound í uppáhaldi hjá bakpokaferðalöngum sem vilja skoða austurströndina. Á Nýja-Sjálandi bjóða Kiwi Experience og Stray upp á hop-on/hop-off ferðir sem sameina vinsæla áfangastaði og staði utan alfaraleiða.
Í Mið- og Suður-Ameríku auðvelda Bamba Experience og Peru Hop ferðalög á milli stórbrotinna náttúruperla, borga og ævintýra. Í Suður-Afríku er Baz Bus vinsæll kostur fyrir þá sem vilja ferðast á öruggan og félagslegan hátt milli helstu áfangastaða landsins.
Það sem gerir þessi ferðanet sérstök er sveigjanleikinn. Þú ferð á þínum hraða, stoppar þar sem þig langar að dvelja lengur og heldur áfram þegar næsta ævintýri kallar.

Baz Bus, Suður-Afríka
Algengar spurningar
Ertu með spurningar? Við höfum svörin. Hér eru nokkrar af þeim sem ferðalangar spyrja oftast um rútuferðir.
Með ferðapassa fyrir rútur færðu aðgang að leiðakerfi innan lands eða svæðis með einum passa. Þannig geturðu ferðast auðveldlega á milli staða án þess að þurfa að leigja bíl eða húsbíl.
Með rútupassa færðu aðgang að leiðakerfi sem gerir þér kleift að ferðast auðveldlega á milli áfangastaða. Þú nýtur frelsis til að skipuleggja ferðina eins og þú vilt og uppgötva nýja staði á leiðinni.
Margir rútupassanna okkar byggja á hop-on hop-off fyrirkomulagi og sameina sveigjanleika sjálfstæðra ferðalaga við kosti hópferðar. Veldu leið sem tekur þig til þeirra staða sem þú vilt upplifa og ferðastu á þínum eigin hraða.
Hvort rútupassi sé þess virði fer eftir því hversu mikils þú metur þægindi og öryggi á ferðalaginu. Einstakar rútuferðir geta oft verið aðeins ódýrari ef þær eru bókaðar hver fyrir sig, en þá fylgir yfirleitt meiri fyrirhöfn. Þú þarft sjálf/ur að rata um ókunnar samgöngumiðstöðvar, kaupa miða á staðnum og stundum greiða aukalega fyrir leigubíla eða aðrar samgöngur að gististaðnum.
Rútupassar eru vinsælir vegna þess að þeir einfalda ferðalagið og veita meira öryggi og sveigjanleika. Þú getur ferðast á milli áfangastaða án þess að þurfa að hafa áhyggjur af hverri ferð fyrir sig og einbeitt þér frekar að upplifuninni.
Við bjóðum upp á rútupassa og rútuferðir í Ástralíu, Nýja-Sjálandi, Suður-Afríku, Asíu, Mið-Ameríku og Suður-Ameríku. Hvaða leiðir og ferðapassar eru í boði fer eftir áfangastaðnum, svo úrvalið getur verið mismunandi eftir löndum og svæðum.
Með sumum rútupössum ferðast þú í hópi annarra alþjóðlegra ferðalanga en hefur jafnframt frelsi til að fara þína eigin leið. Þannig færðu það besta úr báðum heimum: Einfaldleikann sem fylgir skipulögðu ferðalagi og sveigjanleikann sem fylgir því að ferðast á eigin forsendum.
Rútuferðir og rútupassar eru meðal bestu leiðanna til að ferðast um á landi ef þú vilt sleppa því að keyra sjálf/ur. Hvort sem þú ert að ferðast einn eða með vinahópi er rútupassi þægileg leið til að komast á milli staða og hitta annað ferðafólk á leiðinni.
Rútupassar eru oft hagkvæmari en að ferðast með flugi, lest eða bílaleigubíl, sem gerir þá sérstaklega vinsæla meðal bakpokaferðalanga og annarra sem vilja fá sem mest út úr ferðabudgetinu sínu. Yfirleitt er hægt að velja á milli mismunandi passategunda og gildistíma, svo auðvelt er að finna lausn sem hentar ferðaplönunum þínum.
Sveigjanleikinn er einnig stór kostur. Ólíkt flug- og lestaferðum, sem fylgja föstum tímatöflum, bjóða margar rútuþjónustur upp á margar brottfarir á dag. Þannig geturðu ferðast þegar þér hentar og breytt áætluninni ef þú ákveður að dvelja lengur á stað sem heillar þig.
Rútuferðir snúast þó ekki aðeins um að komast á milli staða. Þær gefa einnig tækifæri til að kynnast bæði heimafólki og öðrum ferðalöngum. Á leiðinni myndast oft skemmtileg samtöl, ný vináttubönd og sameiginlegar ferðaminningar sem gera upplifunina enn eftirminnilegri.
Sýnir 4 / 6 niðurstöður
Þú ættir að nýta þér rútupassa ef þú...
...vilt ekki skipuleggja of mikið fyrirfram
Slepptu veseni við að skipuleggja leiðir, keyra og rata. Mættu bara, slakaðu á og leyfðu heimamönnum að sjá um allt.
...vilt kynnast fólki á einfaldan hátt
Hópbílaferðir tengja sóló ferðalanga strax saman. Þú deilir upplifunum, sögum og hlátri með öðrum ferðalöngum.
...vilt fá meira fyrir minna
Þú sparar bæði pening og skipulagningu og færð að uppgötva staði sem eru oft meðal hápunkta ferðarinnar.




















