CUSCO

Cusco er upphafspunkturinn fyrir gönguferðir á Inka-slóðinni.

Hliðin að Inka-ævintýrinu þínu

Cusco er staðurinn þar sem vekjaraklukkan hringir snemma, loftið er þunnt og ævintýrin stór. Hér hefst Inka-slóðin, Salkantay-gönguferðin, Rainbow Mountain og ótal aðrar göngur sem skilja eftir sig bæði harðsperrur og minningar. Milli ævintýra geturðu smakkað lókal rétti, ráfað um fornar Inka-götur og sogið í þig stemninguna í einni vinsælustu bakpokaferðamannaborg Suður-Ameríku. Ef Perú er á bucket listanum þínum eru miklar líkur á að leiðin liggi um Cusco.

Gönguferðir til Perú byrja í Cusco.
Upplifðu staðbundna fjallamenningu.

Gönguferðir til Perú byrja í Cusco.

Hittu alpakka á gönguleiðunum.

Upplifðu staðbundna fjallamenningu.

Gönguferðir sem standa undir væntingum

Verum hreinskilin. Sumir frægir staðir eru svolítið ofmetnir, en Machu Picchu er ekki einn af þeim. Þetta er sérstakur staður sem er þess virði að ganga hvert skref. Hvort sem þú ferð þangað eftir goðsagnakenndu Inka-slóðinni eða kemur með lest, þá verður fyrsta augnablikið, þegar þú sérð týndu borg Inkanna, ógleymanlegt. Myndirnar eru flottar, en að vera þar sjálfur er allt annað. Ef Perú er á bucket listanum þínum, bjóðum við upp á gönguferðir til Machu Picchu með bestu lókal leiðsögnunum og allri þjónustu innifalinni. Komdu með!

Veldu þína draumleið til Machu Picchu.

Veldu þína draumleið til Machu Picchu.

Veldu þína gönguferð

Inca-slóðin

Klassíska leiðin. Fylgdu fornum steinstígum yfir Andesfjöllin og komdu til Machu Picchu í gegnum hið þekkta Sun Gate. Þetta er vinsælasta Machu Picchu gönguferðin. Passaðu að bóka tímanlega því fjöldi leyfðra þátttakenda á dag er takmarkaður. Ef þú vilt upplifa allt, skráðu þig í 4 daga gönguferðina: Þú gistir 3 nætur í tjöldum, lærir um Inca-ríkið frá lókal leiðsögumönnum og nýtur frábærs matar sem kokkar elda á staðnum!

Hittu heimamenn á leiðinni.
Taktu áskorunina á Lares-gönguferðinni.
Veldu Salkantay fyrir ævintýralegu leiðina.

Hittu heimamenn á leiðinni.

Taktu áskorunina á Lares-gönguferðinni.

Veldu Salkantay fyrir ævintýralegu leiðina.

Af hverju að velja KILROY fyrir næstu ferðina þína

30+ ára reynsla

Yfir 30 ára reynsla, sérþekking og traustir samstarfsaðilar okkar um allan heim gera þér kleift að ferðast með öryggi og sjálfstrausti.

Persónuleg ferðaráðgjöf

Ferðaráðgjafi sem kynnist þínum óskum, draumum og markmiðum. Frá fyrstu hugmynd að heimkomu erum við með þér í hverju skrefi á leiðinni.

24/7 neyðarsími

Ef eitthvað óvænt kemur upp á er neyðarsíminn okkar opinn allan sólarhringinn. Ferðasérfræðingar KILROY eru til staðar fyrir þig, hvar og hvenær sem er.

KILROY leiðin

Bestu ferðirnar enda ekki þegar þú kemur heim. Þær lifa áfram í upplifunum, sögum og minningum sem fylgja þér lengi eftir að ferðinni lýkur.

Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferð til Cusco?

Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.

Fáðu ferðainnblástur og einstök tilboð beint í pósthólfið þitt

Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu upplýsingar um nýjar ferðir, ferðainnblástur, viðburði og tilboð. Vertu klár í næsta ævintýri!

Hringdu í okkur

+354 517 7010

Opnunartími síma: Mánudaga - föstudaga frá 10:00 til 17:00 og laugardaga frá 13:00 - 17:00

Sendu okkur tölvupóst

travels@kilroy.is

Fyrirspurnum vegna flugmiða sem keyptir eru á netinu er svarað í tölvupósti á help@kilroy.net

Um okkur

Í meira en 30 ár hefur KILROY hjálpað forvitnum ferðalöngum að uppgötva heiminn. Við sérhæfum okkur í að skipuleggja ævintýraleg ferðalög fyrir fólk á öllum aldri, allt frá bakpokaferðalögum og heimsreisum til fjölskylduferða, fyrirtækjaferða og annarra hópferða. Hvert sem ferðalagið liggur eru ferðasérfræðingar okkar hér til að hjálpa þér að láta ferðadraumana rætast.

KILROY Iceland

Norðurturn, 11. hæð 

Hagasmári 3, 201 Kópavogur

 Opnunartími skrifstofu: Mánudaga - föstudaga frá 10:00 til 17:00

Kt. 410911-0350

© 2026 Copyright KILROY Iceland ehf