{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.

Enskunám fyrir 14-16 ára

Parísarhjól í Bournemouth á Englandi

Ert þú á aldrinum 14-16 ára? Langar þig að læra ensku eða bæta núverandi kunnáttu? Hvernig líst þér á að fara á tveggja vikna enskunámskeið í Bournemouth eða Cambridge?

Besta leiðin til að læra ensku er að dveljast í því umhverfi sem tungumálið er talað. Þar munt þú heyra ensku allan daginn og fá fjölda tækifæra til að æfa tal. Þannig lærir þú tungumálið miklu hraðar en hérna heima.

Hvort sem þú ert algjör byrjandi eða vilt bæta núverandi orðaforða þá erum við með það námskeið sem hentar þér. Í upphafi námskeiðsins tekur þú stöðupróf og nota kennarar skólans Efekta iLab til að fylgjast með námsárangri þínum. Þannig er hægt að sérsníða námið alveg að þínum þörfum og veita þér tækifæri til að ná betri árangri á skemmri tíma.

Langar þig í enskunám í Bournemouth?
Hafðu samband við okkur og fáðu fría ráðgjöf um enskunám fyrir 14-16 ára.
Hafa samband

Enskunám í Bournemouth

Skólinn er frábærlega staðsettur í Bournemouth, í um 10 mínútna göngufjarlægð frá ströndinni. Að auki er stutt í miðbæinn þar sem þú finnur fjölda verslana, kaffihúsa, veitingastaða, kvikmynda- og leikhúsa. 

Gist er á heimavist skólans sem er í um 10 mínútna göngufjarlægð frá skólanum. Á virkum dögum er ákveðin dagskrá frá kl. 8.45 - 15.20. Þar á eftir að frjáls tími til klukkan 18.00 en þá hefst kvöldmatur. Hægt er að fá leyfi til að fara út að kvöldmat loknum en þá þarft að láta staðarhaldara vita ásamt því að veita upplýsingar um hvert sé verið að fara og með hverjum. Allir verða að vera komnir inn á heimavist fyrir klukkan 22.00 á kvöldin.

Kennslan fer fram frá mánudegi til föstudags - 20 kennslustundir á viku þar sem hver kennslustund er 40 mín. Þess á milli er skemmtileg dagskrá í boði þar sem þú færð mörg frábær tækifæri til að æfa þig í enskunni. 

Dagskráin

Vika 1

Á laugardeginum er farið í dagsferð ásamt leiðsögumanni til London þar sem nemendur heimsækja öll helstu kennileiti borgarinnar. Sunnudagurinn er frjáls dagur og tilvalið að nýta hann til að kíkja á ströndina eða fara í verslunarferð í Bournemouth.

Vika 2

Gagnlegar upplýsingar

  • Ferðin er fyrir einstaklinga á aldrinum 14 til 16 ára.
  • Ferðin er í tvær vikur.
  • Það er skylda fyrir alla sem skrá sig að vera með ferðatryggingu - það er á ábyrgð þátttakanda.
  • Verðið er frá 330.000 kr. á mann en getur hækkað eftir því sem nær líður eða gengi breytist. Það borgar sig því að bóka og greiða sem fyrst til þess að fá þetta verð.
Langar þig að læra ensku?
Langar þig í enskunám í Cambridge?
Hafðu samband við okkur og fáðu fría ráðgjöf um enskunám fyrir 14-16 ára.
Hafa samband

Enskunám í Cambridge

Skólinn er frábærlega staðsettur í Cambridge, í um fimm mínútna göngufjarlægð frá miðbænum þar sem þú finnur fjölda verslana, veitingastaða og kaffihús. Hægt er að velja á milli þess að gista á heimavist skólans eða í heimagistingu.

Á hverjum degi er ákveðin dagskrá frá morgni til kvölds. Enskukennslan fer fram frá mánudegi til föstudags - 20 kennslustundir á viku þar sem hver kennslustund er 40 mín. Þess á milli er skemmtilegar og fjölbreyttar afþreyingar í boði þar sem þú færð mörg tækifæri til að æfa þig í enskunni. Að auki býður skólinn upp á skemmtilega dagskrá á kvöldin og um helgar eru mismunandi dagsferðir í boði.

Það er skyldumæting í allar afþreyingar. Ef eitthvað kemur upp á sem hindrar mætingu þarf að láta staðarhaldara vita.

Dagskráin

Svona lítur hefðbundin vika út:

Gagnlegar upplýsingar

  • Ferðin er fyrir einstaklinga á aldrinum 14 til 16 ára.
  • Ferðin er í tvær vikur.
  • Það er skylda fyrir alla sem skrá sig að vera með ferðatryggingu - það er á ábyrgð þátttakanda.
  • Verðið er frá 373.000 kr. á mann en getur hækkað eftir því sem nær líður eða gengi breytist. Það borgar sig því að bóka og greiða sem fyrst til þess að fá þetta verð.
Langar þig að læra ensku?

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.