Enskunám fyrir 14-16 ára á Englandi
Ertu á aldrinum 14-16 ára og langar að bæta enskuna, kynnast nýju fólki og upplifa lífið í Bretlandi? Hvernig hljómar að eyða tveimur vikum í Bournemouth eða Cambridge þar sem þú lærir ensku á daginn og nýtur skemmtilegrar dagskrár með öðrum ungmennum frá öllum heimshornum?
Fyrir foreldra og aðstandendur sem eru að leita að frábærri fermingargjöf er enskunám erlendis einstök leið til að gefa bæði upplifun og tækifæri til framtíðar. Ferðin sameinar nám, ferðalög, nýja reynslu og minningar sem endast mun lengur en margar hefðbundnar gjafir.
Besta leiðin til að læra ensku er að nota tungumálið á hverjum degi. Með því að dvelja í enskumælandi umhverfi færð þú tækifæri til að æfa þig í raunverulegum aðstæðum, efla sjálfstraustið og ná meiri framförum á stuttum tíma.
Hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref í ensku eða vilt styrkja núverandi kunnáttu, þá hjálpum við þér að finna námskeið sem hentar þínum markmiðum. Fyrir marga verður enskunám á Englandi ekki aðeins spennandi sumarupplifun heldur líka fermingargjöf sem skilar sér til framtíðar.
Hafa samband
Enskunám í Bournemouth
Skólinn er frábærlega staðsettur í Bournemouth, í um 10 mínútna göngufjarlægð frá ströndinni. Að auki er stutt í miðbæinn þar sem þú finnur fjölda verslana, kaffihúsa, veitingastaða, kvikmynda- og leikhúsa.
Gist er á heimavist skólans sem er í um 10 mínútna göngufjarlægð frá skólanum. Á virkum dögum er ákveðin dagskrá frá kl. 8.45 - 15.20. Þar á eftir að frjáls tími til klukkan 18.00 en þá hefst kvöldmatur. Hægt er að fá leyfi til að fara út að kvöldmat loknum en þá þarft að láta staðarhaldara vita ásamt því að veita upplýsingar um hvert sé verið að fara og með hverjum. Allir verða að vera komnir inn á heimavist fyrir klukkan 22.00 á kvöldin.
Kennslan fer fram frá mánudegi til föstudags - 20 kennslustundir á viku þar sem hver kennslustund er 40 mín. Þess á milli er skemmtileg dagskrá í boði þar sem þú færð mörg frábær tækifæri til að æfa þig í enskunni.
Dagskráin
Vika 1

Á laugardeginum er farið í dagsferð ásamt leiðsögumanni til London þar sem nemendur heimsækja öll helstu kennileiti borgarinnar. Sunnudagurinn er frjáls dagur og tilvalið að nýta hann til að kíkja á ströndina eða fara í verslunarferð í Bournemouth.
Vika 2

Gagnlegar upplýsingar
- Ferðin er fyrir einstaklinga á aldrinum 14 til 16 ára.
- Ferðin er í tvær vikur.
- Það er skylda fyrir alla sem skrá sig að vera með ferðatryggingu - það er á ábyrgð þátttakanda.
- Verðið er frá 330.000 kr. á mann en getur hækkað eftir því sem nær líður eða gengi breytist. Það borgar sig því að bóka og greiða sem fyrst til þess að fá þetta verð.
Enskunám í Cambridge
Skólinn er frábærlega staðsettur í Cambridge, í um fimm mínútna göngufjarlægð frá miðbænum þar sem þú finnur fjölda verslana, veitingastaða og kaffihús. Hægt er að velja á milli þess að gista á heimavist skólans eða í heimagistingu.
Á hverjum degi er ákveðin dagskrá frá morgni til kvölds. Enskukennslan fer fram frá mánudegi til föstudags - 20 kennslustundir á viku þar sem hver kennslustund er 40 mín. Þess á milli er skemmtilegar og fjölbreyttar afþreyingar í boði þar sem þú færð mörg tækifæri til að æfa þig í enskunni. Að auki býður skólinn upp á skemmtilega dagskrá á kvöldin og um helgar eru mismunandi dagsferðir í boði.
Það er skyldumæting í allar afþreyingar. Ef eitthvað kemur upp á sem hindrar mætingu þarf að láta staðarhaldara vita.
Dagskráin
Svona lítur hefðbundin vika út:

Gagnlegar upplýsingar
- Ferðin er fyrir einstaklinga á aldrinum 14 til 16 ára.
- Ferðin er í tvær vikur.
- Það er skylda fyrir alla sem skrá sig að vera með ferðatryggingu - það er á ábyrgð þátttakanda.
- Verðið er frá 373.000 kr. á mann en getur hækkað eftir því sem nær líður eða gengi breytist. Það borgar sig því að bóka og greiða sem fyrst til þess að fá þetta verð.
Gjöf sem endist lengur
Ertu að leita að fermingargjöf sem sameinar upplifun, nám og ævintýri? Fyrir ungmenni á aldrinum 14-16 ára getur tveggja vikna enskunám á Englandi verið frábær fermingargjöf sem skilar sér um ókomin ár.
Hvort sem markmiðið er að styrkja enskukunnáttuna, byggja upp sjálfstraust eða upplifa nýja menningu, þá gefur tungumálaferð einstakt tækifæri til að læra og þroskast í alþjóðlegu umhverfi. Nemendur læra ensku á daginn, taka þátt í fjölbreyttum afþreyingarviðburðum og kynnast jafnöldrum frá ólíkum löndum.
Enskunám erlendis er meira en bara ferðalag. Það er upplifun sem eykur sjálfstæði, víkkar sjóndeildarhringinn og skapar minningar sem endast alla ævi. Fyrir marga verður þetta ein eftirminnilegasta fermingargjöfin sem þeir fá á unglingsárunum og reynsla sem nýtist bæði í námi, framtíðarstarfi og daglegu lífi.