Lítil hópævintýri
Ferðast saman, upplifa meira
Lítil hópævintýri fyrir ævintýragjarna ferðalanga sem vilja kanna heiminn. Hittu fólk alls staðar að úr heiminum á meðan þú uppgötvar nýja áfangastaði.
Hópævintýri um allan heim
Skoðaðu úrvalið okkar af litlum hópævintýrum um allan heim
Lítill hópur en stór ævintýri
Gleymdu risastórum hópum og troðfullum rútum. Hópferðirnar okkar eru fyrir minni hópa af alþjóðlegum ferðalöngum, sem gefur þér meira frelsi og persónulegri upplifun.
Þú heimsækir helstu staðina, en færð líka að uppgötva leyndar perlur með staðbundnum leiðsögumönnum sem þekkja áfangastaðinn best. Kynnstu menningunni af eigin raun, hittu fólk á leiðinni og upplifðu staðinn á dýpri hátt.
Hópferð þarf heldur ekki að þýða fulla dagskrá frá morgni til kvölds. Ferðirnar eru í boði allt frá nokkrum dögum upp í marga mánuði, þannig að þú getur fundið ferð sem hentar bæði þínum ferðastíl og tímaáætlun.
Hópaferðir fyrir alla aldurshópa
Taktu þátt í safari hópaferð
Taktu þátt í hópaferð til Ástralíu
Skoðaðu helstu staði og leyndar perlur
Kynntu nýja vini frá fyrsta degi
Ferðastu einn - en aldrei aleinn
Tillögur að hópævintýrum
Vantar þig innblástur? Skoðaðu okkar uppáhalds hópævintýri og finndu ferðina sem passar við áfangastaðinn, ferðastílinn og plönin þín.
Hópferðir fyrir alla aldurshópa
Hvort sem þú vilt hitta nýtt fólk á þínum aldri eða einfaldlega upplifa heiminn með góðum hópi ferðafélaga, þá er til hópferð sem hentar þér.
Ferðirnar okkar fyrir ungt fólk eru fullkomnar fyrir þau sem vilja kynnast ferðalöngum á sömu bylgjulengd, deila nýjum upplifunum og skapa minningar saman. Ef þú leitar að fjölbreyttari hópi bjóða lítil hópævintýri upp á ferðafélaga á öllum aldri og úr ólíkum áttum.
Veldu á milli mismunandi ferðastíla, hópastærða og þægindastiga, allt frá hagkvæmum bakpokaævintýrum til þægilegra lítilla hópferða. Sama hvaða ferð þú velur, færðu staðbundna leiðsögn, alþjóðlegan hóp og frelsi til að upplifa áfangastaðinn á þínum eigin forsendum.
Upplifðu Perú með hóp
Hópaferð til Japans
Hópaferð til Brasilíu
Hópaferð til Tælands
Hittu ferðalanga alls staðar að úr heiminum
Ein besta ástæðan fyrir því að fara í hópferð er fólkið sem þú hittir á leiðinni. Ferðastu með alþjóðlegum hópi, deildu ævintýrum og myndaðu tengsl sem geta enst langt eftir að ferðinni lýkur.
Hvort sem þú ert ein/n á ferð eða með vini, verðurðu hluti af hópi frá fyrsta degi. Þið upplifið nýja staði saman, deilið sögum og skapið minningar sem gera ferðina enn eftirminnilegri.
Eignastu nýja vini frá fyrsta degi
Bakpoka hópferðir
Ferðast með alþjóðlegum hópum
Fljótleg og einföld bókun hjá KILROY
1
Hafðu samband
Segðu okkur frá ferðaplönunum þínum, hugmyndum og markmiðum.
2
Deildu plönunum þínum
Við kynnumst þér og því sem þú ert að leita að.
3
Fínstillum smáatriðin
Við mótum þína fullkomnu ferð saman.
4
Bókaðu áhyggjulaus
Við sjáum um smáatriðin svo þú getir einbeitt þér að ævintýrinu.
5
Vertu klár!
Pakkaðu töskunum og byrjaðu að telja niður.
Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferð?
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.
Algengar spurningar
Svör við þeim spurningum sem við fáum oftast um Lítil hópævintýri - öll á einum stað.
Lítil hópævintýri er skipulagt ævintýri þar sem takmarkaður fjöldi ferðalanga ferðast saman, oft með staðbundnum leiðsögumanni. Gisting, samgöngur og helstu athafnir eru skipulagðar fyrir þig, en þú hefur samt frjálsan tíma til að kanna á eigin vegum.
Algjörlega. Þú þarft ekki að þekkja neinn áður en þú ferð. Margir ferðalangar bóka litla hópferð einir og það er frábær leið til að kynnast fólki og eiga félagsskap á ferðinni. Þú færð hóp til að kanna með, en heldur samt nægan tíma til að gera það sem þú vilt sjálf/ur.
Lítil hópævintýri eru fyrir öll sem eru 18 ára og eldri og vilja kanna áfangastað með öðrum. Við bjóðum bæði ferðir fyrir ungt fólk (18-39) og ferðir fyrir breiðari aldurshópa, svo þú getur valið ævintýri sem hentar þér.
Hópastærðir eru mismunandi eftir ferð og skipuleggjanda, en þær eru yfirleitt minni en í hefðbundnum rútuferðum. Skoðaðu síðu hverrar ferðar til að sjá væntanlega hópastærð. Ef þú ert ekki viss, hafðu samband og við skoðum þetta saman!
Já, lítil hópævintýri geta verið frábær viðbót við bakpokaferðalag. Þú getur farið með hóp í nokkra daga eða vikur, og ferðast svo sjálfstætt áfram.
Það fer eftir ferðinni, en gisting, samgöngur milli áfangastaða, leiðsögumaður á staðnum og valdar afþreyingar er oft innifalið. Sumar ferðir innihalda einnig máltíðir. Skoðaðu síðu hverrar ferðar til að sjá nákvæmlega hvað er innifalið.
Já, auðvitað! Ef þú ert óviss um hvaða ferð hentar þér, geta ferðasérfræðingar okkar hjálpað þér að bera saman valmöguleika út frá áfangastað, fjárhagsáætlun, ferðastíl, aldri og hversu lengi þú vilt ferðast.
Ekki endilega. Gisting, samgöngur, afþreying og leiðsögumaður eru innifalin í ferðinni, sem auðveldar þér að halda utan um kostnaðinn. Verðið fer eftir áfangastað, lengd ferðar, gistingu og hvað er innifalið.
Sýnir 4 / 8 niðurstöður
Lítil hópævintýri eru fyrir þig ef þú...
...vilt hitta ferðalanga alls staðar að úr heiminum
Þú ferðast með alþjóðlegum hópi, deilir reynslu með fólki úr ólíkum menningarheimum og eignast vini hvaðanæva úr heiminum.
...hefur ekki vikur eða mánuði til ráðstöfunar
Þý nýtir tímann betur með hópferð. Með samgöngur, gistingu og afþreyingu skipulagða getur þú séð meira á styttri tíma.
...finnst gott að hafa plan, en vilt samt frelsi
Þý fylgir skipulagðri dagskrá þar sem helstu atriði eru í höfn, en hefur samt nægan tíma til að kanna á eigin vegum.
Nýjast á ferðablogginu hjá KILROY
Við elskum að ferðast og vonum að þú gerir það líka! Fáðu innblástur fyrir næsta ævintýri með ferðasögum, ráðum og spennandi áfangastöðum.



























