KILROY KASTIÐ: Á ÁÆTLUN
Podcast þar sem við förum yfir allt sem tengist ferðalögum, menningu, ævintýrum og óvæntum uppákomum erlendis.

Ferðainspó hvar og hvenær sem er!
Sögur, ráð og innblástur fyrir forvitna ferðalanga.
Fyrir öll sem elska að ferðast
Velkomin í KILROY kastið: Á áætlun, hlaðvarpið þar sem við förum yfir allt sem tengist ferðalögum, menningu, ævintýrum og óvæntum uppákomum erlendis. Hvort sem þú ert að skipuleggja heimsreisu, spá í sjálfboðastarfi eða þarft bara smá innblástur fyrir næstu ferð, þá ertu á réttum stað.
Kynnar þáttarins eru Rebekka og Bergrún Sóla, sem báðar hafa ferðast víða, lent í ótrúlegustu aðstæðum og elska að miðla af reynslu sinni og nörda aðeins í öllu sem tengist ferðalífinu.
Hlustaðu á KILROY kastið: Á áætlun
Langar þig að koma til okkar í stúdíóið og tala um ferðalög?
Sendu okkur skilaboð um hvað þig langar að tala um og við tökum það til skoðunar!

Bergrún Sóla



