Tripmates - Algengar spurningar

Lestu meira um Tripmates hópævintýri KILROY

KILROY Tripmates ferðalangar

Ekki viss við hverju þú átt að búast í Tripmates hópferð?

Við höfum tekið saman mikilvægustu upplýsingarnar um greiðslur, gistingu, hópinn og hvað er innifalið, svo þú vitir nákvæmlega hvað þú getur búist við áður en þú bókar. Ef þú ert með spurningar, þá eru ferðaráðgjafar okkar alltaf til staðar til að aðstoða.

Fljótlegt og auðvelt bókunarferli hjá KILROY

1

Tryggðu þér pláss með staðfestingargjaldi

Tryggðu þér pláss á hvaða ferð sem er með því að greiða 15.000 ISK staðfestingargjald.

2

Greiddu eftirstöðvarnar

60 dögum fyrir brottför greiðir þú eftirstöðvar ferðarinnar.

3

Pakkaðu í töskuna!

Farðu yfir ferðaskjölin þín, pakkaðu búnaðinn og undirbúðu þig fyrir ævintýrið sem þú munt aldrei gleyma.

Áður en þú bókar

Nokkur atriði sem gott er að vita um Tripmates hópferðir
  • Flestir ferðalangar koma einir - en þú mátt alveg taka vin með!

  • Allar upplýsingar um gistingu og hvað er innifalið er skýrt tilgreint á síðu hverrar ferðar.

  • Hóparnir eru misstórir eftir brottför, en hámark eru 16 ferðalangar.

  • Áður en lagt er af stað færð þú boð í einkahóp á Facebook þar sem þú getur tengst öðrum ferðalöngum.

  • Þú færð PDF skjal með ítarlegum ferðaupplýsingum fyrir brottför.

  • Flug til upphafsstaðar ferðarinnar og frá endastað ferðarinnar aftur heim eru ekki innifalin. Öll flug innan ferðarinnar eru innifalin.

Algengar spurningar

Allar upplýsingar sem þú þarft að vita áður en þú bókar Tripmates hópferð á netinu.

Þú ferðast með öðrum Tripmates þátttakendum innan auglýsts aldursbils fyrir þína brottför. Hóparnir samanstanda af ferðalöngum frá Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Íslandi, Hollandi, Belgíu og Bretlandi.

Algjörlega! Flestir Tripmates ferðalangar koma einir, sem gerir það auðvelt að kynnast nýju fólki strax frá fyrsta degi. Tripmates er frábært fyrir sóló ferðalanga sem vilja finna ferðafélaga, með fullt af sameiginlegum upplifunum og athöfnum frá byrjun sem styrkja tengsl og skapa minningar.

Fjöldi ferðalanga fer eftir brottför, en yfirleitt eru 4 til 16 ferðalangar í Tripmates ferð, sem gerir það auðvelt að kynnast hópnum og njóta persónulegrar ferðaupplifunar.

Tripmates ferðir þurfa lágmark 4 ferðalanga til að fara af stað. Ef brottför nær ekki lágmarksfjölda, þá höfum við samband við þig eins fljótt og hægt er til að ræða valkostina.

Bókaðu einfaldlega á netinu og greiddu 15.000 ISK staðfestingargjald. Þegar bókunin þín er staðfest, er plássið þitt tryggt.

Restin af greiðslunni þarf að berast 60 dögum fyrir upphaf ferðarinnar.

Þegar þú bókar plássið þitt greiðir þú bara 15.000 ISK staðfestingargjald. Þegar ferðin er staðfest færð þú greiðslutengil fyrir heildargreiðsluna, sem þarf að greiðast 60 dögum fyrir upphaf ferðarinnar.

Flug til upphafsstaðar ferðarinnar og frá endastað ferðarinnar eru ekki innifalin í verði ferðarinnar. Ef þú vilt aðstoð við að bóka þessi flug, þá eru ferðaráðgjafar okkar tilbúnir til að hjálpa.

Öll flug innan ferðarinnar eru innifalin.

Gisting er mismunandi eftir ferðum, en yfirleitt deilir þú tveggja manna herbergi eða svefnsal með öðrum ferðalöngum. Svefnsalir geta verið blandaðir kynjum, allt eftir gististaðnum og samsetningu hópsins.

Algjörlega. Margir ferðalangar halda áfram ævintýrinu fyrir eða eftir Tripmates ferðina. Ferðaráðgjafar okkar geta hjálpað til við að bóka flug, gistingu og fleiri upplifanir.

Áður en lagt er af stað færð þú boð í einkahóp þar sem þú getur tengst öðrum ferðalöngum.

Já, vinir sem ferðast saman eru settir saman í herbergi þegar það er hægt. Endilega látið vita fyrirfram og við gerum okkar besta til að ráðstafa því.

Já! Allar ferðir okkar hafa að minnsta kosti einn lókal leiðsögumann mestan hluta ferðarinnar. Ef ferðin fer um fleiri lönd, færðu yfirleitt nýjan lókal leiðsögumann í hverju landi.

Já! Þú ferðast með sama hópnum frá upphafi til enda. Við sameinum ekki hópa og engir nýir ferðalangar bætast við eða fara úr hópnum á leiðinni.

Sýnir 4 / 13 niðurstöður

Fáðu ferðainnblástur og einstök tilboð beint í pósthólfið þitt

Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu upplýsingar um nýjar ferðir, ferðainnblástur, viðburði og tilboð. Vertu klár í næsta ævintýri!

Hringdu í okkur

+354 517 7010

Opnunartími síma: Mánudaga - föstudaga frá 10:00 til 17:00 og laugardaga frá 13:00 - 17:00

Sendu okkur tölvupóst

travels@kilroy.is

Fyrirspurnum vegna flugmiða sem keyptir eru á netinu er svarað í tölvupósti á help@kilroy.net

Um okkur

Í meira en 30 ár hefur KILROY hjálpað forvitnum ferðalöngum að uppgötva heiminn. Við sérhæfum okkur í að skipuleggja ævintýraleg ferðalög fyrir fólk á öllum aldri, allt frá bakpokaferðalögum og heimsreisum til fjölskylduferða, fyrirtækjaferða og annarra hópferða. Hvert sem ferðalagið liggur eru ferðasérfræðingar okkar hér til að hjálpa þér að láta ferðadraumana rætast.

KILROY Iceland

Norðurturn, 11. hæð 

Hagasmári 3, 201 Kópavogur

 Opnunartími skrifstofu: Mánudaga - föstudaga frá 10:00 til 17:00

Kt. 410911-0350

© 2026 Copyright KILROY Iceland ehf