Bókaðu áhyggjulaus með KILROY

Af hverju að bóka með ferðaskrifstofu?
Þegar þú bókar með KILROY færðu ráðgjöf frá fólki sem hefur sjálft ferðast um heiminn og þekkir þetta af eigin reynslu. Við vitum að hlutirnir fara ekki alltaf samkvæmt áætlun og einmitt þess vegna er gott að hafa einhvern innan handar á meðan á ferðinni stendur.
Hjá okkur fara saman raunveruleg ferðareynsla og traust vernd. Ef þú bókar ferð hjá okkur nýtur ferðin þín verndar samkvæmt lögum nr. 95/2018 um pakkaferðir. Það þýðir að ef eitthvað fer ekki eins og áætlað var stendur þú ekki ein/n, við erum með þér alla leið.
Af hverju að velja KILROY fyrir næstu ferðina þína
30+ ára reynsla
Yfir 30 ára reynsla, sérþekking og traustir samstarfsaðilar okkar um allan heim gera þér kleift að ferðast með öryggi og sjálfstrausti.
Persónuleg ferðaráðgjöf
Ferðaráðgjafi sem kynnist þínum óskum, draumum og markmiðum. Frá fyrstu hugmynd að heimkomu erum við með þér í hverju skrefi á leiðinni.
24/7 neyðarsími
Ef eitthvað óvænt kemur upp á er neyðarsíminn okkar opinn allan sólarhringinn. Ferðasérfræðingar KILROY eru til staðar fyrir þig, hvar og hvenær sem er.
KILROY leiðin
Bestu ferðirnar enda ekki þegar þú kemur heim. Þær lifa áfram í upplifunum, sögum og minningum sem fylgja þér lengi eftir að ferðinni lýkur.
Hvað þýðir það að kaupa ferðapakka?
Ferðapakki þýðir að þú kaupir ferð sem samanstendur af nokkrum þáttum í einu, frá sama aðila. Þá sér þinn ferðaráðgjafi um að allt passi saman í tíma og að ferðin gangi smurt fyrir sig.
Til dæmis, ef þú bókar bæði flug og gistingu hjá okkur á einu verði, þá telst það ferðapakki. Í slíkum tilfellum átt þú rétt á aðstoð ef eitthvað fer úrskeiðis á ferðinni eða ef þjónustan er ekki eins og lofað var.
Bókaðu ferðina áhyggjulaus með KILROY
Öryggi í breyttu heimsástandi
Þar sem veðurfar breytist ört og milliríkjadeilur færast í aukana þá geta slíkir þættir haft áhrif á flugsamgöngur milli landa. Ef þú bókar ferð hjá okkur, hjálpum við þér með endurbókun, að finna aðra ferð eða fá fulla endurgreiðslu ef ekki er hægt að framkvæma ferðina vegna ófyrirséðra og óvenjulegra aðstæðna. Við fylgjum alltaf ferðaráðleggingum utanríkisráðuneytisins og höldum þér upplýstri/upplýstum.

Njóttu ferðalagsins áhyggjulaus
Ferðatrygging
Ef þú vilt aukið öryggi fyrir ferðina þína geturðu bókað ferðatryggingu í gegnum okkur. Hún hentar bæði stuttum og löngum ferðum, þar á meðal ævintýraferðum. Við hjálpum þér að velja þann kost sem hentar þér best.

Bókaðu ferðatryggingu fyrir aukið öryggi
24/7 neyðarsími
Ef þú bókar ferðapakka hjá okkur hefurðu aðgang að neyðarsíma allan sólarhringinn á meðan á ferðinni stendur. Ef eitthvað brýnt kemur upp eins og aflýsing á flugi, tap á ferðaskjölum eða önnur óvænt atvik, getur þú haft samband við neyðarsíma KILROY. Sérfræðingar á vakt hjálpa þér að leysa málin.
Við erum með KILROY starfsmenn frá KILROY löndunum sem hafa flust til annars vegar Suður-Ameríku og hins vegar Eyjaálfu 6 mánuði í senn. Með staðsetningunni þá geta allir á venjulegum vinnutíma náð yfir 24 klukkustundir í sólarhring. Eftir íslenskan vinnutíma taka við KILROY starfsmenn staðsettir í Suður Ameríku, þegar þeirra vinnudegi líkur þá standa KILROY starfsmenn í Ástralíu vaktina á meðan við sofum. Þannig nær KILROY með samstilltu átaki að veita sem besta þjónustu, með raunverulegri reynslu og innanhússþekkingu sama hvaða tíma sólarhrings.

Þú getur haft samband við neyðarsímann 24/7
Raunverulegt fólk sem er til staðar fyrir þig
Ferðaráðgjafarnir okkar hafa sjálfir ferðast víða um heiminn og hjálpa þér að skipuleggja ferð sem virkar í raun, ekki bara á pappír. Þau aðstoða þig við að velja áfangastaði, skipuleggja leiðir og sjá um praktísk atriði áður en þú leggur af stað. Og ef eitthvað óvænt gerist, ert þú ekki ein/n.

Ferðaráðgjafar KILROY eru til staðar fyrir þig
Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferð?
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.
Algengar spurningar
Ertu með spurningar? Við erum með svörin. Skoðaðu algengar spurningar og svör sem ferðalangar spyrja okkur um þegar þeir bóka með KILROY.
Já. Það er öruggt að bóka ferðir svo lengi sem þú fylgir ferðaráðum frá Utanríkisráðuneytinu. Ef þú bókar flugmiða, gistingu og afþreyingu hjá KILROY, er ferðin þín vernduð samkvæmt lögum nr. 95/2018 um pakkaferðir. Það þýðir að þú ert vernduð/verndaður ef breytingar verða og við hjálpum þér að finna lausn ef það þarf.
Við fylgjum alltaf nýjustu ferðaráðum og vinnum aðeins með traustum samstarfsaðilum svo þú getir skipulagt ferðina áhyggjulaus.
Já. Greiðslan þín er vernduð með lögbundinni gjaldþrotavernd. Það þýðir að peningar þínir hverfa ekki þótt eitthvað komi upp hjá samstarfsaðila. Í stuttu máli: Þú borgar fyrir ferðina þína en ert samt vernduð/verndaður ef eitthvað óvænt kemur upp.
Nei, þegar þú hefur bókað og fengið staðfestingu er verðið fast.
Já, við mælum eindregið með ferðatryggingu. Ferðatrygging nær yfir persónulegar aðstæður eins og:
lækniskostnað erlendis
tap eða tjón á farangri
afbókun vegna persónulegra ástæðna
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að finna ferðatryggingu sem hentar þér.
Það eru nokkrar ástæður fyrir því að við mælum með að bóka fleiri hluta ferðarinnar saman.
Þegar þú bókar fleiri hluta ferðarinnar hjá KILROY þá:
er ferðin þín vernduð samkvæmt lögum nr. 95/2018 um pakkaferðir
hefur þú þinn eigin ferðaráðgjafa sem aðstoðar þig ef breytingar verða
hjálpum við þér með breytingar eða lausnir ef eitthvað fellur niður
þarftu ekki að samræma við mismunandi flugfélög og þjónustuaðila sjálf/ur
Í stuttu máli: Minna vesen og meira öryggi ef eitthvað breytist.
Sýnir 4 / 5 niðurstöður




