{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.

5 hlutir sem þú getur gert í staðin fyrir þá sem þú getur ekki gert

Road Trip Slovenia Couple And Campervan In Triglav National Park Bohinj Cover

Ertu að velta fyrir þér hvað þú getur gert í dag?

Okkur grunaði það. Þess vegna höfum við sett saman lista af 5 skemmtilegum hlutum sem þú getur gert í staðin fyrir hlutina sem þú getur ekki gert akkúrat núna. Kíktu á þá hér fyrir neðan!

Fá fría ferðaráðgjöf

Þetta er allt að koma!

Landamæri eru hægt og rólega að opnast. Fleiri og fleiri lönd eru aftur að taka á móti ferðamönnum. Þú sérð að við erum ekki alveg komin á endastöð - og það er rétt hjá þér. Margir dæmigerðir áfangastaðir fyrir okkur í KILROY eiga enn eftir að opna, en það þýðir ekki að þú þurfir að bíða í eitt ár í viðbót til að ferðast. Hér er smá innblástur fyrir alvöru KILROY upplifun sem þú getur upplifað núna.

1. Trans-mongólía vs. Interrail

Ætlaðir þú að að fara í langt lestarævintýri? Farða yfir nokkur tímabelti, landamæri og kynnast annarri menningu í Asíu? Já, það gæti þurft að bíða aðeins. En á meðan geturðu gert nákvæmlega það sama í Evrópu. Það eina sem þarf er Interrail miði. Þetta er það auðvelt!

Hér sérðu stutt yfirlit:

 

Trans-Mongólía 

Interrail 

Ferðast með lest

X 

X 

Mörg lönd

X 

X 

Fá sér skot með heimamönnum í lestinni

X 

X 

Gista í hostelum

X 

X 

Hitta nýtt fólk 

X 

X 

Fáðu innblástur fyrir ferðina þína hér.

2. Surf á Balí vs. surf í Portúgal

Langar þig að læra að surfa á Balí? Varstu að þrá endalausa stranddaga og kokteila við sólarlagið eftir skemmtilegan suftíma? Sagði einhver Portúgal? Vesturströnd þessa Suður -Evrópu lands er fræg fyrir skemmtilega surfmenningu. Þú rekst kannski ekki á apa á leiðinni á ströndina en surfið er engu síðra hér en á Balí. Skelltu þér líka í smá jóga á meðan þú ert hérna. Eftir að hafa lært á öldurnar í Portúgal verður þú reddý að skella þér til Balí þegar heimurinn opnar betur.

 

Surf á Balí 

Surf í Portúgal 

Surfkennsla fyrir byrjendur og lengra komna

X 

X 

Surf sameinað við jóga

X 

X 

Falleg sólsetur

X 

X 

Surfmenning 

X 

X 

Surfbúðir með öðrum ferðalöngum 

X 

X 

Kynntu þér meira um surfa í Portúgal hér.

3. Nýja-Sjáland vs. Slóvenía

Ef að Nýja-Sjáland er á bucketlistanum þínum - ekki taka það af! Já landið mun vera lokað í langan tíma og það er ekkert eins og Nýja-Sjáland... eða hvað? Sko...við verðum að segja að Slóvenía er engu síðri. Ár fyrir rafting eða kajakferðir. Töfrandi fjöll með furutrjám. Vín í heimsklassa. Auk þess hefur Slóvenía eitthvað sem Nýja-Sjáland hefur ekki: svartabirni! Báðir áfangastaðirnir eru fullkomnir fyrir road trip ferðir og leyfa þér að tjalda í ótrúlega fallegu umhverfi. Ef þig langar til Nýja-Sjálands skaltu skoða Slóveníu í millitíðinni.

 

Nýja-Sjáland

Slóvenía

Falleg útilegusvæði

X 

X 

Vinalegir heimamenn

X 

X 

Dýrindis vín

X 

X 

Eldfjöll

X 

 

Svartabirnir

 

X 

Útivist

X 

X 

Möguleikinn á því að fara yfir landamæri til annarra landa

 

X 

Húsbílalífið

X 

X 

Vantar þig innblástur fyrir road trip í Slóveníu?

4. Hafvernd: Filippseyjar vs. Króatía

2020 var eins og einhver hafi ýtt á pásu - en því miður ekki varðandi loftlagsbreytingar. Það er enn margt sem þarf að gera til að hjálpa vistkerfum hafsins. Það eru að finna virkilega flott verkefni sem vinna að verndun hafsins á fjalægjum slóðum og þau þurfa nauðsynlega á hjálp þinni að halda. En því miður er ekki hægt að fara þangað í augnablikinu. Það er líka hægt að hjálpa til við hafvernd nær okkur. Þau verkefni eru að fást við sömu málefnin, baráttan við plastmengun og ofveiði. Kynntu þér betur hafverndunarverkefnin í Split í Króatíu.

 

Filippseyjar

Króatía

Köfun og sjálfboðastarf

X 

X 

Að vinna með sjávarlíffræðingum

X 

X 

Læra um lífið neðansjávar 

X 

X 

Hreinsa strendur

X 

X 

Læra um málefnið og kenna heimafólkinu um það

X 

X 

Kynnast nýju fólki 

X 

X 

Lestu meira um sjálfboðastarfið hér.

5. Kilimanjaro vs. Mont Blanc

Vel þekkt orðtak í Tansaníu um Kilimanjaro er: If you cannot climb it, drink it. Það vísar til bjórsins sem ber sama nafn og þetta fræga fjall. Svo, ef þú ert búinn með bjórinn og finnur enn þá löngun til að klifra, hvers vegna ekki að fara á stærsta topp Evrópu: Mont Blanc. Umhverfið er alveg töfrandi þó það sé kannski ekki eins og í Afríku
- en hversu margir sem þú þekkir hafa klifið annað hvort fjallið hvort sem er? Nákvæmlega!

 

Kilimanjaro 

Mont Blanc 

Hæð

5.895 m 

4.809 m 

Umkringt fílum

X 

 

Umkringt jöklum

 

X 

Að ná andanum í mikilli hæð

X 

X 

Ótrúlegt útsýni

X 

X 

Virðing vina þinna 

X 

X 

Árángur

X 

X 

Langar þig að vita meira um gönguna á Mont Blanc? Lestu meira um hana hér.

Vöktum við áhuga hjá þér?

Þetta eru aðeins nokkrar tillögur til að því sem þú getur gert núna. Ef þú þarft aðstoð við að skipuleggja ferð skaltu skrifa okkur og við veitum þér fría ferðaráðgjöf.

Fá fría ferðaráðgjöf

alt

Hannaðu þína eigin ferð

Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:

  1. Þú setur upp draumaferðina þína.
  2. Við finnum bestu og hagstæðustu valmöguleikana.
  3. Þú færð persónulegt mat ferðasérfræðings.

Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!

Byrjaðu að hanna þína ferð

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.