{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.

Cooks-eyjar

cook-islands-paradise-beach-cover
cook-islands-bungalow-lagoon-ocean-sidebar

Cooks-eyjar: Einangruð paradís

Cooks-eyjar eru undir stjórn Nýja-Sjálands og mynda eyjaklasa í miðju Kyrrahafi. Þegar þú slappar af á þessum draumaeyjum líður þér eins og þú hafir loksins getað einangrað þig frá restinni af heiminum. Farðu að snorkla eða kafa í tæru vatninu eða njóttu framandi umhverfisins á hestbaki. Fáðu þér göngu í náttúrufegurðinni og gakktu upp á Raemaru fjall. Fáðu þér „ika mata“ ef þig langar í veislumat. Þetta er bragðgóður hrár túnfiskur með kókosmjólk og niðurskornu grænmeti.

Fá fría ráðgjöf

Þú munt taka eftir því að Cooks-eyjar eru um margt líkar annarri hitabeltisparadís, Hawaii. Eyjaklasarnir tveir eru staðsettir á sömu lengdargráðu og á báðum stöðum getur þú heyrt hljómfagra ukulele tónlist. Það sem þessir tveir áfangastaðir eiga þó helst sameiginlegt er dásamleg náttúrufegurð og hvað þeir eru tilvaldir fyrir frí.

Rarotonga

Stærsta eyjan hér er Rarotonga en hún er einskonar höfuðborg eyjanna og þar er hægt að finna bæði skemmtanir og veitingastaði. Skoðaðu hina heillandi Maorí menningu og taktu sérstaklega eftir dansi innfæddra. Prófaðu að gera eins og íbúar borgarinnar; vaknaðu snemma á sunnudagsmorgni og farðu að hlusta á fallegan „a capella“ söng í kirkjunum sem eru smekkfullar.

Aitutaki

Næst stærsta eyjan, Aitutaki, hefur enn ekki orðið fyrir barðinu á ferðamannaöldunni þrátt fyrir að helsti iðnaður eyjarinnar sé ferðamennska. Á eynni getur þú fundið risavaxin tré og elstu kirkju Cooks-eyja. Það er dásamlegt túrkísblátt lón í miðju eyjarinnar en þetta er aðaláfangastaður hennar. Í miðjunni á lóninu stendur lítil eyja, Tapuetai, en þaðan er besta útsýnið yfir nágrennið. Í Aitutaki eru gistimöguleikar á breiðu verðbili, allt frá ódýru og upp í lúxus.

Að komast á milli staða

Öll alþjóðleg flug lenda á alþjóðaflugvelli Rarotonga. Ef þú vilt ferðast á milli eyjanna er auðveldast að fljúga með flugfélaginu Air Rarotonga, en þetta er eina innlenda flugfélagið. Daglega er flogið til Aitutaki og því er auðveldast að komast þangað. Ef þú vilt skoða Rarotonga eyju er gott að leigja vélhjól og þau fást víða.

Ferðaráð

Athugaðu að þegar þú ferð frá eyjunum er brottfarargjald. Þú þarft að bóka gistinguna fyrirfram því annars gæti ferðin þín endað á flugvellinum áður en hún byrjaði nokkurn tímann. Hjá okkur færðu fleiri ferðaráð, flug, hótel á viðráðanlegu verði og fleira. 

Fá fleiri ferðaráð

Staðir til að sjá á Cooks-eyjum

Á Rarotonga er tilvalið að borða góðan mat og kynnast hinni heillandi menningu Maorí. Á Aitutaki verðurðu að heimsækja aðal aðdráttarafl eyjarinnar, túrkísblátt lón.

Fá fría ráðgjöf um ferðir til Cooks-eyja

alt

Hannaðu þína eigin ferð

Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:

  1. Þú setur upp draumaferðina þína.
  2. Við finnum bestu og hagstæðustu valmöguleikana.
  3. Þú færð persónulegt mat ferðasérfræðings.

Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!

Byrjaðu að hanna þína ferð

Afþreyingar á Cooks-eyjum

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.