Cooks-eyjar eru undir stjórn Nýja-Sjálands og mynda eyjaklasa í miðju Kyrrahafi. Þegar þú slappar af á þessum draumaeyjum líður þér eins og þú hafir loksins getað einangrað þig frá restinni af heiminum. Farðu að snorkla eða kafa í tæru vatninu eða njóttu framandi umhverfisins á hestbaki. Fáðu þér göngu í náttúrufegurðinni og gakktu upp á Raemaru fjall. Fáðu þér „ika mata“ ef þig langar í veislumat. Þetta er bragðgóður hrár túnfiskur með kókosmjólk og niðurskornu grænmeti.
Þú munt taka eftir því að Cooks-eyjar eru um margt líkar annarri hitabeltisparadís, Hawaii. Eyjaklasarnir tveir eru staðsettir á sömu lengdargráðu og á báðum stöðum getur þú heyrt hljómfagra ukulele tónlist. Það sem þessir tveir áfangastaðir eiga þó helst sameiginlegt er dásamleg náttúrufegurð og hvað þeir eru tilvaldir fyrir frí.
Rarotonga
Stærsta eyjan hér er Rarotonga en hún er einskonar höfuðborg eyjanna og þar er hægt að finna bæði skemmtanir og veitingastaði. Skoðaðu hina heillandi Maorí menningu og taktu sérstaklega eftir dansi innfæddra. Prófaðu að gera eins og íbúar borgarinnar; vaknaðu snemma á sunnudagsmorgni og farðu að hlusta á fallegan „a capella“ söng í kirkjunum sem eru smekkfullar.
Aitutaki
Næst stærsta eyjan, Aitutaki, hefur enn ekki orðið fyrir barðinu á ferðamannaöldunni þrátt fyrir að helsti iðnaður eyjarinnar sé ferðamennska. Á eynni getur þú fundið risavaxin tré og elstu kirkju Cooks-eyja. Það er dásamlegt túrkísblátt lón í miðju eyjarinnar en þetta er aðaláfangastaður hennar. Í miðjunni á lóninu stendur lítil eyja, Tapuetai, en þaðan er besta útsýnið yfir nágrennið. Í Aitutaki eru gistimöguleikar á breiðu verðbili, allt frá ódýru og upp í lúxus.
Að komast á milli staða
Öll alþjóðleg flug lenda á alþjóðaflugvelli Rarotonga. Ef þú vilt ferðast á milli eyjanna er auðveldast að fljúga með flugfélaginu Air Rarotonga, en þetta er eina innlenda flugfélagið. Daglega er flogið til Aitutaki og því er auðveldast að komast þangað. Ef þú vilt skoða Rarotonga eyju er gott að leigja vélhjól og þau fást víða.
Ferðaráð
Athugaðu að þegar þú ferð frá eyjunum er brottfarargjald. Þú þarft að bóka gistinguna fyrirfram því annars gæti ferðin þín endað á flugvellinum áður en hún byrjaði nokkurn tímann. Hjá okkur færðu fleiri ferðaráð, flug, hótel á viðráðanlegu verði og fleira.